22.5.12

Af atvinnu- og internetmálum.

Jæja þá er farið að líða að seinni hluta Maí mánaðar.  Hér hefur Soffía verið að vinna á Hólum til að við eigum nú einhvern pening til að lifa :)  Ég hef verið heimavið að sjá um barn/börn.  Júlía fer í heimsóknir í leikskólann á Hólum og Emilía er heima hjá pabba sínum.  Þetta hefur bara gengið vel og ég hef getað einbeitt mér að píanó leik og sinnt öðrum hugðarefnum sem þvímiður hafa stundum týnst í tölvunni.  Ég hef því tekið þá ákvörðun í dag að draga mig alfarið út úr lestri frétta á netinu og hætta að skoða Facebook.  Það er að vel íhuguðu máli sem ég geri þetta, því ég hef verið að missa mig í að kommenta á skoðanir annara, sem eru yfirleitt mistök, sama hversu heimskulegar og barnalegar sem þær skoðanir kunna að vera.  Nú er ég ekki fullkominn, en ég tel mig vera nokkuð réttsýnan og tel ekki að forræðishyggja samborgara minna sé yfirleitt það sem við þurfum.  Sérstaklega ekki þegar sú hyggja miðar að því að takmarka frelsi og réttindi annara.  Sem ég tel mig ekki vera að gera, nema þá að reyna að takamarka tjáningarrétt þeirra sem eru á villigötum :)

Ég hef nýtt tímann þegar Emma litla er sofandi til að rifja upp gamla takta í hugleiðslu, og ég er ekki frá því að mér líði betur og sé talsvert einbeittari, en það gæti auðvitað líka bara verið vegna þess að ég er ekki að gera neitt :)  En það er meiri ró allavega sem er gott.  Ég hef greint sjálfan mig með athyglisbrest, og hef verið að prufa ýmis lyf gegn því, en hingaðtil hefur það ekki borið nógu mikin árangur til að teljast vera einhver tímabundin lausn.  Rítalín, Concerta, Strattera er meðal þess sem ég hef prufað og hingað til hefur Rítalín skilað bestum árangri, en þvímiður ekki nógu góðum og því er sjálfhætt á því.  Ég hef líka verið að prufa náttúrulegar aðferðir eins og Maca duft, sem hefur valdið auknum hjartsláttartruflunum hjá mér, sem dæmir það úr leik líka.  Ég er alveg að gefast upp á því að reyna að bæta lífsgæði mín.

Mér bárust gleðileg tíðindi í gær, en ég fékk símtal frá góðu fyrirtæki sem bauð mér vinnu frá og með Ágúst nk. Þetta tekur vissulega smá spennu af manni, og veitir eitthvað til að stefna að, þar sem ég þarf að undirbúa mig nokkuð vel.  Ég vil ekki segja neitt meira um þetta fyrr en ég er búinn að undirrita ráðningarsamning, sem ég er reyndar búinn að fá í hendurnar, en það er alltaf betra að grobba sig ekkert fyrr en leikurinn er búinn, eins og mér skilst að hafi gerst í fótboltanum fyrir stuttu.

Núna stendur eftir:
- Finna stað til að búa á
- Finna leikskóla fyrir Júlíu
- Soffía þarf að finna sér vinnu
- Finna hamingjuna við það að vera á Íslandi.
- Og svo auðvitað hvernig maður á að borga fyrir allt helvítis draslið.

En þetta er eitthvað sem mun leysast að sjálfu sér, eða svo til.

Hér hafa verið teknar margar myndir síðustu daga og mánuði.  Afrakstur þess má finna undir albúmunum Apríl og Maí

Hér er svo ein í lokin af þeim systrum