Um helgina fórum við S í leiðangur niður á Kurfürstendamm verslunargötuna, þar sem ætlunin var..... hjá henni að versala einhver Schwangerschafts föt, það tóks nú að einhverju leiti. Við fórum líka í eina af örfáum búðum hérna sem selur barnahúsgögn og aðra vörur tengdar því öllu saman. Þar var verið að skoða vagna, burðardót, barnarúm og ýmislegt annað það sem þarf að versla inn fyrir komu frelsarans. Þetta er dýrt!! Verð nú að segja það. ÞÓ er ég búinn að finna þetta allt á amazon og ebay fyrir mikið minni pening, og er nú líklegt að við tökum þetta þaðan. Þetta er vagninn sem við erum að melta með okkur núna, kemur með burðarrúmi, burðar/bílstól og ég veit ekki hvað. Svo er það þessi græja sem er sko hrikalega flott, og verður hún keypt sama hvað hver segir :) Jahérna er maður kominn á kaf í ruglið eða hvað. Allavega, þetta eru hlutir sem maður þarf að fara hugsa um sem fyrst, og reyna soldið að dreyfa innkaupakostnaðinum, maður þarf að vera soldið útsjónarsamur, versla é ebay og amazon.de, eins mikið og hægt er. Soffía telur að mikilvægt sé að fara og prufa alla vagna og kerrur, en ég tel það ekki vera nauðsynlegt, þetta virkar allt eins :).... nokkurnvegin. Ss langur laugardagur að baki og í dag tekur við langur rólegur sunnudagur, þar sem við ætlum að gera ekkert nema að slaka á, ég með nokkur rauðvínsglös að dundar mér í tölvunni, og svefnlausa frúin uppi í rúmi að lesa góða bók. Þetta verður bara fínn dagur. Svo verður elduð steik í kvöld með steiktum kartöflum salati og sósu, svona klassískt og gott. Vona bara að rauðvínið klárist ekki yfir tölvuleiknum.
LOKSINS GLEÐIFRÉTTIR varðandi tryggingamál. Ég hringdi í tryggingafélagið á fimmtudaginn og þá var mér sagt að við værum ekki til í kerfinu hjá þeim. Ég fór því til þeirra AFTUR með pappírana (og það er sko ekki stutt ferð), og konan sem ég lenti á var mjög skilningsrík og baðst innilegrar afsökunar á þessu og hún ætlaði sko að sjá til þess að þetta færi í gegn hratt og örugglega núna. Og hérna er það annað hvort í ökla eða eyra, því á laugardagsmorgun var komið bréf í póstkassann hjá okkur þar sem sagt var að við værum nú tryggð hjá Techniker Krankenkasse frá og með 1.1.08, og við mættum eiga von á skýrteinunum okkar í pósti á næstu dögum. Þessu ber að sjálfsögðu að fagna og ég mun fá mér rauðvín í tilefni þess. Veit ekki alveg hvað Soffía fær sér, en það verður eflust eitthvað :)
Hérna fyrir neðan má svo sjá nokkrar myndir sem EOSinn varð að smella af í bæjarferðinni.


Jahhá það er ekkert annað... þá þarf bara að kannað með litinn á vagninum ;) vona ykkar vegna að það sé bara hægt að kaupa hann í svörtu svo hægt verði að nota hann í framtíðinni :)
SvaraEyða..gleymdi að skrifa áðan hamingjuóskir með að tryggingamálið sé loksins komið í gegn !
SvaraEyðaEinnig er ánægjulegt að sjá að Rebekka fylgi þér hvert sem þú ferð..
Við skulum alveg átta okkur á því að allt annað en ÞETTA er rusl: http://www.bobgear.com/strollers/stroller.php?product_id=4
SvaraEyðaÞetta fæst meir að segja í Þýskalandi. Sláið á þráðinn og tékkið á þessu. Þarf ekkert að skreppa og prófa, því þetta er betra en annað (sem er rusl, ef þið voruð búin að gleyma því).
Ykkar,
Sæti og hressi
Sumir kannski ekki að átta sig á því um hvað málið snýst, en það að er að fá vagn, burðarrúm og svo bílstól í einum pakka sem ódýrast. Og ég ætla að leyfa mér að giska á að þetta kvikindi kosti rúmar 30þús krónur, sem er þegar orðið of dýrt.
SvaraEyðaÞó að sumri sé að halla í einum skilningi þá er að vora í öðrum. Hér er því um að ræða einskonar vorhaust.
SvaraEyða