Jæja þá erum við komin 2 tímum á undan Íslandi og verð ég að segja að það er ansi sniðugt að flýta klukkunni svona, þar sem núna er klukkan að verða hálfátta og það er ennþá bjart og fínt úti. Skrítið að þetta skuli ekki vera gert á Íslandi þar sem þetta myndi líklega gagnast ansi mörgum og gera margt skemmtilegra og auðveldara.
Nú annars er það að frétta að ég fór á námskeið í dag í einhverju sem kallast Gyrokinesis, og má eiginlega segja að þessu svipið mikið til Alexandertækni. Ég fékk það útúr þessu að ákv vandamál sem ég hef allatíð verið með í bakinu er hugsanlega leyst, en ég á nú eftir að prufa nokkrar góðar æfingar í nækkra daga/vikur til að sjá hvað gerist. Eins sá ég þarna sérstaka skó sem eru ansi merkilegir að því leiti að þeir styrkja rétta stöðu baksins og eiga að laga bara nánast öll stoðkerfisvandamál :) Nei kannski ekki alveg svo gróft en þetta er allavega helvíti sniðugt og aldrei að vita nema maður prufi þetta. Það verður líklega seint sagt að þetta séu skór klipptir úr tískutímariti, en það eina sem ég fann er þessi mynd.
Hér er annars allt gott að frétta og hitinn hækkar dag frá degi. Við erum búin að bóka flug til DK í Apríl og erum að fara til Malmö að heimsækja frænku Soffíu og Júlíu, það verður nú gaman, það sem gerir þetta svo senn skemmtilegra er að M&P plús G&B verða þarna líka á sama tíma þannig að maður hittir fólkið sitt í leiðinni sem er aldrei slæmt. Júlía er að fara í annan tímann sinn á morgun í Cranio og það er vonandi að það skili góðum árangri.
Annars langar mig í lokin að minnast á eitt sem hefur verið að angra mig, en það er Sjálfstætt fólk þáttur sem ég sá um daginn, þar var Auður Haralds gesturinn, og það sem gerði mig eiginlega smá reiðan var að hún reykir eins og strompur á dekkjabrennsluverkstæði og svo var alveg á kafi í því að lýsa því yfir að hún lætur nú ekki ofan í sig aukaefni og sneiðir algerlega framhjá slíku í mat og var nánast að hneykslast á því hvað væri mikið af aukaefnum í mat!!! Hversu mikil er sjálfsblekkingin hjá svona fólki. Reyndar má svosem taka punktinn um það að hún er allavega ekki að gera illt verra með því að borða aukaefni ofan á það sem hún reykir þau!
Ekki meira í dag EN......
NÝJAR MYNDIR
29.3.09
25.3.09
Samir við sig...
Þá er búið að staðfesta við mig breytingu á hlutverkum og má sjá upplýsingar um þetta allt hérna. Svo er búið að færa "Benefiz-Gala" tónleikana fram um einn dag, þetta verður semsagt 13.Maí kl 19:50 í Mercedes Autowelt við Salzufer. Og við erum 4 eða 5 sem komum þar fram, sem er magnað, hélt að við yrðum mun fleiri, en þetta eru ss sigurvegarar í Kammeroper keppninni, sem ég var ekki alveg klár á að ég væri að taka þátt í :) En svona gerast hlutirnir, þegar maður á síst von á þeim. Annað sem kom mér á óvart er að þarna verður hljómsveit undir stjórn Fischer-Dieskau eftir því sem ég kemst næst!!! Sem er nú ekkert lítið! Þannig að nú þarf að fara taka á því, það er alveg dagljóst.
Af þjóðverjum:
Í morgun kl 7:30 kom "viftukallinn" til að mæla kraftin á viftunum hérna í íbúðinni, ekki skil ég nú alveg tilganginn með því, það er nú ekki eins og við köfnum ef þær virka ekki!! Ég var svo á leið heim í dag eftir tíma hjá Wolfgang og ákvað að koma við og versla kleinuhringi á Dunkin, þar voru komnir einhverir páska kleinuhringir sem ég ákvað að kaupa, þetta var eitthvað svona skreytt dót, og afgreiðslustelpan spurði hvort ég væri að kaupa þetta fyrir börn, og ég sagði nú bara að þetta væri fyrir sjálfan mig, það fannst henni voða fyndið og vildi að ég myndi kaupa eitthvað annað í staðinn!! Þjónustufólk hérna í Berlín er voðalega ókurteist á köflum og það er oft mjög pirrandi að eiga samskipti við það.
Í morgun kl 7:30 kom "viftukallinn" til að mæla kraftin á viftunum hérna í íbúðinni, ekki skil ég nú alveg tilganginn með því, það er nú ekki eins og við köfnum ef þær virka ekki!! Ég var svo á leið heim í dag eftir tíma hjá Wolfgang og ákvað að koma við og versla kleinuhringi á Dunkin, þar voru komnir einhverir páska kleinuhringir sem ég ákvað að kaupa, þetta var eitthvað svona skreytt dót, og afgreiðslustelpan spurði hvort ég væri að kaupa þetta fyrir börn, og ég sagði nú bara að þetta væri fyrir sjálfan mig, það fannst henni voða fyndið og vildi að ég myndi kaupa eitthvað annað í staðinn!! Þjónustufólk hérna í Berlín er voðalega ókurteist á köflum og það er oft mjög pirrandi að eiga samskipti við það.
Júlía er búin að fara í fyrstu bólusetninguna sína og það voru tvær sprautur takk fyrir í hvort lærið, ekki þótti það nú gott en hún var snögg að jafna sig. Hér gengur allt sinn vana gang með hana og virðist hún nú sofa mest og lengst þegar við bindum hana utan á okkur og löbbum með hana, fín hreyfing svosem, en ekki alltaf það skemmtilegasta.
22.3.09
20.3.09
Sál mannsins er gullfiskur
Jæja það hefur fátt eitt gerst hér á bæ síðan síðast.
Fyrst er kannski að nefna að Rheinsberg óperan, sem ég er að fara syngja í í sumar sendi mér tölvupóst í gær þar sem þeir báðu mig að skipta um hlutverk! Í óperunni eru semsagt 2 tenór hlutverk, bæði eru þau stór og flokkast sem aðalhlutverk. Þeir heita Luzio og Claudio, það var búið að bjóða mér Claudio, þar sem búið var að fylla í öll önnur hlutverk. Ég er búinn að liggja yfir þessu og "highlighta" allt sem ég á að syngja auk þess að forvinna þetta allt með því að skanna inn í tölvu. Núna er semsagt verið að biðja mig að syngja hitt hlutverkið, Luzio, sem er mun leiðinlegra en er eiginlega álitið meira aðalhlutverk. Það er gífurlega erfitt að ákveða þetta og ég hugsa að ég samþykki þessa breytingu þar sem það kann að vinna mér inn góðvild hjá þessu fólki. En ég hef grun um að hinn tenórinn hafi annaðhvort gugnað á hlutverkinu og viljað eitthvað "auðveldara" eða þá að hann er svona ömurlegur að hann vill fá að syngja fallegu laglínurnar. Claudio er semsagt mikið fallegra hlutverk á meðan hinn gaurinn er eiginlega bara leiðinlegur og oft á tíðum í mjög hárri legu, en fokk it, þetta hlítur að eiga að fara svona.
Nú ég hentist í gær og keypti mér nýjan síma, eða ölluheldur fór að fá mér samning þar sem ég nenni ekki þessu frelsis rugli og ég fékk bara nýjan síma með. Fyrir valinu varð Xpressmusic 5800 frá Nokia og við fyrstu prófun er ég bara nokkuð ánægður með hann. EN það varð úr að ég get ekki notað gamla númerið mitt, þannig að ég er kominn með nýtt númer!! Sem er reyndar allt í lagi þar sem það er rosalega fínt, og ég bið ykkur að breyta hjá ykkur í hið nýja númer sem birtist neðst á síðunni. En hvað með það, þegar ég fór að fá mér símann tók ég ungfrúnna með, bundna utan á mig og hún steinsvaf, blessunin, í 3 tíma, sem er bara nokkuð gott fyrir hana.
Og áfram með Júlíu, hingað kom semsagt sérfróð kona í næringu og ummönnun barna, eins og ég var búinn að segja frá, og eftir tvo tíma af blaðri kom í ljós að við erum ekki að gera neitt rangt og það er ekkert sem við getum gert...og þó, við fengum að vita að núverandi vandamál Júlíu við að drekka er tengt byrjun á tanntöku, þó einungis þannig að tannræturnar eru að vaxa og það veldur miklum pirringi, og miklu slefi, og það má sjá á því líka hvað hún er mikið með hendurnar uppi í sér, auk vill hún ekki drekka því þrýsingurinn sem myndast við að sjúga meiðir hana. Allavega 2 tímum og 90 Evrum seinna komumst við að því að við gætum prufað að kaupa hómópataformúlu sem á að lina þjáningar, erum búin að vera gefa henni það og ég er ekki viss um að það dugi frekar en annað sem við erum búin að prufa, ég er því orðinn sannfærður um að ekkert sé hægt að gera nema bíða sem er eitt það leiðinlegasta og ömurlegasta sem hægt er að taka sér fyrir hendur. Mér dettur í hug kínversk vatnsdropa pynding við þessar aðstæður.
Allavega nýja númerið er:
+49-170-1818-155
+49-170-1818-155
17.3.09
Svona átti þetta nú ekki að vera!!
Þá er hafin þriðja vikan í atvinnuleysi og ég sem var búinn að setja saman ansi mikil plön um það hversu mikið ég ætlaði nú að fara læra og reyna að koma mér af stað í hreyfingu aftur. Lítið hefur gerst síðan ég planaði þetta allt, ég er reyndar búinn að skanna inn þær 130 blaðsíður sem ég þarf að syngja af í sumar og vinna með það efni þannig að ég geti nú farið að læra af fullri alvöru. Ég henti mér í ræktina í fyrsta skipti í gær og það var mjög gott mér leið strax betur. EN í morgun bara komst ég ekki upp úr rúminu.....,!! Það er svolítið langt síðan mér leið svona.....síðast var það svona í kringum tvítugt. Ég veit ekki alveg hvað þetta er en þreytan á Júlíu og hennar ástandi er nú ekki til að bæta það, þó vissulega sé hún, eins og margoft hefur komið fram, MIKIÐ betri en áður. Hún sefur lítið sem ekkert og er þessvegna mjög mikið pirruð og stanslaust að væla, svo er grenjað ef hún er sett að sofa. Þetta er ótrúlega skemmtilegt eða hitt þó heldur og hefur verið svona á hverjum einasta degi frá því hún fæddist, munurinn á deginum í dag og áður er að það er ekki sár grátur. Annars er andlegt álag vegna þessa mjög svipað.
Við erum búin að panta hingað sérfræðing í brjóstagjöf, svefni og næringu ungabarna. Hún er væntanleg á morgun. Ég á ekki von á að neitt komi útúr því nema að vera 90 evrum fátækari, en maður er þá allavega búinn að reyna. Nú svo er búið að bóka ungfrúnna í ungbarnasund og frúin að fara í "endurhæfingar leikfimi".
Sönglega er ég í lægð þessa dagana, og það er aldrei góð líðan sem fylgir því. En ljósið í myrkrinu er að Wolfgang er komin heim úr fríi og ég er að fara hendast í tíma til hans á föstudag, það kemur aðeins til með að brjóta upp daginn og vonandi að lífga við röddina aðeins.
Hræðilegir svona dagar, en maður hefur komist í gegnum þetta áður og mun líklega gera það aftur.
13.3.09
Ástarbannið
Þá er ég kominn með nóturnar í hendurnar og það er ekki laust við að manni hafi eilítið brugðið, þar sem þetta er ekkert smáræði, en ég vissi það nú reyndar fyrir :) Þá er maður allavega kominn á fullt að reyna að læra þetta. Við fáum aðeins 10 daga í æfingar og svo er sýnt, þetta er semsagt concert uppfærsla, ss ekki leikið á sviði, sem eru vissulega vonbrigði, en það er sama þetta er mikil kynning og eins gott að gera þetta vel.Á eftir erum við svo að fara í "Babytreffen" það eru semsagt þeir sem voru saman á geburtsvorbereitungskursinum að hittast 3 mánuðum eftir að síðasta barn fæddist. Það verður vissulega áhugavert, en ég get ekki sagt að ég hlakki mikið til, þar sem mér leiðist nú yfirleitt eitthvað svona.
10.3.09
Þegar maður gúgglar sjálfan sig
Við venjubundna gúgglun á sjálfum mér sá ég mér til mikillar ánægjur (kannski ætti það að vera skelfing), að mín er getið í Tyrknesku dagblaði. Veit ekki alveg hvort þetta sé jákvætt eða neikvætt, en mér sýnist af google translate að þetta sé nú ekkert alvarlegt :)
Af öðru má nefna að ég hentist í bíó í kvöld að sjá kvikmyndina "The Watchmen", trailerinn lofaði svo sannarlega góðu, en þvímður stóðst myndin enganvegin væntingar, það sem var skemmtilegt og flott, var enganvegin nógu stór hluti af myndinni. Þetta var svipað og ein leiðinlegasta kvikmynd sem ég hef séð á síðari árum, nema öllu áhugaverðari á margan hátt. Ég veit því ekki alveg hvort ég get mælt með henni en ég mun ekki eignast hana á DVD og ekki dl henni, svo mikið er víst.
Ég velti því fyrir mér í kvöld hvort þetta ætli engan endi að taka með hana Júlíu. Hún bara fer ekki að sofa öðruvísi en en að genja sig til örmögnunar ásamt því að hossa hennig og hoppa með hana um öll gólf. Ég held að síðan hún fæddist hafi ekki verið farið að sofa á þessu heimili fyrr en í fyrsta lagi 00:30 á hverju kvöldi. Reyndar hef ég notið þess að sofna aðeins fyrr þegar þær mæðgur fóru til Íslands í janúar sl. Við erum bæði orðin verulega þreytt á þessu endalausa veseni í henni Júlíu, að einhverju leiti er þetta magavesen enn að hrjá hana og veldur því að hún sefur illa. En það er eitthvað annað sem er að koma í veg fyrir að hún sofni á kvöldin. Svo þegar maður verður "reiður" við hana, þá bara brosir hún og hlær og slær vopnin úr höndunum á manni :) Nema reyndar þegar hún á að fara sofa, þá er öskrað og grenjað.
Jæja fleira var það nú ekki að sinni.
Guð blessi Ísland.
6.3.09
Að vera þannig upplagður
Þá er þessari fyrstu "vinnuviku" að ljúka og ég er smátt og smátt að melta með mér atburði liðinna daga. Þetta er vissulega frábært að vera valinn af 460manns og ekki bætir nú úr skák tölvupósturinn sem ég fékk frá þeim í gær. En þar stendur að ég hafi líka verið valinn til að syngja á sérstökum Góðgerðartónleikum sem haldnir verða í Mercedes höllinni hérna í Berlín þann 14.Maí nk. Þetta eru semsagt tónleikar þar sem sérvaldir sigurvegarar úr Alþjóðlegri Söngkeppni Kammeroper 2009 koma fram. Ég veit ekkert út á hvað það gengur en það skiptir heldur ekki máli eins og er :)
Nú svo fékk ég þetta nokkuð nákvæmlega útlistað hvernig þetta verður í sumar.
Æfingar hefjast 19. Júní og frumsýning er 27.Júní svo verða auka sýningar 10. og 25 Október í Braunschweig og fyrir það fæ ég borgað :) Einnig vilja þau að ég taki þátt í Óperugala sem verður haldið 2. 3. 4. og 5 Júlí. Þetta lítur semsagt bara vel út og ég hlakka mikið til.
Í gær kíkti hingað Gunnar nokkur og við horfðum á Mad Max trílógíuna, það var ágætis skemmtun. Á morgun eigum við svo von á Paul og Önu í kaffi, en þau voru á hinu geysiskemmtilega geburtsvorbereitungskurs með okkur.
Júlíuhornið
Í gær rann upp fyrir okkur að Júlía hefur ekki verið að grenja út af verkjum í rúma viku! Sem er mjög gott. Hún hefur samt sem áður verið að grenja slatta og er mj0g vælin þegar hún tekur sig til. Hún er ennþá með ótrúleg leiðindi þegar á að gefa henni að drekka og grenjar um leið og hún fer á brjóst, þetta er ótrúlega þreytandi og leiðinlegt, sérstaklega fyrir Soffíu, því það þarf alltaf að reyna að svæfa hana fyrst og svo bíða eftir að hún vaknar eftir um 5 mínútur og þá er hægt að gefa henni. Við erum byrjðu að gefe blessuðu 3 mánaða barninu graut á kvöldin í þeirri veiku vona að hún muni sofa aðeins meira. En eins og það lítur út núna virðist það ekki vera skila tilætluðum árangri, en það góða er að hún borðar grautinn og virðist alveg hafa gaman af því. Þetta fer allavega ekki illa í hana. Það sem er að hrjá hana núna er nefstífla sem virðist valda því að hún sefur ekki mjög vel. Fyrir utan þetta má eiginlega segja að hún afskaplega ljúft og gott barn sem hefur mjög gaman af öllu í kringum sig. Það er mjög ánægjulegt fyrir okkur að sjá hverjsu hratt hún er að þroskast og hvað hún virðist vera með sterkar taugar. Þetta er allavega júlíuhornið í dag, verði sæl.
Í gær rann upp fyrir okkur að Júlía hefur ekki verið að grenja út af verkjum í rúma viku! Sem er mjög gott. Hún hefur samt sem áður verið að grenja slatta og er mj0g vælin þegar hún tekur sig til. Hún er ennþá með ótrúleg leiðindi þegar á að gefa henni að drekka og grenjar um leið og hún fer á brjóst, þetta er ótrúlega þreytandi og leiðinlegt, sérstaklega fyrir Soffíu, því það þarf alltaf að reyna að svæfa hana fyrst og svo bíða eftir að hún vaknar eftir um 5 mínútur og þá er hægt að gefa henni. Við erum byrjðu að gefe blessuðu 3 mánaða barninu graut á kvöldin í þeirri veiku vona að hún muni sofa aðeins meira. En eins og það lítur út núna virðist það ekki vera skila tilætluðum árangri, en það góða er að hún borðar grautinn og virðist alveg hafa gaman af því. Þetta fer allavega ekki illa í hana. Það sem er að hrjá hana núna er nefstífla sem virðist valda því að hún sefur ekki mjög vel. Fyrir utan þetta má eiginlega segja að hún afskaplega ljúft og gott barn sem hefur mjög gaman af öllu í kringum sig. Það er mjög ánægjulegt fyrir okkur að sjá hverjsu hratt hún er að þroskast og hvað hún virðist vera með sterkar taugar. Þetta er allavega júlíuhornið í dag, verði sæl.
Guð blessi Ísland.
4.3.09
Þá er búið að eyðileggja fyrir manni sumarið!!
Ég var búinn að hugsa mér að eyða sumrinu í að finna mér eitthvað að gera og undirbúa hin og þessi hlutverk úr ýmsum óperum, núna er orðið ljóst að það mun ekki gerast! Heldur mun ég einungis undirbúa eitt hlutverk og einhverjar aríur. Ástæðan fyrir þessu er að í dag var ég í svona auka áheyrnarprufu fyrir sumaróperu, eina þá stærstu hérna í Þýskalandi. Ég komst ekki í alvöru áheyrnarprufuna vegna þess að ég var á Íslandi og sendi því inn DVD. Skipuleggjendur hátíðarinnar óskuðu eftir að fá að heyra mig syngja í eigin persónu og það gerðist nú í lok dags. Mér var boðið hlutverk á staðnum og ég beðinn að taka sumarið frá. Ég tók tilboðinu náttúrulega og þakkaði pent fyrir mig. Ég hef reyndar aldrei sungið eins vel og í áheyrnarprufunni í dag :)
Það er kannski ekki rétt að segja að sumarið sé ónýtt, en það er allavega að mestu frátekið :)
Mér var semsagt boðið hlutverk "Claudio" í óperunni "Der Liebesverbot (Ástarbannið)". Ég á eftir að leggjast aðeins yfir þetta en mér skilst að þetta sé svínerfitt hlutverk með einu háu C!!! Allavega þá eru þetta í raun góðar fréttir þrátt fyrir að titill greinarinnar virki neikvæður :)
Ég mun því opna mér bjór í kvöld og hugsa minn gang. Því söngvarar sem taka þátt í þessari hátið fá mikla athygli hjá Bayreuth, og stóru húsunum hérna í Þýskalandi, svo ekki sé nú talað um Metropolitan í New York. Allavega maður mun gera sitt allra besta og ég mun hvergi spara til að gera þetta sem best úr garði. Það er ekki mikið borgað fyrir þetta, þar sem litið er á reynsluna sem borgun. Þó fáum við frítt fæði og húsnæði og 500 evrur í dagpeninga á meðan á æfinga og sýningatímabili stendur.
Frumsýning er 27.júní kl 20:00
Svo verða einhverjar aukasýningar annarsstaðar í ágúst.
Hér syngur undirritaður 2-3 aríur
Það er því spennadi sumar framundan hjá mér og mikill stökkpallur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)