Þá er einum viðamesta deginum til þessa lokið, en það gerðist ansi margt. Nú fyrst ber kannski að nefna að við fórum niður á leigumiðlun til að fá all pappíra og þar fengum við loksins undirritað og stimplað blaðið sem við þurftum svo að fara með niður á Bæjarskirfstofuna í Tempelhof og fá þar nýtt stimplað blað, sem veitir okkur öll réttindi. Þar fengum við einnig að vita að það er enn ein kellingin sem við þurfum að hitta, og það er miðvikudagurinn 30.jan, þá förum við í íbúðina og og hún fer yfir íbúðina og skráir ef það eru einhverjir gallar osfrv, og svo fáum við bara lyklana....að ég held.Veit ekki hvort þið áttið ykkur á mikilvægi þessa pappírs hérna úti. En á myndinni sem fylgir þessari frétt, þá glöggt sjá að þetta er ekkert smá plagg :)
Að þessu loknu var svo haldið í Deutsche Bank þar sem ég fékk aðstoð frá henni Dísu vinkonu minni við að stofna bankareikning, og viti menn, það var bara ekkert mál, og hann var strax tilbúinn, og ég get bara byrjað að nota hann samdægurs!!! Ég átti ekki til orð, er Þýskaland skrifræðisins loksins að verða þolanlegra í mínum augum? Allavega, þetta gerði mér kleyft að fara í næstu Vodafone verslun og panta FEITUSTU internet tengingu sem er í boði: "Guten Abend, Kann ich den fettesten vorhandenen dsl haben"......eða eitthvað svoleiðis. Það sem er best hérna er 16Mb tenging með ótakmörkuðu niðurhali og heimasíma á 3995 ISK á mánuði, það er bara nokkuð gott, mv að ég var með 2Mb og heimasíma á ÍSL fyrir 4999ISK. En það á að taka að lágmarki 2vikur að afgreiða það, þannig að ég verð enn ekki kominn með þetta almennilegt fyrr en líklega á afmælisdaginn minn. Það er svosem ágætt, þarf svo að ræða við Janet um að fá smá aðstöðu hjá henni meðan þetta er allt að ganga yfir.
Nú degin lauk svo á ítölsku veitingahúsi, þar sem við Soffía skelltum okkur á svosem eins og einn pastarétt á mann.
Svona var þetta í hnotskurn, og að sjálfsögðu er maður ánægður með það.
Komnar eru nýjar myndir hérna til hliðar fyrir ykkur forvitnu einstaklingana í hópnum. :)
Bis Später,
Egill
