28.9.08

Veður var með besta móti

Þá er ég nýbúinn að skutla Unu og Þresti á völlinn, ferðin var hin ánægjulegasta og gaman að hitta hann Þröst gamla aftur eftir þennan langa tíma. Farið var á alla túrista staðina og kannski aðeins meira, þar sem ekki allir hafa gaman af þvi að sjá aðsetur íslenska sendiráðsins, en við keyrðum aðeins þar framhjá :) Veðrið lék við hvern sinn fingur, og var það auðvitða rosalega gaman, að fá loksins þægilegt veður.

Við fórum svo að sjálfsögðu að borða á "gulastaðnum" og var ekki að sjá á fólki en að það væri almenn ánægja með það. Við ætluðum líka að hendast í Sony Center að kvöldi til, til þess að sjá ljósin sem þeir varpa á kúpulinn, en viti menn, ljósakerfið var bilað!! :) Jahérna :)

Nú svo á laugardag var haldið niður á Kurfürstendamm og á meðan Una var á ráðstefnu, vorum við 3-4 að rölta í búðir og skoða, reyndar fórum við Þröstur bara í KaDeWe og Saturn sem er bara heill dagur útaf fyrir sig :) Nú á leið heim kom upp sú hugmynd að hendast að sjónvarpsturninum og reyna að fara upp. Við keyrðum af stað......en..... allt var lokað! Eða nánast, það var ekki lengur hægt að treysta á GPS tækið fína. Lokunin stafaði af línuskauta maraþoni, við keyrðum og keyrðum og keyrðum um götur Berlínar í þeirri von að komast á réttan stað, sem við gerðum á endanum. Ss leið sem á að taka um 10 mín í bíl tók rúmar 40 mínútur! Þegar við komum svo að turninum var einhver biðröð og ég fór og spurði aðeins um þetta og þá var biðröðin amk 10 mín bið, svo þegar maður er búinn að fá miða tekur við bið upp á lágmark 30 mín, sem var ekki alveg inni í myndinni á þeim tímapunkti. Við tókum því á það ráð að hendast heim á leið og út að borða í staðinn.

Veðrið er ennþá gott og ég er að hugsa um að láta söng og einhverja hugsun lönd og leið það sem eftir lifir dags, ég er mjög þreyttur og ætla að hendast í rúmmið að horfa á einhverja góða þætti sem hafa verið að safnast hérna upp eins og versti ruslahaugur, svo setur maður kannski Hin Ótrúlega Hulk á flatskjáinn í kvöld sé maður í stuði :)
Óléttuhornið:
Fórum í skoðun á sl föstudag til að heyra það enn og aftur að allt er nákvæmlega eins og það á að vera. Barnið er orðið 1.9kg, og vex skv normalkúrfu í þeim efnum. Við fengum fína andlistmynd af barninu sem ég birti hér fyrir þá sem telja sig hafa áhuga á því. Soffí hafði á orði að það virðist fá nef pabba síns og mér sýnist á prófílmyndum að það sé með varir móður sinnar. Þetta verður bara eitthvað viðundur :o) Dökka stuffið sem er fyrir andlitinu að hluta er naflastrengurinn :) en ekki "horrible deformity" eins og læknirinn okkar komst svo skemmtilega að orði.

Annars var það nú ekki fleira í bili, verið þið sæl.

NÝJAR MYNDIR HÉR

25.9.08

Heiðríkja og heiðblá fjallalind

Ákvað að henda inn hérna einni færslu svona rétt áður en að maður verður of bissí við að sinna gestum.   Þröstur og frú eru á leiðinni og ég þarf að fara hendast að ná í bílaleigubílinn eftir c.a 5 mín.

Lítið er svosem að frétta héðan nema hvað að við fórum á þetta stórskemmtilega "Geburtsvorbereitungskurz" í gær, úffff,  þá eru 5 eftir!   Þetta er frekar leiðinlegt, og leiðinlegra fyrir þær sakir að þetta er á þýsku og efninu væri hægt að koma fyrir á 40 mín til klukkutíma í staðin fyrir að vera endurtaka allt miljón sinnum eins og við séum eitthvað þroskaheft.   En svona er það víst.  Í gær var farið í það sem gersist hjá konunni í fæðingu, og talað um PDA (periduralanästhesie).  Frábært.

Nú ég er búinn að vera á æfingum fyrir litlu tónleikana 4.október, og gengur það bara vel.  Þó eru tvær æfingar núna um helgina sem ég mæti ekki á sökum gestagangs.  Raddlega er mér að fara fram nokkuð ört þessa dagana, þar sem ég er byrjaður að hugsa þetta allt öðruvísi en áður, gaman að því.

Jæja þarf að fara koma mér, meira á sunnudaginn.

Kveðjur úr sólinn.

21.9.08

Casillero del Diablo

Helgin hefur liðið hratt og örugglega að vanda, ég hóf helgina á því að við strákarnir ætluðum að skella okkur á Turandot í Deutsche Oper, það var að sjáflsögðu uppselt nema í einhver frekar dýr sæti, þannig að við fórum bara á Potsdamer Platz í staðin og duttum í það :) Daginn eftir var svo æfing hjá mér með Kim, sem ég er að fara syngja með eftir 2 vikur.   Það gekk nú sæmilega, nema hvað það á að gera eitthvað aðeins meira, sem var ekki búið að segja mér, þannig að ég þarf að fara leggjast yfir þetta aftur og læra meira..... sem er svosem bara fínt, því þá er ég bara að græða meira á upplifuninni.   En maður þarf að einbeita sér soldið næstu 2 vikurnar.  Það ætti ekki að vera allt of flókið, en maður þarf bara að æfa sig.   

Ég er nú komin í það að sækja um námslán, þar sem tekjurnar duga orðið varla fyrir söngtímum, undirleikstímum.  Staða krónunar gerir það að verkum að ég er ekki bara að fá minna útborgað, heldur hefur allt hækkað í verði líka, þannig að þetta er tvöfallt tap.   EN ég er svosem ekki einn um það.  Ég ætla því að láta á það reyna hvort ég geti allavega fengið skólagjalda og makalán, þar sem það er nú barn á leiðinni og ég fæ alveg örugglega ekki framfærslulán, þar sem ég er á tekjum sem sannarlega ná að dekka framfærslu.  En þegar barnið kemur, þá er ég hræddur um að það dugi ekki til.  En sjáum hvað setur.

Janet Williams sagði mér frá tenór hér í Berlín sem heitir Wolfgang Millgramm, hann er búinn að syngja í rúm 25 ár og er enn að.  Janet sagðist hafa heyrt góða hluti um hann og ég ætti endilega að prufa að hafa samband.  Sem ég og gerði og fór í tíma hjá honum í dag.   Maðurinn er mikill snillingur, þó ber að taka öllu svona með varúð, en hann lét mig ekki bara byrja að syngja eitthvað heldur gerðum við allskyns æfingar allan tímann sem miða að því að minka þrýstinginn á röddinni, það er í raun alveg stór magnað hvað það skiptir miklu máli.  Ég er loksins farinn að skilja hvað er átt við með að syngja á loftstraumnum en ekki þrýstingi!!   Þetta er HRIKALEGA mikilvægt atriði og ég hélt alltaf að ég væri að gera þetta rétt, en svo er aldeilis ekki!    Þetta er í raun það sama og David og Janet ásamt fleirum hafa verið að segja, EN, ég bara skildi það allt í einu í dag.    Að auki lét hann mig fá æfingar til að gera heima, sem er alltaf gott.  Þetta er í raun fyrsta skipti sem mér hefur verið sett beint fyrir í söngnámi :)    Ég er svo að fara hitta  hann aftur í október, og þá ætla ég sko að vera búinn að negla þetta algerlega til helvíts!  Fínt að hafa markmið.

Nú það styttist í heimsókn frá Íslandi, og er það vissulega tilhlökkunarefni.   Það styttist líka í næsta "geburtsvorbereitungskurs", sem er ekki eins mikið tilhlökkunarefni.   Við fórum þangað í fyrsta skipti af 7!!  í síðustu viku, og lærðum á 2 tímum það sem ég þegar kann og gat kynnt mér á 5 mínútum á youtube.   Að auki var þessi miður gáfulega pólsk/þýska kona að kenna mér hvernig á að nudda mjóbakið...... hmm, reyndar veit hún ekki að ég er lærður nuddari, og ég ætla svosem ekkert að vera ljóstra því upp, en þetta er pirrandi, En ætli maður láti sig ekki bara  hafa það þar sem við erum búin að borga fyrir þetta helvíti.

Annars er það að frétta af tölvuleikjamálum að ég er búinn að klára Assassins Creed (sem var bara nokkuð góður) og The Devil may Cry 4(sem var líka mjög góður) .    Nú eru nýjast Crysis leikurinn það sem er á náttborðinu hjá mér, og það er sko alls ekki slæm útrás það.

Óléttuhornið:
Þar gengur bara allt mjög vel, og styttist í skoðun hjá Dr. Rott.  Það er alltaf tilhlökkunarefni, þar sem manni gefst kostur á að greina kynið :)  Sem ég ætla mér að vera búinn að komast að áður en barnið fæðist :)  Kúlan stækkar sjáanlega nánast á hverjum degi og Soffía hefur það bara rosalega gott, engar hryllingssögur enn allavega.   Við erum búin að panta far til Íslands í febrúar næstkomandi og er ætlunin að reyna skíra á þeim tíma.   Að sjálfsögðu vitum við ekkert hvernig það allt fer, en vonandi gengur þetta bara áfram í sögu eins og það hefur gert hingaðtil.

Þá var það ekki fleira að sinni........ verið þið sæl.

17.9.08

Mitridate var vondur kall

Já þá eru blessuð tryggingakortin okkar loksins komin í hús og við farin að hugsa um næsta vandamál, sem verður að finna barnalækni, fara heim til Íslands með barnið og svo framvegis.

Ég er alls ekki búinn að vera duglegur að æfa mig þessa vikuna og veldur það mér áhyggjum! Skil ekki alveg vilja- og framtaksleysið, sérstaklega þar sem ég er að fara syngja þann 4.okt. Svo var ég að fá símtal á talhólfið mitt um að taka þátt í sýningu á vegum Hanns Eislers, en ég hugsa að ég geri það ekki, þar sem þetta er leikstjórnarverkefni eins og síðast, að auki fær maður ekki að syngja eitt hlutverk, heldur aðeins hluta af því og enn að auki, ég hef sungið það hlutverk áður. Þetta er semsagt "Nótt í f Feneyjum", sem var sett upp í Íslensku Óperunni 2006. Þannig að hlutirnir eru svo sem að rúlla áfram sinn hæga og rólega veg.

Ég er búinn að vera kynna mér á netinu hvernig á að beita EOSnum og maður lærir alltaf eitthvað á því. Núna er maður orðinn soldið spenntur fyrir flash myndatökum, en ég hugsa að ég gangi nú ekki svo langt, nema finna eitthvað flass á viðráðanlegu verði :) Það er ekki rúm fyrir slíkt í budgettinu, þrátt fyrir að mínir elskulegu foreldar og tengaforeldrar vilji gefa barninu hina dýru hlutina sem við þurfum að kaupa. Sem er auðvitað alveg stórkostlegt og hjálpar okkur mjög mikið að þurfa ekki að bæta því ofan á núverandi skyndilega hækkun evrunnar sem hefur rýrt launin mín um c.a 9.þús krónur!!! Hvort sem þið trúið því eða ekki. Það virðist haldast í hendur, gífurleg hækkun Evrunnar og þegar ég þarf að millifæra af ISK yfir í EUR, það er alveg magnað, en svosem ekkert sem kemur sérstaklega á óvart :)

Jæja látum þessu lokið í dag á einnum flottasta söng, tæknilega, sem ég hef orðið vitni að. Þetta er mjög óþekkt aría úr Mitridate eftir Mozart og það er Bruce nokkur Ford sem syngur. Nb, hann er ekki svona góður í öðru sem ég hef séð hann gera á Youtube. Þessi aría virðist henta vel þeim röddum sem kallast Leggero tenór.... sem er nb ekki mín raddtýpa :)

14.9.08

Haustið að koma í í sinni ljótu mynd

Haustið er að síga inn á okkur hægt og rólega hérna Berlín. Hér er orðið mjög kalt og hálf sólarlaust, ekki það að það sé svosem neitt annað en lýsandi fyrir sumarið sem við fengum hérna. Þeir dagar sem voru góðir voru vissulega góðir og ber auðvitað að þakka fyrir þá :)

Um helgina fórum við S í leiðangur niður á Kurfürstendamm verslunargötuna, þar sem ætlunin var..... hjá henni að versala einhver Schwangerschafts föt, það tóks nú að einhverju leiti. Við fórum líka í eina af örfáum búðum hérna sem selur barnahúsgögn og aðra vörur tengdar því öllu saman. Þar var verið að skoða vagna, burðardót, barnarúm og ýmislegt annað það sem þarf að versla inn fyrir komu frelsarans. Þetta er dýrt!! Verð nú að segja það. ÞÓ er ég búinn að finna þetta allt á amazon og ebay fyrir mikið minni pening, og er nú líklegt að við tökum þetta þaðan. Þetta er vagninn sem við erum að melta með okkur núna, kemur með burðarrúmi, burðar/bílstól og ég veit ekki hvað. Svo er það þessi græja sem er sko hrikalega flott, og verður hún keypt sama hvað hver segir :) Jahérna er maður kominn á kaf í ruglið eða hvað. Allavega, þetta eru hlutir sem maður þarf að fara hugsa um sem fyrst, og reyna soldið að dreyfa innkaupakostnaðinum, maður þarf að vera soldið útsjónarsamur, versla é ebay og amazon.de, eins mikið og hægt er. Soffía telur að mikilvægt sé að fara og prufa alla vagna og kerrur, en ég tel það ekki vera nauðsynlegt, þetta virkar allt eins :).... nokkurnvegin. Ss langur laugardagur að baki og í dag tekur við langur rólegur sunnudagur, þar sem við ætlum að gera ekkert nema að slaka á, ég með nokkur rauðvínsglös að dundar mér í tölvunni, og svefnlausa frúin uppi í rúmi að lesa góða bók. Þetta verður bara fínn dagur. Svo verður elduð steik í kvöld með steiktum kartöflum salati og sósu, svona klassískt og gott. Vona bara að rauðvínið klárist ekki yfir tölvuleiknum.

LOKSINS GLEÐIFRÉTTIR varðandi tryggingamál. Ég hringdi í tryggingafélagið á fimmtudaginn og þá var mér sagt að við værum ekki til í kerfinu hjá þeim. Ég fór því til þeirra AFTUR með pappírana (og það er sko ekki stutt ferð), og konan sem ég lenti á var mjög skilningsrík og baðst innilegrar afsökunar á þessu og hún ætlaði sko að sjá til þess að þetta færi í gegn hratt og örugglega núna. Og hérna er það annað hvort í ökla eða eyra, því á laugardagsmorgun var komið bréf í póstkassann hjá okkur þar sem sagt var að við værum nú tryggð hjá Techniker Krankenkasse frá og með 1.1.08, og við mættum eiga von á skýrteinunum okkar í pósti á næstu dögum. Þessu ber að sjálfsögðu að fagna og ég mun fá mér rauðvín í tilefni þess. Veit ekki alveg hvað Soffía fær sér, en það verður eflust eitthvað :)

Hérna fyrir neðan má svo sjá nokkrar myndir sem EOSinn varð að smella af í bæjarferðinni.

10.9.08

Biblían hét einusinni "Chuck Norris og vinir"

Fátt hefur nú á dagana drifið hjá okkur hérna á krónprinsagötunni, það helsta er kannski að við erum ekki enn búin að fá skírteinið frá tryggingafélaginu hérna úti, sem átti, skv þeim að berast eftir um 15 daga, (það var 13.ágúst). Enn eitt helvítið sem maður nennir ekki að takast á við hérna í þýskalandi. Ekki er þetta til að bæta geðheilsuna. Á morgun er ég svo að hendast í undirleikstíma og svo á föstudag er ég að fara í tíma hjá Janet, þar sem við ætlum svo að kíkja saman í mat og hún ætlar að hjálpa mér aðeins með CV-ið mitt svo það sé nú sem eðlilegast. Ég er að skrá mig í eina keppni og eina audition á næstu mánuðum, þannig að það horfir ágætlega hvað það varðar. Raddlega hef ég verið betri, en með hjálp góðra manna er þetta ekkert sem erfitt er af yfirstíga.

Þangaðtil síðar.

7.9.08

Að ferðast um heiminn

Frúin átti góðan afmælisdag, og margir gerðu sér ferð á bloggið hennar til að senda afmæliskveðju. Sem er gott.

Nú um helgina tókum við bílaleigubíl til að skjótast til Dresden, þar sem frændi hennar Soffíu býr. Þetta var svona dagsferð, og að sjálfsögðu var EOSinn með í för. Þetta er mjög falleg borg, og við fengum svona "túrista rúnt" um svæðið, sem var mjög gaman. Við fórum svo að borða á einum af mínum uppáhalds stöðum að borða á..... Maredo. En þvímiður var þetta ekki góður staður, þar sem við þurftum að bíða í rúman klukkutíma eftir matnum. Og ekki nóg með það, þjónustu "stúlkan" (var rúmlega 5tug), var bara með leiðindi.... sem er svosem ekkert nýtt hérna í þýskalandi, hér er ekkert til sem heitir þjónustulund. Leiðindin voru allavega þannig að hún þrætti fyrir það að við værum búin að bíða svona lengi eftir matnum, og sagði að við þyrftum bara að gjörasvovel að vera þolinmóð, þar sem það var fullt að gera á staðnum!!!? Sem er afsökun sem ég hef áður heyrt á þýskum veitingastöðum. Nú yfirþjónnin kom svo stuttu seinna og sagði okkur að það hefði orðið eitthvað klúður, og við þyrftum að bíða aðeins meira, og sagði að við mættum fá salat eða eitthvað að drekka á kostnað hússins í staðin, sem var svosem eðlilegt í ljósi þess hvað við vorum búin að bíða lengi. Þegar kom svo að því að borga, þá var sú 5tuga sko alls ekki á því að gefa okkur eitt eða neitt fyrir biðina, og það þurfti að kalla aftur til yfirþjóninn, sem leiðrétti málið, en það tók um 5-10 mín að fá kellinguna til að skilja það og koma með réttan reikning. Þetta endaði svo á því að hún sagði, "takk fyrir komuna" (á þýsku auðvitað :)). Ekki datt henni í huga að biðjast afsökunar eða eitthvað í þá áttina! Maður skilur bara ekki svona dónaskap á stöðum sem þessum, en svona er það bara í þýskalandi. En bara með því að segja í lokin, "ég bið ykkur að afsaka hvernig þetta er búið að vera og ég vona að þið eigið ánægulegt kvöld", eða eitthvað svipað, hefði hugsanlega dugað til að ég færi þaðan sáttur, en nei svo var nú aldeilis ekki. Ég mun þó áfram venja komur mínar á Maredo hér í Berlín, þar sem þar hefur aldrei neitt klikkað, maturinn alltaf góður og starfsfólkið svona sæmilegt og kurteisara en í Dresden.

Nú svo eftir að hafa skoðað borgarljósin, var haldið heim á leið á bensanum. Dresden er í um 2 klst fjarlægð frá Berlín, og því var þetta frekar þægilegur skottúr. Sunnudagurinn fer svo bara í ekki neitt, og ætlunin er að drekka 2-3 rauðvínsglös og kannski spila smá tölvuleik "ef maður sé í stuði".

Óléttuhornið:
Mæðraskoðun var á föstudag, þar sem við hittum nýja ljósmóður, sem talar enga ensku, það gekk nú vel þrátt fyrir það, og allt lítur vel út og eins eðlilegt og hægt er að vonast til. Það er þó alltaf truflandi þegar er verið að fara með manni yfir skilmálana, maður fær alltaf á tilfinninguna að það eigi eitthvað eftir að koma fyrir mann af því sem er verið að lesa upp. Því það er alveg slatti af allskyns klausum þarna sem geta orðið til þess að barnið þurfið að fæðast á spítala, en ekki fæðingarheimili. EN ég hef þá trú að þetta eigi nú bara all eftir að ganga. Ég er búinn að dreyma fyrir kyni barnsins í 3-4 gang og alltaf er það strákur. Hvort þarna sé um óskhyggju að ræða eða sannleika veit maður auðvitað ekki, en mín reynsla er sú að ég dreymi oft öfugt við það sem er að fara gerast :) Þetta er því bara eins og sumum finnst að það eigi að vera.........óljóst :)

Myndir hérna

5.9.08

já, hún á afmæli í dag

Það eru ekki margir sem koma til greina, og hér er hún sjálf.
Til hamingju með afmælið :)

3.9.08

Af álfum og skrímslum.

ATH, ég hef ákveðið að fjarlægja blogg af listanum hjá mér sem ekki hafa verið uppfærð í 2 mánuði :)
Ekki er það nú merkilegt bloggið í dag, ekki náði ég að hitta Botha í dag, en við erum búnir að mæla okkur mót á morgun í staðin. Ástæðan í dag var sú að ekki fékst aðstaða í Staatsoper til að hittast, en á morgun fáum við hugsanlega aðstöðu í tónlistarháskólanum Hans Eisler. Eins á Eddy píanóleikari afmæli á morgun er hann búinn að bjóða mér að mæta, hann er eitthvað að nálgast 70 kallinn gæti ég haldið, og ég mun að sjálfsögðu mæta.

Nú hér ringdi svo eldi og brennisteini í gærkvöldi og að sjáflsögðu var EOSinn á staðnum til að fanga regnið:

Eins og sjá má á þessari mynd fór allt á flot á svölunum hjá okkur, þar sem niðurfallið stíflaðist eða er reyndar búið að vera stíflað síðan við fluttum hingað.

Svo verð ég bara hreinlega verð að deila með ykkur uppskrift af brauði sem ég henti saman í dag. Eflaust þekkir fólk nú til svona brauðs. Ég hinsvegar smakkaði eitthvað í líkingu við þetta þegar ég var í Salzbug fyrir ekki löngu síðan og hefur blundað í mér að reyna að henda í eitt slíkt, sem ég hef núna gert.

Ég mana fólk til að prufa þetta, en þetta kallast bara "sætt brauð".

Full uppskrift (um 15-20 bollur, ég gerði helmingi minni uppskrift):
(Hjá mér var einn bolli c.a 2,5 dl)
6-7 bollar hveiti
1/2 bolli sykur (ég gerði 50/50 hunang og sykur)
2 tsk salt
2 pakkar þurrger
1 bolli vatn
1 bolli mjólk
1/bolli smjör
1 egg (í 50% minni uppskrift notaði ég samt 1 egg)

Aðferð:
Blanda saman og hita mjólk vatn og smjör að 45-50°C (eða bara þannig að það sé ekki of heitt til að stinga puttanum í :), eins er bara fínt að setja hunangið saman við það ef maður er að nota slíkt.

Blanda saman þurrefnum vel og vandlega. Setja egg útí og byrja að hræra, hella svo mjólkurblöndunni saman við hægt og rólega, þá endum við með eitthvað sem lítur út eins og þykk súpa, gott að nota bara hefðbundin písk. Þvínæst hellum við afgangum af hveitinu saman við í smá skömmtum og hrærum vel. Þegar þetta fer að þykkna talsvert fer að verða erfitt að "píska", þá er ráð að nota bara aðra hendina í þetta og setja afganginn af hveitinu samanvið, þetta á að límast við þig :) Svo er skálin höfð á hlýjum stað, t.d í volgu vatnsbaði með rakri tusku eða einshverju slíku ofan á svo það þorni ekki. Látið hefast í klukkustund, svo er rétt kýlt í það til að það falli aðeins, og svo er það látið hefast í halftíma í viðbót. Svo er bara komið að því að forma úr þessu bollur. Setja á plötu og baka við 180 í c.a 30-40 mín, yfir og undir hita.

Svo er voða töff að skera svona kross ofan á brauðið, eða bara hvaða munstur sem þér dettur í hug og mála yfir þau með hrærðu eggi til að fá glansandi áferð.


Þessi brauð eru svo eiginlega bara best ein og sér, þó vissulega megi klína einhverju á þau, en það er bara eins og að blanda saman góðu rauðvíni og sódavatni eða kók.

Og já, svo var Prison Break að byrja aftur......jibbí!