31.12.08

Áramótaannáll tenórsins

Það er alltaf gaman að líta aðeins til baka, nánar tiltekið um eitt ár eða svo og skoða hvað gerðist markvert á árinu.

Janúar
-Íbúð yfirgefin og heljarinnar tiltekt og búslóðarpakkning með hjálp góðra aðila
-Flogið út með "one-way ticket" (aldrei gert það áður)
-Borguðum svínmikið fyrir yfirvigt
-Bjuggum í svakalega flottri íbúð á besta stað.
-Bjuggum svo á hóteli í viku
-Fundum íbúð og gengum frá öllum pappírum

Febrúar
-Fluttum inn í íbúðina
-Skrúfuðum saman mikið magn af IKEA húsgögnum
-Ég átti afmæli
-Keyptum okkur hjól
-42" sjónvarpið mitt kom í hús
-Búslóðin okkar frá Íslandi kom loksins
-Ég var skráður í 2 áheyrnarprufur sem ég mætti ekki í sökum heilsuleysis.

Mars
-M&P komu í heimsókn ásamt G&B
-Staða evrunnar farin að valda hugarangri þá (105 í 124 á einum mánuði :))
-Ég fór á sérstakt mataræði sem entist ekki lengi.
-Ógurleg páskaferð var farin um gjörvalla evrópu.
-Fyrstu fréttir af væntanlegum erfingja létu á sér kræla
-Kristín vinkona Soffíu kom í heimsókn

April
-Skráði mig í líkamsræktarstöð
-Janet hækkar tíma ur 50 í 60 Evrur
-Innflutningspartý
-Söng fyrir Wagnerfélagið í Minden
-David Jones kom til Berlínar

Maí
-Tónleikar á Nordischer Klang hátíðinni
-Tónleikar í Finnland Zentrum
-Fór í fyrsta skipti á Jazzbar og það var gaman
-Hafnaði því að syngja flókið verk með 2 daga fyrirvara
-Herdís vinkona Soffíu kom svo í heimsókn
-Ég endurhannaði heimasíðuna mína og setti í loftið
-Og svo var að sjálfsögðu farið til Rhodos

Júní
-Opinber tilkynning um erfingjann
-Sísí, Gurra og Viðar Logi kíktu í heimsókn
-Sagði mig úr þjóðkirkjunni
-Farið var til Íslands
-Fékk svakalegt ofnæmi í flugvélinni
-Systir útskrifaðist og góð veisla var haldin
-Gifti mig
-Fór í fyrsta tíma hjá Reiner Goldberg
-Horfði á EM í fótbolta

Júlí
-Klósettkassinn fór að leka, það var þó lagað
-Allt of mikið af æfingum fyrir Die Fledermaus
-Tábrotnaði
-20 vikna sónar, líkur á meðgöngueitrun
-Frumsýning Fledermaus
-Fyrsta skipti að skoða "barnadót"
-Vottorð frá TR bárust
-BKBen mætti á svæðið
-Fórum að sjá Obama
-Harður diskur hrundi hjá mér, en ég bjargaði því
-Fórum á "ströndina" með BKBen
-Fór til Austurríkis á námskeið

Ágúst
-Lofer í Austurríki 
-Söng Canio í Paglíacci og skemmti mér vel með góðu fólki
-Hitti Grace Bumbry
-EOSinn kom í hús
-Magasýrutöflur teknar í tollinum
-Sá Dark Knight í Sony Center

September
-Hitti Johan Botha
-Fórum til Dresden
-Enn vandamál með tryggingar, en það leystist á endanum
-Sótti um námslán
-Fer í fyrsta tímann hjá Wolfgang Millgramm
-Þröstur og Una koma í heimsókn

Október
-Söng á tónleikum
-Gaf fyrstu eiginhandaráritunina
-Allt hrynur á Íslandi
-Næ að redda peningum sem ég átti í UK
-Partý hjá Janet
-Fórum á ljósahátíð í Berlín
-Vöfflukaffi og góðir gestir á Kurfürsten
-Fyrstu bleyjur keyptar

Nóvember
-Skráðum okkur sem gift hér í Berlín
-David Jones kom aftur til Berlínar
-Áheyrnarprufa fyrir BBC Singer of The World
-Fékk uppsagnarbréf rétt fyrir mánaðarmót

Desember
-Prinsessa fæddist
-Áheyrnarprufa fyrir StaatsOper
-Áheyrnarprufa fyrir ZBF
-Tengdó koma í heimsókn
-M&P koma í heimsókn
-Farið á jólamarkað
-Skötuveisla
-Jól með tilheyrandi væli
-Væl, væl væl

Svona var nú þetta viðburðaríka ár í lífi tenórsins.

Þakka ykkur öllum sem hafið fylgst með, gleðiríkt nýtt ár til ykkar allra.

Guð blessi Ísland.

30.12.08

Til hamingju með daginn



Sá gamli heldur nú hátíðlegan afmælisdag, eða þann fyrsta síðan hann varð afi :)  Ég límdi hér saman tvær ólíkar myndir sem ná líklega yfir um 30 ára tímabil.  Sá gamli hefur elst vel og sendum við honum afmælisóskir héðan frá Berlín.

Héðan er annars allt gott að frétta, í gær var rólegur dagur í þeim skilningi að hlutfallslega hefur líklega verið minnst grenjað.  Þó var mikið vælt og sú litla sefur eiginlega ekki öðruvísi en í fanginu á mömmu eða pabba.  Það er frekar þreytandi, en betra en að hafa hana grenjandi.   Ekki er ljóst hvað olli þessum umskiptum, en mjólkurvöruneysla mömmunnar gæti verið faktor.  Ég fór allavega með hana í hefðbundinn pabba-dóttur göngutúr um kl 2 eins og ég hef gert undanfarnar nætur.  Líklega er maður að skapa sér eitthvað víti með þessu, en mér er eiginlega alveg skítsama, svo lengi sem maður fær frið.  Soffía fékk allavega að sofa yfir 6 tíma og ég í kjölfarið eitthvað svipað.  Það var fínt.    Hef ekki upplifað það að sofa fram yfir kl 16 á daginn síðan ég var í menntaskóla, og það er nú langt síðan, en það gerðist í morgun, ó þvílík skelfing að elska þig :)

Annars er allt gott að frétta héðan fyrir utan það eina sem kemst að þessa dagna.  Ég er búinn að vera ná að horfa á alla sjónvarpsþætti sem hér eru búnir að vera safnast upp.  Ég hef vissar áhyggjur af því að þetta verði nú ekki eins gaman þegar ég byrja að vinna aftur á nýja árinu, en það er slagur sem ég tek þegar að því kemur.    

Hér á heimilinu þarf nú aðeins að skoða neyslu matvæla með tilliti til mjólkuóþols, sem við gefum okkur að sé málið.  Ég stóð frammi fyrir því í gærkvöldi að vera elda kjöt og meðþví, en hvernig gerir maður sósu án smjörs og rjóma....??!?!?  Hmm..... það er nú bara hreint ekki svo flókið, maður bara sleppir smjöri og rjóma!  :)   Allaveg notaðist ég bara við hefðbundna uppskrift og sleppti áðurnefndu, það virkaði bara svona líka vel.  Sauð upp sósuna sjálfur frá grunni, það er hrikalega gaman, svona rétt eins og henda í humarsúpu, sem ég tel nú að sé orðin ákveðin sérgrein hjá mér, ætla að henda í eina allavega þegar við komum til Íslands í febrúar.

Af söngmálum er það að frétta að mér var að berast inn á borð að taka þátt í tónleikum sem marka eiga Wannsee fundinn mikla sem fór fram 20.janúar 1942 hérna í Berlín. EN fyrir þá sem ekki þekkja það, þá má segja að þar hafi hafist það sem kallað var "Die Endlösung", eða "lausnin á gyðingavandanum".   Nú..... þetta er ss eitthvað próject sem ég komst inn á í gegnum Janet Williams og á að vera samstarfsverkefni Ísrael og þýskalands, ekki skil ég alveg afherju ég er í þessu, en svona er það nú bara :)  Þetta er eitthvað hrikalega framúrstefnulegt, sem er nú ekki mitt "cup of tea", en svona er það nú bara ég er loksins í þeirri aðstöðu að geta ekki alveg sagt nei við verkefnum.  Það verður vissulega áhugavert að sjá hvað þetta ber í skauti sér.  Ég leit svo á að verkefnin felast í "exposure" eins og staðan er í dag.

Jæja, sú sem allt vald hefur á heimilunu kallar og ég þarf að bregðast við því, með göngutúr, klukkan er jú að nálgast 2.........  Góða nótt og til hamingju með daginn afi :)

26.12.08

Blogg á annan

Ekki er laust við að maður hafi misst þolinmæði í nótt, en auðvitað þýðir það ekki.  Það veit hver heilvita maður.  

Við erum semsagt held ég búin að prufa allt sem við höfum aðgang að hérna, til að róa þá litlu.
-Minifom
-Dicycloverine Hydrochlorid
-ColicCalm (hómópataformúlu)
-Jurtate
-Svæðanudd
-Shiatsu
-Þrýstipunktanudd
-Heilun og reiki.

Hún sofnar jú alltaf á endanum, en er það til marks um að eitthvað af þessu sé að virka.... nei held ekki.    Það sem hefur virkað best hingað til er þessi "burðarpoki" sem ljósmóðirin lánaði okkur.   Sem er auðvitað gott og blessað.  ColicCalm virðist virka í nokkrar mínútur eftir að það hefur verið gefið, en svo fer allt í háaloft aftur.  Hér er því eiginlega kominn svona doði í mann og maður þarf að fara gera það sem margir barnalæknar tala um, en það er einfaldlega að láta hana bara gráta!!  Leggja hana bara frá sér í smá stund á meðan maður er að ná geðheilsunni aftur, svo tekur maður hana og huggar í næstu umferð.  Þetta gerði ég í nótt og gaf góða raun.  Láta 
hana bara afskiptalausa í svona 5-10 mín og taka hana svo upp og gefa snuð.  Þá steinsofnaði hún allavega.  Það má líklegast rífast eitthvað um þessar aðferðir, en það er til lítils, þar sem svona er þetta bara.

Ég þakka svo falleg orð í kommentakerfinu hjá mér, maður er að stíga fyrstu skrefin í þessu barnastandi og það er gaman og gott að vita að maður er ekki einn í þessu.

Rakst annars á gamla góða mynd úr Kvistholti sem fær mig alltaf til að brosa, ég birti hana hér fyrir neðan og vona að fólk hafi jafn gaman af henni og ég :)

Svo eru að sjálfsögðu komnar inn JÓLAMYNDIR héðan frá Kurfürsten.

Blogg um miðja nótt

Þetta er í raun hætt að vera sniðugt.   Við Soffía erum nánast hætt að hittast, samt búum við í sömu íbúð.  Sú litla fer í gang um og eftir kl 22 á kvöldin og er vakandi til c.a 4-5.  Ég hef síðustu kvöld röllt með hana hana um nágrenið og þegar ég kem heim sefur hún eins og engill alveg fram til kl 5. En í kvöld fór ég 2svar með hana út og ekkert virkaði, það endaðu nú bara með að ég lét hana grenja þangað til að hún örmagnaðist og sofnaði í nokkrar mínútur.  Þetta er síður en svo skemmtilegt, og ég óska það ekki nokkrum manni að eignast barn, þannig er bara staðan í dag, þó ég viti vel að það birtir um síðir, þá hjálpar það ekki nokkrum mannig að vita það meðan gengið er í gegnum eitthvða svona.  Að eiga ungabarn er ekki skemmtilegt á nokkurn einasta hátt!  Þannig er það bara.

Jæja "hún" er vöknuð, set inn villandi myndir af ástandinu seinnipartinn í dag.

24.12.08

Hátíðarblogg

Hér er búið að leggja mikla vinnu í jólamat og sú litla hefur verið að mestu til friðs, en ekki öðruvísi en að vera bundin framan á pabba sinn í allan dag.  Þetta er svosem í lagi svo lengi sem hún hættir að grenja.  Það var því ekki tími fyrir neitt jólabað hjá heimilisföðurnum að þessu sinni.  

Jólamatur heppnaðist með miklum ágætum og er varla hægt að segja annað en maður sé eilítið stoltur af árangrinum.  Nú er reyndar upphafið vælustig sem mun þarfnast vöku í nótt, ekki það að maður hafi ekki verið undir það búinn, en þetta eru ekki draumajólin, það er alveg öruggt!!  

EN allavega, takk fyrir lesturinn á árinu, og vonandi hefur maður eitthvað meira og merkilegt að segja á nýju ári.

Bestu kveðjur frá okkur fjölskyldunni á Kurfürstenstrasse 75

20.12.08

Að gera það sem maður ekki ætlaði sér

Það kom að þeim tímapunkti þar sem ég þurfti að játa mig sigraðan fyrir öflum náttúrunnar.  Júlía er búin að versna og versna síðustu daga, og þetta var komið á það stig að hún var lítið sem ekkert búin að drekka í næstum sólarhring.  Það var því tekin sú líðræðislega ákvörðun að gefa henni örlítið af lyfinu sem við ætluðum ekki að gefa, fyrr skyldi annað fullreynt.   Við erum ss búin að reyna nudd, jurtate, Minifom og ég veit ekki hvað og hvað.   En Dicycloverine virkaði, og það besta við það er að við notðum bara mjög lítið. (Takk Þröstur fyrir að benda okkur á þetta).  Ég er samt búinn að panta nokkuð vinsælt hómópatalyf sem ég ætla að nota ef það kemur fyrir jól, það heitir ColicCalm og er auðvitað frá Bandaríkjunum, það er talað um 90% árangur með því og ég er frekar til í að nota það en Dicyclóið, ef ég hef val.

Ég hentist í tíma í dag hjá Wolfgang, og var súper ánægður með hann að venju, þetta er snillingur, ég hef sagt það áður og segi það enn.  Við erum búin að kaupa jólatré og það er líklega um 2m hátt, og kostaði okkur aðeins 10 evrur, sem er vel sloppið, verst að við þurfum að eyða duglega í jólaskraut á það :)  Hefðum átt að hugsa þetta aðeins áður en við keyptum :)   Ég er annars bara kominn í jólafrí og hlakka til að hætta hugsa um vinnuna og söngin í bili.  Maður hefur  gott af því að taka sér smá pásu.

Nýjar myndir af Júlíu eru komnar inn á myndasvæðið fyrir þá sem eru enn áhugasamir um slíkt.

18.12.08

Að blogga um síðustu daga..

Hvar skal byrja..... hm jú kannski er best að byrja bara á henni Júlíu.  Hún er óvær og hefur verið það sérstaklega mikið síðustu 2-3 daga (ekki alveg viss hvaða dagur er lengur).  Við erum með sterkt lyf sem skiptist í krampastillandi og verkjastillindi, sem ekki er mælt með að gefa börnum undir 6 mánaða.  Þetta hefur þó verið gefið með góðri raun hér og þar.  EN þetta lyf kannast lyfjafræðingar ekki einusini við hérna í þýskalandi.  Ljósmóðirin segir að það sé eflaust ekki góð hugmynd að gefa þetta, en ef við verðum gjörsamlega búin á því þá ættum við kannski að prufa. Ég er ekki tilbúinn að gefa henni þetta alveg strax, þó mig dauðlangi til þess.  Ég var að byrja á að reyna að gefa henni Te í dag, sem inniheldur, kamillu, fennel, anís og eitthvað meira sérsniðið fyrir colic, sem er ekki einusinni víst að hún sé með.   Hún virðist meira vera að gráta núna af því að hún er svöng...!!!  Það er svosem hugsanlegt, en sjáum hvað teið gerir, það getur tekið 12 tíma fyrir svona lagað að virka.  Ég er einnig búinn að panta hómópatalyf á netinu og það er spurning hvort það geri eitthvað.  Ég vil gera allt annað en að setja greyið á lyf.
Ég hentist í bíó á þrifjudagskvöld, fyrir valinu varð "The day the earth stood still", hún er ekkert spes og ég mæli ekkert sérstaklega með henni.  

Ég er búinn að forvitnast aðeins um áheyrnarprufur á nýju ári, og þann 27.janúar er ég semsagt að syngja fyrir agenta hjá ZBF.   Svo 26.febrúar er ég að syngja fyrir lítið hús rétt utan við Berlín, í litlum bæ sem heitir Neustrelitz.  Þetta er allt voða spennandi.  Ég þarf svo að senda inn DVD með upptöku af mér fyrir KammerOper Schloss Rheinsberg, sem er árlegur viðburður, og veikindi orsökuðu það að ég gat ekki sungið fyrir þau fyrr á þessu ári.  Þetta verður eflaust hrikalega spennandi.  Nú svo erum við á leið heim í febrúar, og verðum í 2 vikur, m.a til að skýra þá litlu og opinbera millinafnið hennar.  Eins ætla ég að syngja fyrir Íslensku Óperuna, og sjá hvort þau vilji eitthvað með mig hafa :)

Gunnar og Erla eru að kíkja til okkar í kaffi núna eftir smá stund.  Vona að sú litla verði til friðs : 
svo er ein mynd í lokin.

15.12.08

Stóra ömmu og afa vikan

Jæja, þá eru foreldarnir farnir á flugvöllinn.  Hér er búið að vera líf og fjör síðustu viku, með fullt hús af fólki.  Júlía hefur verið frekar óvær og virtist vera að taka einhverjum framförum á Minifominu, en það er eitthvað breytast aftur, því eru skemmtilegar andvökunætur framundan og með vinnu er það svona eitthvað sem væri gaman að sleppa við.  En svona er það nú bara.

Hér var farið á jólamarkað, og smakkaðar Thüringer Wurst, sem eiga að vera með þeim upprunalegustu sem eru til.  Þær eru allavega svakalega góðar og alvega þess virði.  Þó eru þær nú ekki eins spes ef maður kaupir þær og eldar sjálfur, en alveg ætar.  Jólamarkaðir eru algerlega troðnir og ánægjan við að fara og skoða er nákvæmlega engin, sem er alger skömm.  Þetta á að vera eitthvað svona skemmtilegt jólaupplifelsi en er í staðinn ergelsi á því að komast ekkert áfram og sjá ekki neitt fyrir fólki.  Já maður þarf eitthvað að hugsa sig um ef maður ætlar að mæta á svona markað.

Hér er annars lítið að gerasta framundan, bara reyna að hvíla sig sem mest maður getur á milli þess sem maður reynir að vinna eitthvað þessa síðust daga fram að jólum.  Ég fékk reyndar hringinu frá Burgeramtinum hérna í Þýskalandi, ég hefði svosem getað sagt mér það fyrirfram, en ég verð að viðurkenna að mig grunaði að ég fengi þetta símal.   Málið snérist semsagt um það að spyrja hvort eftirnafnið hennar væri rétt skrifað, því ég heiti jú Egill, en hún verður Egilsdóttir, og þeim fannst svona að það ætti að vera Egillsdóttir, sem er svosem ekkert ólógískt, en svona er það bara ekki á Íslandi, og það var bara ekkert mál, þeir voru bara að doubletékka.

Jæja best að fara hvíla sig, ætlaði að hendast á tónleika hjá Dísu vinkonu minni hérna í kvöld en er bara svo gjörsamlega búinn á því núna að ég kemst ekki, þvímiður :(

Ég lík svo þessu bloggi á "peace out" frá Júlíu Egilsdóttur, sem hefur þetta væntanlega frá frænku sinni á gullskónum.
 
Og að sjálfsögðu eru komnar nýjar myndir!!!!

13.12.08

Júlía ....... Egilsdóttir skal hún heita

Við höfum ákveðið að birta hérna aðalafn dóttur okkar.  En það er nafn sem við höfðum ákveðið nokkru áður.   Við erum líka með millinafn, og til að viðhalda nú einhverri "spennu" þegar hún verður skírð, þá mun það koma á óvart :)

Júlía litla hefur verið talsvert óvær síðustu daga, og lítið er því um svefn á okkur umsjónaraðilunum.  Tengdó eru nýfarin heim og m&p mætt á svæðið, það er voða gaman að hitta fólkið sitt, en maður er kannski alveg nógu úthvíldur.  Þegar þetta er skrifað eru þau úti í göngutúr með barnið og Soffía sofandi.  Ég er hinsvegar á leiðinni í tíma hjá títtnefndum Wolfgang.

Við erum búin að fá fullt af góðum gjöfum frá góðu fólki, og langar mig að nota þennan vettvang til að koma á framfæri MIKLUM þökkum til ykkar allra.  

Foreldrarnir komu færandi hendi og við erum nú tilbúin í jólahaldið, höfum allt til alls.  Þau komu líka með lyfin Minifom og Dicycloverine Chlordide, til að hjálpa í baráttunni við óværuna.   Minifomið viriðist ekki vera að skila tilætluðum árangri en það er rétt að gefa því séns í þessa 2-3  daga sem er talað um að maður eigi að gefa það.   Ef það virkar ekki þá neyðumst við til að prufa að gefa hitt,  sem ég er ekki mikið hrifin af, en hvað getur maður gert..... það er ekki boðlegt að horfa upp á barnið kveljast svona, og við gerum lítið gagn örmagna af þreytu, þannig að þarna ættu að leysast tvær flugur í einu höggi.  Við erum búin að sýna ljósmóðurinni okkar þetta og hún telur að þetta sé í lagi, en ætlar að rannsaka aðeins Dicycloið.

Jæja meira var það ekki í bili.   Á mánudag/þriðjudag koma svo FULLT af nýjum myndum.  Stay tuned.

10.12.08

Að kúka eða ekki kúka.......

..ég man eftir að hafa lesið á einhverjum barna síðum að eitt af því sem breytist, sem maður hélt að myndi aldrei breytast væri það að maður færi allt í einu að tala um kúk og gleðjast yfir því...!!?!?!

Ég taldi slíkt vera ómögulegt.... þangað til í gærkvöldi.   EN málið er nú ekki alveg svo einfallt, auðvitað gleðst maður ekki yfir kúk, heldur því að að hlutirnir séu farnir að virka eðlilega.   Ástæðan fyrir óværu sem heldur vöku fyrir þreyttum foreldrum er að sjálfsögðu meltingin, og þegar hún byrjar að virka eðlilega, hvað gerist þá, jú þá kemur kúkur.  Þetta hljómar allt
afskaplega einfallt, en þessi litlu grey eiga í erfiðleikum með þetta stundum, og þá lenda foreldrarnir í andvökum og veseni, sem er ekki gaman!   Því urðu fagnaðar fundir í nótt um kl 4 þegar það kom í ljós að sú littla hafði loksins sýnt fram á það að hún er að byrja að melta.  En hvað það tekur langan tíma að komast í regluástand er svo kannski annað mál.

Í gær var svo farið í bíltúr með tengdó um Berlín, það er náttúrulega búið að skreyta allt hérna núna og jólamarkaðir eru greinilega málið, það er alveg svakalega mikið lagt í þetta og það verður gaman að kíkja á einn svona á næstu dögum.   Sú litla var með í för og var alveg pollróleg allan tímann, þangað til að 5 mínútur voru í heimkomu, þá fór hún að verða svöng, en þetta gekk furðulega vel.

Nú á morgun er svo fyrsta læknisheimsóknin, og við erum búin að finna barnalækna ekki langt frá þar sem við búum.  Einnig þarf ég að fara með á morgun Geburtsanzeige á hin víðfræga Burgeramt hérna í Schöneberg.   Vandamálið sem við Soffía stöndum fyrir í dag og fyrir hádegi á morgun er að ákveða endanlegt nafn.  Við erum komin með eitt aðalnafn sem er alveg harðákveðið, og nú stendur valið á milli þess að hafa eitt ákveðið millinafn eða annað fornafn, með aðalnafninu sem millinafn.  Þetta þurfum við að hafa alveg ákveðið á pappírunum hérna, því þjóðskrá skráir nafnið eins og það er gefið út hérna.  Við þurfum að borga fyrir að láta breyta þessu heima síðar ef því er að skipta, veit reyndar ekki hversu mikið, en það kostar eitthvað.

Hér er bara stuð og ég læt eina mynd fylgja með í lokin fyrir þá sem hafa áhuga á því.

9.12.08

Dagarnir líða og mennirnir með

Þá er lokið áheyrnarprufu fyrir ZBF hérna í Berlín, þau voru voða hrifin.  Og vilja fá mig í sérstaka audition 27.janúar fyrir eitthvað project sem er að fara í gang 26.febrúar að ég held.  Það er gott, en það er auðvitað soldið langt í þetta alltsaman og maður veit svosem ekkert hvernig project þetta er.

Fyrir þá sem ekki vita hvað ZBF er þá er það atvinnumiðlun listamanna hérna í Berlín, rekin af þýska ríkinu.  Þetta er á sama stað og almenn atvinnumiðlun.  Þetta er því gott tækifæri að syngja fyrir þau, þar sem það kostar ekkert og maður er ekki að keppa við neinn.  Ég er allavega að fara undirbúa Don José úr Carmen.  Hversu mikið veit ég ekki, en allavega eru þau búin að óska eftir blóma aríunni víðfrægu, ég er því að fara hafast handa við að fullkomna hana.  Er sem betur fer búinn að eyða miklu púðri í að læra hana og nú þarf ég að nýta það, sem er gott.

Tengdó eru komin, færandi hendi að sjálfsögðu, veit ekki hvernig þau komust með allt þetta dót með sér.  Þar á meðal er skata sem ég ætla mér að borða á Þoddlák.   Hér taka nú við aðeins afslappaðri dagar held ég, þar sem ég er ekki að syngja meira í desember.

Littla ungfrúin er að versna og versna af magaverkjum og er ég á leið í apótekið að ath hvort ekki séu til einhver góð hómópatalyf gegn þessu, veit að þau eru til, en spurning hvort það sé til í apótekum hér.  Hún hefur semsagt verið að versna talsvert undanfarna daga og líður greinilega ekki nógu vel.  Það er auðvitað erfitt og um leið mjög frústrerandi að horfa upp á hana kveljast svona og get ekkert gert, því er ég farinn á stúfana.  Því allt skal gert til að létta henni verkina.

Meira var það nú ekki í bili..... verið þið sæl.

8.12.08

Það er gott að hlæja á þessum síðustu og verstu

Þetta er of fyndið.  Reyndar er fyrra myndbandið ekkert svo fyndið, svosem fer eftir því hvað maður er illa innrættur, en það seinna er algerlega ruglað, sérstaklega fyrir aðdáendur Family Guy.

Fyrst að horfa á þetta:
http://www.youtube.com/watch?v=KyJWtWDXnOA&feature=related

Að degi hinar rísandi sólar

Í gær hentist ég í áheyrnarprufu í StaatOper, ég tel að það hafi gengið bara bærilega.  Þó veit ég að þetta var ekki alveg eins fullkomið og ég hefði viljað.

Þetta hófst semsagt á því að ég var boðaður í áheyrnarprufu á bilinu 18-20!, en ég á átti að mæta og skrá mig kl 16:30.   Auk þess fékk ég að heyra að þau væru um 30 mín á eftir áætlun.  Þetta þýddi það að ég þurfti í raun ekkert að mæta þarna fyrr en um 18:30.  Ég fór því bara í Dussmann(stóra plötu og bókabúð), og eyddi drjúgum tíma þar, hentist svo á kaffihús og leit lauslega yfir nóturnar mínar.  Svo þegar ég kom til baka fékk ég nokkrar mínútur með píanóleikaranum, sem var bara fínn.  Nú svo kom að prufunni 10 mínútur í 20.  Ég gekk inn og þau voru 3 sem voru að horfa.   Ég byrjaði á að syngja "se di lauri" úr Mitridate eftir Mozart, það hefði hugsanlega getað gengið betur, en það gekk stórslysalaust.  Svo eyddu þau smá tíma í að ákveða hvað ég ætti nú að syngja næst, og þau völdu alls ekki það sem ég átti von á, heldur völdu þau "La donna e mobile"!!  Sem var bara fínt, því gjörsamlega negldi það eins vel og ég hef nokkrusinni gert.  Ég geng því furðusáttur útúr þessari áheyrnarprufu.   Ég fæ svo að vita í dag ef ég komst áfram til að syngja á stórasviðinu næsta laugardag.  Ég hendi því hérna inn um leið og ég frétti eitthvað, ef ekki..... nú þá komst ég ekki áfram :)

Í gærkvöldi komu hér góðir gestir, og sú litla var nokkuð góð framanaf, en svo upphófst gráturinn mikli.   Við erum að fara kaupa snuð handa henni í dag, og vonandi dregur það eitthvað úr óróleika við það.   Nú góðu gestirnir komu færandi hendi.  Það vildi svo skemmtilega til að konan hans Gunnars, Erla, átti einmitt afmæli sama dag og sú litla fæddist.  Hún var því búinn að baka og útbúa dýrindis marens köku með súkkulaðu.....slurp, eins komu þau með brauðrétt.  Einar kom með og svo kom Patricía líka.  Þetta var skemmtilegt kvöld að vanda.  Og ekki skemmdi nú fyrir fáránlegur dugnaður hennar Erlu en hún tók það að sér að vaska upp eftir herlegheitin.   Bestu þakkir fyrir það Erla :)

Tengdó lenda svo í kvöld og erum við búinn að taka bílaleigubíl og mun ég sækja þau útá völl. Svo koma mínir foreldrar á föstudaginn, með sömu vél og tengdó fara til baka.   Við þurfum að fá fæðingarskírteini hérna í þessari viku og fara með barnið í U2 skoðun í vikunni, þannig að það er nóg að gera næstu daga. 

****Fékk póst um að ég hefði ekki komist áfram í Staats, jæja lífið heldur áfram****

7.12.08

Nýjar myndir,

Ég set svo inn link á myndir hérna vinstramegin á síðuna svo það sé sem styst að fara.

6.12.08

Fyrsti dagurinn búinn

Fyrst langar mig nú að þakka öllum sem sendu okkur hamingjuóskir í kommentakerfinu, slíkt er alveg stórkostlegt og reyndar alveg ótrúlegt að sjá  hvað margir eru búnir að vera fylgjast með þessu!!

Hér er nú ekkert upplausnarástand, og við öll frekar róleg, sem er gott.  En það er einhver óværð í litlu, vegna þess að hún er bara nýbyrjuð að borða, það tekur smá tíma fyrir meltingarkerfið að taka við sér almennilega.  En það ætti að líða hjá á morgun skilst okkur.   Svo eru nú einhverjir þurrkublettir á höndum og fótum sem valda því að lítil sár hafa myndast, en við erum nú að bera á þetta hina hrikalega góðu calendula olíu, sem svínvirkar.  Þegar ég var að læra til nuddara, var þetta töfraolían sem var notuð á fólk með slæma húð osfrv, an allavega hún er allavega súperdugleg að borða og vera róleg, þar með er helstu áhyggjum dagsins lokið.

Við erum búin að opna nýja myndasíðu sem verður sérstaklega notuð til þess að halda utan um myndir af ungfrúnni, svo að þeir sem ekki komast í heimsókn, geti allavega verið aðeins með okkur í þessu :)

Nú svo var ég að misreikna aðeins áheyrnarprufuna hjá Staats oper :)  Hún er víst á morgun, en ekki í dag.... sem er eiginlega bara fínt, þar sem ég er ekki alveg tilbúinn í dag :)

NÝJA MYNDASÍÐAN er á slóðinni: 
http://picasaweb.google.com/egilsdaughter

5.12.08

Eflaust eru einhverjir búnir að bíða eftir þessu bloggi :)

En loksins er það búið, loksins er það byrjað.

Í nótt kl 2:24 kom í heiminn lítil stúlka, 3595 gr að þyngd eða rétt rúmar 14Merkur(fyrir þá sem verða endilega að hafa það í gömlu gullvigtinni sem er bara notuð á Íslandi) 51.cm á lengd er stúlkan, og hin rólegasta miðað við allt.  Hjartsláttur barnsins í lok fæðingar hélst í stöðugum 130 slögum, sem er bara nokkuð gott, og virðist þetta jafnaðargeð bara fylgja henni...... allavega enn sem komið er :)

Soffía stóð sig eins og hetja og kláraði dæmið á rétt rúmum 4 tímum, sem er nú bara nokkuð gott held ég, maður var farinn að búa sig undir miklu meiri tíma.   Hún er allavega hress og kát, en nokkuð þreytt eins og gefur að skilja.   Fæðinging fór fram í vatni, sem var nú ekki alveg eitthvað sem við vorum beint búin að ákveða, en mér skilst að það hafi munað mjög miklu fyrir Soffíu.   Þó vatnið dragi ekki úr verkjum, þá hjálpar það mikið til við slökun milli verkja og er þægilegri fyrir barnið..... það segja allavega ljósmæður :) 

Flestir eru nú líklegast búnir að frétta þetta á einn eða annan hátt, en hér kemur semsagt "opinbera" yfirlýsingin, ásamt mynd af ungfrúnni sem erfa mun auðæfin.
Stoltur faðir er sá sem bloggar núna.

4.12.08

Að standa og bjóða aðstoð sína en geta lítið gert.

Þetta er ekki það auðveldasta, að horfa upp á konuna sína þurfa að upplifa, nánast eina, það sem í garð nú gengur.  Þetta er semsagt byrjað og við á leið upp í FERA.   Hversu langan tíma það mun svo taka er afstætt held ég.

Ég  er að upplifa mig, í fyrstaskipti á æfinni, eins og illagerður hlutur sem hefur ekki tilgang í þessu verki, þó ég viti reyndar vel að það er ekki rétt.  Hlutverkið, þó lítið sé, er í raun risastórt. 

Það er skrítið að vera nánast áhorfandi að þessu öllusaman, það er skrítið að einbeita sér svona sterkt, maður ætti að nota það í söngnum....... kannski ég fari nú að gera það loksins :)

Allavega, frúin kvelst og ég blogga.... er það eðlilegt??  hver veit nema sá sem allt veit.   Ég er allavega tilbúinn og nú leggjum við af stað.  Ég er nokkuð öruggur um að þetta gerist nú í nótt, þ.e 5.desember 2008 kreppuveturinn mikla, fæðist sá sem mun erfa ríkidæmi Egils og Soffíu, krónprins/essan kemur til að frelsa oss frá illu..... hvað sem það nú þýðir :)

Hugsanir verðandi föðurs hafa nú tekið yfirhöndina..........

Í næsta bloggi verð ég titlaður faðir Egill.

Nýja barnið....

...er ekki enn komið í heiminn :)

Vorum semsagt að koma úr seinna tékki í dag og þar eru samdrættir orðnir ansi þéttir, þó þeir séu ekki sterkir ennþá, en það ber vott um það að nú styttist ískyggilega í að eitthvað gerist. 
Ljósmóðirin segir að það kæmi henni ekki á óvart þó þetta fari af stað seint í kvöld eða nótt.

Ef ekki þá er það bara mæta með orkuna og góða skapið upp í FERA í fyrramálið, þar sem frúnni verður gefið efni sem örvar framleiðslu oxytócíns á 4 tíma fresti þangað til barnið fæðist.   Ég mæti allavega með nóturnar mínar og lappann, og svo þarf maður bara að eyða tímanum í að horfa á þætti og læra fyrir laugardag.

Birti hérna eina mynd frá því rétt áðan, þegar ljósmóðirn var að stinga nálum í Soffíu til að hjálpa með samdrætti og verki, á meðan hún var í cardiotocograph.  Ekki bjóst ég við að sjá S í nálarstungum, en svona er Berlín í dag.
 

Upp á deild og heim aftur

Hentumst upp í FERA í morgun, þar sem hormóninu prostaglandín var beitt til að fá eitthvað til að gerast.  Það fór eitthvað í gang við það, en hvort það sé nóg á svo eftir að koma í ljós.

Við erum því komin heim núna aftur til að slaka á og undirbúa kvöldið/nóttina/morgundaginn. Eigum að mæta uppeftir aftur kl 18.  

meira síðar......


2.12.08

Stressið magnast

Eins og lesendur þessarar síðu átta sig líklegast á þá er enn ekkert barn komið í heiminn, en það er væntanlegt.  Átætlaður komutími er fimmtudagur og í allrasíðasta lagi föstudagur.   Þetta er svosem ágætt, nema kannski fyrir þá staðreynd að ég er að fara í mjög stóra audition á laugardaginn.  Það verður ekki áhugavert að mæta lítið sofin í þá þrekraun!   EN eins og ég hef áður sagt, maður verður bara að reyna að gera þetta eins og best getur orðið miðað við aldur og fyrri störf.

Í gærkvöldi skellti ég mér á lokakvöld í keppni í klassískum söng hérna í þýskalandi.  Þessi keppni er eingöngu fyrir Þjóðverja, og er sú stærsta sinnar tegundar í þýskalandi.  Þarna keppa nemendur allastaðar af landinu.   Keppnin fór fram í Deutsche Oper, og við sátum nánast aftast og efst í húsinu, en sáum vel.  Þegar maður situr svona aftarlega sér maður í raun hversu vel söngvarar berast, sem er nú eitt af því allra mikilvægasta sem söngvari þarf að hafa.   Og viti menn, það voru tveir söngvarar þarna sem bárust eitthvað í þessu stóra óperuhúsi, annarsvegar var stelpa sem ég söng með í Fledermaus um daginn og hinsvegar var það sú sem vann, og hún átti það svo sannarlega skilið, fín rödd, þó ekkert sérstaklega spennandi, en mjög fín.   Auðvitað er það ákveðin standard að komast í svona keppni, það ber vott um vinnusemi og mikla tilfinningu fyrir tónlist og flutningi hennar, sem flestir keppenda höfðu gott vald á.   Strákarnir í keppninni voru sérstaklega illa til fara raddlega og ég skil bara ekkert í því hvernig í ósköpunum þessir menn komust áfram!    Ég get reyndar eftir þessa orðahríð bara vonað að mín rödd muni berast í komandi áheyrnarprufum, og að þetta sé nógu gott hjá mér.  Ég set sjálfan mig að sjálfsögðu á sama standard og ég ætlast til að af öðrum sem ég horfi á, annað væri bara fásinna. Mér skils á fólki sem þekkir til að þetta sé hin svokallaði "þýski skóli", þar sem mikil áhersla er lögð á tónlistarlega hæfni og ákveðna fegurð, sem virðst vera fólgin í því að syngja voðalega létt og veikt, og skv því sem ég sá í gær virkar það bara alls ekki!!   Það er mikilvægara að leyfa hverri rödd að vera eins og hún er og reyna að ná fram þessu svokallaða "klangi", eða fókus í röddinni.  Ef þetta er ekki til staðar, þá skiptir bara engu máli hvað þú ert með fallega rödd, ef þú berst ekki yfir hljómsveit, þá þarftu eitthvað að endurskoða.   Ég ítreka, ég veit ekkert hvort ég get þetta sjálfur en ég veit að það sem ég sá í gær var ekki rétt.  Og endaði á að vera mjög óspennandi fyrir vikið.

Jæja, þá er að halda áfram daglegu lífi, fer í tíma hjá Janet seinnipartinn, þann fyrsta  í rúmar 3 vikur.