Á þessu ári eru líka liðin 10 ár frá því að við Soffía kynntumst, og til stóð að hafa almennilegt kirkjubrúðkaup í tilefni þess en ekki er útlit fyrir að það verði að svo stöddu, allavega ekki í ár.
Lífið hefur verið ósköp áreynslulítið hér í Berlín síðan þær mæðgur snéru til Íslands, jafnvel hálf einmanalegt, þar sem hér vantar, auk þeirra, alla Íslendinga sem ég þekki og umgengst reglulega. Þó hefur mér tekist að syngja á einum tónleikum, auk þess að hanna efnisskrá og plakat fyrir tónleikana, fara á tónleika, læra, þvo þvotta og fara í ræktina. Framundan er svo að fara í undirleikstíma í dag og heimsækja sendráðsbústaðinn í tilefni dagsins, söngtíma á morgun og söngtíma á föstudaginn svo verður lagt af stað til Braunschweig þar sem æfingar munu hefjast á fullu fyrir Das Liebesverbot.
Nóg að gerast þó ekkert sé að gerast, alveg merkilegur andskoti það!
Þess er mikið saknað að sjá ekki þá litlu þroskast á ógnarhraða. Mér er sagt að hún sé farin að borða Cheerios og hlæja! Jæja ég hef þá bara margt að hlakka til þann 7.júlí.
Nóg um það hér er "Zueignung" eftir Richard Strauss sem ég söng núna um helgina.
Gleðilega þjóðhátíð öllsömul!
Til hamingju með brúðkaupsafmælið ! Finnst nú ekki vera svo langt síðan, en ótrúlegt hvað tíminn líður..
SvaraEyðaGóður flutningur að vanda :)
Það getur verið mál að þurfa að stjórna sér sjálfur.
SvaraEyðaBið auðvitað að heilsa sendiherranum, með þakklæti fyrir höfðinglegar móttökur.
Strauss virkaði.
Til hamingju með daginn í gær og daginn í dag.
SvaraEyðaKveðja
BKBen :)
Til hamingju kallinn og reyndar þið öll. Það er nóg að gera sé ég ;)
SvaraEyða