Já velkomin enn og aftur að skjánum.
Nú er nýafstaðið 3ðji geburtsvorbereitungskurs, í þetta skipti var það ekki hin geðveika Ella sem var með þetta heldur einhver ung stelpa sem kemur upprunalega frá frakklandi. Þessi tími var mun skemmtilegri. Mig langar hinsvega aðeins að lýsa fólkinu sem þarna er með okkur, þar sem ég hef svo gaman að því, og við Bruder im Australien erum sérfróðir í þessari grein mannagreininga. Það eru nú ekki margir þarna en svona lítur þetta út:
1 - Egill og Soffía, ósköp venjulegir Íslendingar sem þarfnast ekki frekari kynningar.
2 - Nýaldarparið, þau eru algerlega týpískt nýaldarpar, konan er líklega búin að vera í dansi lengi og nýtir það þegar hún er að gera æfingarnar, líklegt er að hún hafi einhverntíma misnotað áfengi eða lyf auk þess hún rakar sig líklega ekki undir höndunum. Maðurinn hennar er einhver svona besservisser týpa sem vinnur líklegast sem húsvörður eða skúringakall og er bara sáttur við lífið. Hann hefur líka átt við áfengisvanda, en líklega ekki alvarlega, þau náðu saman í AA og eru nú að eignast barn á gamals aldri.
3 - Miðstéttarparið, þau hafa allt til alls, hann var áður í svona klassískri unglinga óreglu og þrátt fyrir að vera rólindis maður leiddist út í heim slagsmála og áfengisdryggju með félögunum, hefur líklegst prófað einhver ólögleg efni. Hann átti þó aldrei við vandamál að stríða. Konan hans er komin af peningum og bjargaði honum frá þessu líferni. Hún er líklega að vinna sem ritari í stórfyrirtækiþ Þau hafa það gott og hún stjórnar algerlega sambandinu.
4-Menntaparið, hefði ég ekki vitað betur hefði ég giskað á að hann væri í viðskiptatengdu námi hérna í Berlín (hann er í stærðfræðinámi), mjög hæglát bæði tvö og hreint og beint fólk. Hann gæti þó komið úr erfiðum aðstæðum í heimalandi sínu, USA. Hún er hinsvegar frá austantjaldslandi og er líklega svona Amnesty Int týpa, sem vinnur hjá einhverri umverfismálastöfnun hér í Berlín. Þetta er fólk sem á ekki áfengi heimahjá sér þó þau fái sér nú líklega í glas á mannamótum.
5-Stelpa frá Argentínu, hún virðist vera svona freka vitgrönn, og er því líklegast ekki að læra neitt. Hugsanlega að vinna í bakaríi, gæti líka hugsanlega unnið í móttöku á hóteli...en ólíklegt. Hún kemur alltaf ein, en á þó kærasta/eiginmann, sem er líklega annaðhvort að vinna við að keyra lest eða að keyra leigubíl. Hún virðist þó vera ánægð með lífið og það er alltaf gott. Líkleg áhugamál eru mannúðarmál og dýravernd.
Svona blasir þetta bara við manni :) Maður hefur allavega eitthvað að hugsa um meðan er verið að blaðra um það sem maður er búinn að kynna sér í 5 mín videói á youtube :)
Nú af öðrum fréttum er að það launin mín eru nálægt því að hætta að duga fyrir því sem maður ætlaði sér hérna, og tími niðurskurðarins er hafinn. Sem er ekki gott, þar sem söngurinn má ekki sitja á hakanum, það er eina ástæðan fyrir því að maður er hérna. Ég er því að sækja um námslán, þar sem ekkert annað er í boði í stöðunni, það verður gaman að sjá hvað kemur útúr því.
Hér eru svo tónleikar á laugardag og þar er ég syngja eitthvað lítilræði, sem verður bara gaman, kynna íslenska tónlist og sjálfan sig í Berlín er bara alltaf gaman.
Nú svo á morgun er allt lokað í Þýskalandi þar sem 3.okt er "þjóðhátíðardagur" Þjóðverja. Spennandi tímar framundan.