Þetta er líklega það lengsta sem hefur liðið á milli blogga hjá mér, og það á sér skýringar í ýmsu sem ég ætla mér ekki að fara tíunda hérna. En allavega þá er ótrúlega góðri helgi lokið og við tekinn tími sem verður erfiður en skemmtilegur engu að síður.
En svo ég reki nú í stuttu máli það sem hér hefur gerst síðan síðast....
Ég fór að sjá nýjustu Terminator myndina, hún var nokkuð góð, ég held samt að ég þurfi að sjá hana aftur þar sem ég dottaði örlítið undir lokin, ekki vegna leiðinda heldur ofþreytu. Ekki nóg með að ungfrúin vakni nokkrum sinnum á nóttu heldur þurftum við að vakna snemma þennan dag til að fara með hana í ungbarnaskoðun. Sú skoðun gekk mjög vel og læknirinn var ánægður með það hvað hún var sterk miðað við aldur. Hún stækkar hægt og rólega og verður líklegast engin risi frekar en foreldrar hennar :)
"Kórinn sem kallaði sig áður Skálholtskórinn" kom til Berlínar á fimmtudagin var og Þorvaldur kom svo á föstudeginum, það var því kátt í kotinu um helgina, að vanda fannst manni fólk stoppa allt of stutt, en svona er það! Maður getur ekki alltaf verið í fríi. Við drifum okkur á tónleika með "kórnum sem kallaði sig áður Skálholtskórinn" sem söng tvær messur ásamt kór Gethsemanekirkjunnar, það var svaka gaman að sitja og hlusta á þetta, báðar messurnar mjög flottar að mínu mati. Það er líka svakalega góður hljómburður í kirkjunni, þó ekki sé mjög auðvelt að syngja þar. Svo á mánudagskvöldið voru aðrir tónleikar og þar fékk ég að koma fram með kórnum og einvala liði hljóðfæraleikara, það heppnaðist bara mjög vel að mínu mati og ekki hægt annað en að vera bara ánægður.
Mæðgurnar og foreldrarnir flugu svo heim á þriðjudaginn og ég er einn eftir í kotinu með það stóra hlutverk að læra fyrir tónleika sem eru á Sunnudaginn kemur að loknu námskeiði hjá Janet og svo að sjálfsögðu þarf ég að læra af mikilli alvöru fyrir sumaróperuna sem hefst á föstudaginn næsta. Þá hefjast æfingar og mér sýnist að viðvera á æfingum sé 10-18 alla daga fram að frumsýningu sem er 27.júní.
Ég sakna orðið strax móður og dóttur, og það er skrítið að vera hérna einn og þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinum öðrum en sjálfum mér, en það er afskaplega þægilegt líka.
Nýjasta nýtt hjá ungfrúnni áður en hún hélt til Íslands er afar sérstakur svipur, og hann má sjá hér :)