31.5.09

Ekkert kemur fyrir hornið....

Eins og fyrirsögnin ber með sér er ekkert að gerast, það er nákvæmlega þannig og búið að vera þannig síðustu daga.  Rigning kalt og ekkert að gerast!  Ég sest ekki niður og læri, heldur förum við í mollið, komum heim og ég hef farið að horfa á vídeó!  Þetta er svona spírall sem ég ræð ekkert við, því þegar heim er komið er ég allt of þreyttur og annars hugar til að geta sest niður að læra.  Ég fékk þó einn dag í vikunni þar sem ég sat nánast allan daginn að læra og það var afskaplega gott.

Næsta vika verður talsvert atburðameiri en sú sem liðin er.  En þar má nefna að ég fer í tvo söngtíma einn meðleikstíma, StudioClass, Terminator, Læknisheimsókn með Júlíu og svo má ekki gleyma foreldrunum sem koma ásamt Skálholtskór til að halda tvenna tónleika, og mun ég koma fram með þeim á öðrum tónleikunum.   Það er því alveg nóg að gerast.

Í rigningunum sem hafa verið hér undanfarið hefur eitthvað borið á því að það leki eitthvað inni á baðherbergi hjá okkur, eða ölluheldur virðist leka úr pípum sem koma úr loftinu, en ég tel að það leki einhversstaðar inn í allri þessari rigningu og það flæði hér einhversstaðar eftir sprungum í steypunni.  Ég hreinlega nenni ekki að hringja útaf þessu þar sem þetta er ekki það mikið, þó pirrandi sé.  Merkilegt að maður er búinn að vera hérna í eitt og hálft ár og veigrar sér samt við að nota þýskuna.   Það er nú kannski líka afþví að maður talar eiginlega bara íslensku og ensku hérna, þannig er nú bara það.  

Júlían er við sama heygarðshornið, og sefur svosem ágætlega á nóttunni, en pirringur á daginn hefur aukist margfallt, og ef maður er ekki stanslaust að hafa ofanaf fyrir henni, þá er hún vælandi sem er alveg einstaklega lýjandi, og veit ég að það er hluti af því afhverju ég á svona erfitt með að koma mér að því að læra.  Þó gerist það (2x á hennar stuttu ævi) að hún sofnar alveg ein og alveg sjálf án þess að þess sé beinlínis ætlast til af henni.  Það er alltaf magnað og í tilefni síðasta lúrs var þessi mynd hérna tekin.......  
Það er ekki laust við að gaman væri að skreppa heim og taka þátt í veislu sem þar á sér stað í dag, en ég er ekki almáttugur útrásarvíkingur með botnlausa vasa af peningum, því verður  það að bíða eitthvað.

Enn og aftur til hamingju með daginn kæri bróðir.

30.5.09

Til hamingju með útskriftina bróðir sæll


Hann Binni litli bróðir er að útskrifast í dag.  Maður er auðvitað afskaplega stoltur af þeim litla að vera loksins búinn með þennan áfanga, mig minnir að það hafi verið afskaplega mikill léttir :)

Við komumst að sjálfsögðu ekki í veisluna en vildum óska að við kæmumst, því verður þvímiður ekki komið við. 

Ég henti því hérna inn nokkrum myndum sem eiga erindi við það erfiði sem að baki er :)













23.5.09

Lítið bloggað en mikið ringt

Hér hefur nú fátt markvert gerst annað en það að við erum byrjuð á stífu svefnprógrammi fyrir dömuna og ekki annað hægt að segja en að það hafi fljótt skilað góðum árangri.

Ég fer með hana inn í rúm klukkan 22:00 og þar held ég í hendurnar á henni þangað til hún sofnar (yfirleitt á 10-15 mín), en þangað til er grenjað stíft.  Svo hefur hún bara sofið yfir 4 tíma í einu allar síðustu nætu, sem verður að teljast met fyrir hana.  Eina nóttina svaf hún til að verða hálf 6 um morguninn!  Það er nánast að maður trúi þessu ekki, en loksins eitthvað farið að gerast.  Ég á svo von á því að þegar þetta er allt orðið fast og fínt, þá fara tennurnar að koma og allt raskast upp á nýtt.  Sumir myndu kalla þetta svartsýni, en ég kalla þetta "lögmál Murphys", margreynt og viðurkennt lögmál.

Ég er að hefja undirbúning á fyrstu Einsöngstónleikum mínum hérna í Berlín, og þar verður m.a dusta rykið af ljóðaflokk eftir R.Strauss og jafnvel æfður upp einn Vaughan Williams, en það þarf að bíða og sjá með hversu auðvelt er að læra það :)  Svo bara eitthvað klassískt óperu rep.  Þetta er allavega á hugmyndastiginu núna og fær að vera þannig eitthvað áfram.

Hér er búið að vera leiðinda veður síðustu vikuna, vindur og frekar kallt (flíspeysuveður), af og til svakaleg rigning.  Það sem hófst sem stórkostlegt sumar er líklega lokið :) (aftur lögmál Murphys)

Annars gengur allt sinn vana gang hér, raddlega er ég í besta formi sem ég hef verið, og Wolfgang skilar sínu allduglega í hverri viku, það er ekki hægt að kvarta yfir því!

Þangað til næst, Guð blessi Ísland

18.5.09

Helgin er liðin með tilheyrandi.....

Begga frænka kíkti hér í heimsókn um helgina og ekki er hægt að segja annað mikil skemmtun varð úr því eins og alltaf þegar svo er.

Eurovision vita allir hvernig fór, og ég ætla því ekki að tjá mig neitt um það, þrátt fyrir sterkar skoðanir á því sem þar fór fram.  Við vorum að sjálfsögðu með létt partí hér á bæ þar sem við fylgdumst spennt með þessu öllu saman.  Ekki mikil spenna fyrir þesssu hérna í Berlín þar sem Hertha Berlín var að vinna einhvern leik og það virðist svona  hafa verið aðal málið.  Ekki það að það skipti einhverju máli.

Það er í raun frá litlu að segja, nema kannski því að þessi vika hefst með því að svefnþjálfun skal hefjast fyrir ungfrúnna af einhverri alvöru!   Ég þarf að fara taka mig verulega á í lærdómi fyrir óperuna miklu í sumar og vonandi gengur að samræma þetta alltsaman svo best sé.  

Ég er búinn að henda inn nokkrum myndum í albúmið hennar Júlíu fyrir þá sem hafa áhuga á því.  

Það styttist svo í komu foreldranna og kórsins góða frá Íslandi sem kennir sig enn við Skálholt. Það verður flott ferð, ég vona bara að veðrið verði eins gott að og það lítur út fyrir að verða næstu daga.

Hér var gaman og þessi mynd er til vitnis um það (skál og góða ferð Begga)

14.5.09

Flott kvöld, velgengni og svo framvegis.....


Gærdagurinn og gærkveldið var í alla staði vel heppnað!!  Ég er mjög ánægður allvega þó líklegast megi alltaf gera betur.

Þetta hófst reyndar allt á þriðjudeginum þegar við fórum til Frankfurt and der Oder, þar var æfing með hljómsveit og þess á milli farið til Póllands og fengið sér að borða á Egypskum veitingastað :) Þetta var allavega voða gaman.

Mæting var svo í Mercedes höllina kl 15:00 í gær og þar var öllu klabbinu rent í gegn einu sinni fyrir kvöldið, mér gekk ekki alveg nógu vel á æfingunni, en í staðin gekk mér mjög vel um kvöldið......þegar það skipti einhverju máli! :)  Ég er bara svakalega sáttur við daginn og kvöldið.   Fólk var ánægt og ég gaf eiginhandar áritun :)  Nú tekur svo bara við að læra Liebesverbot fyrir Júní.  Í dag er ég að fara hitta eina sóprönu sem syngur á móti mér og við ætlum að rúlla yfir dúettinn okkar með Eddy, pínóleikara.   Það er því hvergi slakað á og það er að vissuleiti gott mál.
Martin Fischer-Dieskau gaf sér tíma í mynd :)
Nú það voru að sjálfsögðu tekin vídeó á staðnum og hér koma þau "exclusively" fyrir lesendur þessarar síðu :)

Gjörið svo vel, (það eru einhverjar hljóðtruflanir vegna þess að vídeóvélin mín er í einhverri steik)

Pourquoi me Reveiller - Werther (Massenet)



La donna e mobile - Rigoletto (G.verdi)




11.5.09

Fischer-Dieskau og Frankfurt

Í dag fór fram píanóæfing með stjórnandanum Martin Fischer-Dieskau og gekk bara svakalega vel, maðurinn er stórkostlega fínn og það verður mjög gaman að vinna með honum.  Æfingin var í Deutsche Oper og þar hitti ég svo meðsöngvara mína, það var gaman að sjá að þarna var kóreysk stelpa sem ég hef áður sungið með, þannig að maður þekkir einhvern.   Svo vorum við tenórarnir ekki lengi að ná saman og þetta varð bara helvíti góður dagur. 

Ég var svo farinn að kvíða því að fara til Frankfurt í fyrramálið, en það kom upp úr dúrnum við nánari athugun að það er víst til annað Frankfurt í Þýskalandi......kemur á óvart!!!   Þetta Frankfurt er semsagt ekki nema um 90mín akstur frá Berlín og er á landamærum Pólands og Þýskalands og er kallað "Frankfurt an der Oder" en aðal Frankfurtið er "Frankfurt am Main", það verður því hægt að rölta yfir til Póllands í frítímanum, sem er ansi mikill, þar sem við leggjum af stað kl 8 í fyrramálið og ég á ekki æfingatíma með hljómsveitinni fyrr en kl 18.  Það er allavega mikill léttir að vita til þess að ferðalagið á morgun verður um 2 tímar í staðin fyrir 10 :)

Hér eru vinkonur Soffíu búnar að gera sig klárar til heimferðar, og ná að pakka öllu sem þær versluðu :)  Næsta heimsókn er svo næstu helgi, en þá kemur ástkær frænka mín BKBen, vona bara að veðrið verði skaplegt, þar sem hér er svo miklu skemmtilegra að vera í góðu veðri.

Meira var það ekki, ég mun birta meira hér að loknum tónleikum á miðvikudag, og vonandi verður videóið sem ég ætla að láta taka birtingarhæft og  þá mun ég að sjálfsögðu setja það hérna inn.

Þangað til næst, Guð blessi Ísland

8.5.09

Corpus für alle Delicti

Star Trek fór fram úr björtustu vonum mínum!!  Það verður ekki annað sagt.  Mæli með henni fyrir alla, ótrúlega fyndin, vel gerð og skemmtileg mynd.
Það styttist nú óðum í tónleikana hérna í Berlín, ekki laust við að komin sé tilhlökkun í mann, ég bókaði tvo tíma hjá Wolfgang núna um helgina til að reyna að koma mér í besta form sem ég get komist í á svo stuttum tíma.   Á mánudaginn er svo píanóæfing með stjórnandanum í Deutsche Oper og svo er hljómsveitaræfing á þriðjudeginum í Frankfurt!!   Ég átta mig ekki alveg á hvernig þeir ætla að gera þetta, en það er líklega auðveldara að selflytja 5 söngvara heldur en heila hljómsveit :)  Þetta verður allavega annasöm vika hjá mér og vonandi arðbær tengslalega séð.
Það er nú samt ekki víst að agentar mæti á svæðið nema þeim sé sérstaklega boðið þar sem það kostar 38 EUR inn á herlegheitin.  Það er ekki ónýtt að vera í þessum hópi og þetta verður frábært kvöld, án efa.

Nú hér í kvöld er búin að vera grenjandi rigning með tilheyrandi þrumuveðri... alltaf jafn gaman að upplifa það, hér má sjá mynd sem er ný komin úr EOSnum frá atburðum kvöldsins.
Júlíuhornið er á sínum stað, en þar er ekki annað að frétta en það að ungfrúin er nú loksins búin að fá langþráðan stól við matarborðið og ekki annað að sjá og skilja en að hún sé bara ánægð með það.
--Þú ert þá maðurinn sem ert búinn að skuldsetja mig!!!!--

6.5.09

Það er StarTrek dagur í dag, du dí dí (sungið með Daloon rúllu laginu)

Þá er komið að því að maður fái að sjá nýjustu Star Trek myndina.  Þetta lítur út fyrir að verða svakalega góð mynd, vona bara að það gangi eftir, enda engin annar en J.J Abrams (Lost, Cloverfield, Alias) sem pródúserar og leikstýrir.   Maður getur ekki annað en hlakkað til.

Hér er bara búið að vera skítaverður síðustu 3-4 daga, enda náttúruleg búið að vera frábært það sem af er sumri, það er allt í lagi þó það komi nokkrir leiðinda dagar.   Vona bara að væntanlegir gestir fái nú betra verður en er í kortunum!  

Það styttist óðum í Benefit-Gala tónleikana og ekki laust við að maður sé aðeins farinn að finna fyrir því í maganum.  Ég var að frétta í gær að við eigum að kunna utanbókar hið stórskemmtilega lag "O sole mio"......sem ég reyndar kann....... EN Á ÞÝSKU!!  Ég sit því sveittur við að reyna að læra þennan ógeðslega leiðinlega texta sem passar mjög illa við lagið...... en svona er þetta víst í "bransanum".

Nú Soffía er búin að hringja í svefnráðgjöf vegna títtnefndrar Júlíu, og það er byrjað að reyna að fylgja ákv plani með hana og það þarf að sjá  hvernig það kemur út.... vonandi bara vel!

Ég lýk þessu svo í dag með stórkemmtilegri mynd sem ég tók í DK, en þar var Sören aðalmyndefnið.......svo eftir á þegar ég var að skoða myndirnar kom svolítið fyndið í ljós :)

1.5.09

Spargelzeit, Mollið, MBT, Júlía og sundið ofl

Þá er 1.maí runnin upp, ekki  það að ég hafi nokkurntíma haldið eitthvað sérstaklega upp á þennan dag.  Hér rétt hjá okkur er loksins búið að opna mollið(verslunarmiðstöðina), sem búin er að vera í byggingu síðan við fluttum hingað.  Það má segja að þetta sé alveg svakalega flott, og sérstaklega að vera búin að fá þetta hérna í grendina.  Þarna er stórmarkaður sem mér sýnist eiginlega hafa upp á að bjóða allt það sem hugurinn girnist, nema t.d maldon salt!  En þetta er risastórt og gott úrval, sem er frábært.  Ég hentist þangað í gær með ungfrúnna og verslaði spargel sem er einmitt í season núna, það hefur komið á óvart hversu virkilega góður matur þetta er þegar vel tekst til.  Okkur var einmitt boðið í mat hjá Janet í gærkvöldi þar sem við fengum soðin spargel með soðnum kartöflum, svo er það bara salt og pipar og smá smjör, það er algert rugl hvað þetta er góður matur, eins og hann hljómar lítið spennandi.  Hérna í kvöld koma svo Gunnar og Erla að njóta með okkur spargel :)
Ég fékk mér MBT skó í Svíþjóð og er þvílíkt ánægður með þá, þetta er í fyrsta skipti í yfir 3 ár sem ég splæsi á mig skóm og þessir voru svosem ekki gefins.  En eftir að hafa gengið á þessu í nokkra daga verð ég að segja að þetta er alveg svaklega þægilegt og tekur verulega í aftanverð læri og rass, maður finnur að þetta er að virka sem er stórfínt.  Ég hef svosem aldrei haft nein sérstök bak eða hné vandamál en finn að þetta gerir ekkert annað en að styrkja, og mér finnst þetta bæta líkamsstöðuna mjög mikið.  Ég mæli því sannarlega með þessum skóm fyrir þá sem ganga mikið og vilja nýta tímann til að fá smá brennslu og styrkingu á sama tíma.  Ég hefði líklega aldrei fengið mér þetta á Íslandi, þar sem ekki er eins sjálfsagt að fara út að ganga þar eins og hér, þar sem maður gengur nánast allt sem maður fer. 

Nú hér er bara dagur eftir dag sem skartar sól og yfir 20 stiga hita, þetta er vægast sagt stórkostlegur tími og maður er einhvernvegin alltaf í partýskapi :)  Ég var að lesa að þetta væri hlýjasti Apríl mánuður í þýskalandi síðan 1820!!!  Ég leyfi mér allavega ekki að kvarta, og vona bara að sumarið verði svona áfram.

Ungfrúin fór í sund í dag og skemmti sér konunglega sem fyrr.  Hún er rosa kát og skemmtileg og þroskast greinilega hratt þessa dagana.  En það er eins og það sé enn eitthvað að pirra hana á kvöldin, og það virðist vera versna.....allavega í mínum augum og eyrum.  Hún grenjar nánast eins og þegar hún var með kveisuna í þá gömlu góðu!   En það er ekki málið, eru þetta tennur, geðveiki eða eitthvað annað???  Það veit ég svei mér þá ekki, en þetta er verulega óþolandi.

Hérna er svo að lokum ein mynd af föður og dóttur í sundi :)  Gleðilega hátið