Þá er hér hafin önnur vikan þar sem ekki er hægt að nálgast peninga frá Íslandi, þýskir bankar segja að krónan sé dauður gjaldmiðill og ætla bara að hætta að skipta með hana. Svosem ekki líkt þjóðverjanum að vera með einhverjar svoleiðis yfirlýsingar. Ég hef gripið á það ráð að reyna að leysa út sparnað sem ég á í Bretlandi, ekki hjá bönkunum þar þó heldur Friends Provident, sem er eitthvað líftrygginga og fjárfestingafélag. Ég á orðið talsverðan sparnað þarna, enda búinn að spara síðan 2000, þetta á vonandi eftir að ganga smurt, það eina sem gæti verið er að þeir vilji fá löggilt og vottað afrit af passanum mínum, að öðru óbreyttu ætti þetta að ganga smurt. Vona það svo maður geti nú borgað leiguna næstu mánaðarmót. Annars fengum við nú póst um daginn þar sem fólk, sem býr hérna í Þýskalandi og við kynntumst örstutt þegar við fórum til Dresen, var að bjóða okkur peninga að láni ef okkur vantar!! Þessu átti ég nú ekki von á hérna, og vorum við að vonum þakklát, vona bara að við þurfum ekki að þiggja það.
Sama dag og partýið var vaknaði ég snemma til að undirbúa tíma hjá Wolfgan Milligramm, sem svo margir hafa hent grín að, nafnsins vegna. Ég náði gífurlegum árangri og tel mig loks, með hans aðstoð hafa fundið síðasta púslið, gullna gralinn, sem ég hef verið að leita að svo lengi. Málið er einfallt, en það er bara að lyfta mjúkagómnum :) Sem er bara ekki búið að segja mér síðan ég byrjaði í söngnámi, málið er að það er bara ekki alveg svo einfalt að segja og gera. Með stífum æfingum næstu daga ætla ég mér að ná þessu almennilega svo maður fari að öðlast traust til að fara vinna við þetta. Og beitti ég þessari nýju tækni hjá Janet, þar sem á undan partýinu var svokallað studio class, sem er einusinni í mánuði, þar syngja allir fyrir alla. Þetta var tekið upp á videó, og ef það er eitthvað varið í það, sem ég er að vona, þá birti ég það hugsanlega hér á þessari síðu. (Hér fyrir neðan má svo sjá kvöld í Berlín sem EOSinn smellti myndum af á heimleið).
Óléttuhornið:Nú ég er búinn að vera kanna aðeins með jólahátíðina sem við ætlum að halda hérna úti, og þá kemur í ljós að við þurfum að redda okkur jólamat og öðru slíku sjálf, það er því svo að við þurfum að fara skrifa óskalista og biðja svo okkar fólk að burðast með þetta hingað þegar það kemur. Það er svosem ekki mikið held ég sem þarf: Hamborgarhrygg, hangikjöt, skötulús, malt og appelsín... og eflaust eitthvað meira, en þetta eru aðalatriðin :)
Á laugardag var svo heljarinnar partý hjá Janet, og íslendingarnir voru sem fyrr seinastir til að yfirgefa staðinn, ætli maður hafi verið komin heim um 5 leitið?? hver veit. Hér er allavega ein mynd af okkur skandinavíska strákagenginu sem erum að læra hjá Janet.
Sama dag og partýið var vaknaði ég snemma til að undirbúa tíma hjá Wolfgan Milligramm, sem svo margir hafa hent grín að, nafnsins vegna. Ég náði gífurlegum árangri og tel mig loks, með hans aðstoð hafa fundið síðasta púslið, gullna gralinn, sem ég hef verið að leita að svo lengi. Málið er einfallt, en það er bara að lyfta mjúkagómnum :) Sem er bara ekki búið að segja mér síðan ég byrjaði í söngnámi, málið er að það er bara ekki alveg svo einfalt að segja og gera. Með stífum æfingum næstu daga ætla ég mér að ná þessu almennilega svo maður fari að öðlast traust til að fara vinna við þetta. Og beitti ég þessari nýju tækni hjá Janet, þar sem á undan partýinu var svokallað studio class, sem er einusinni í mánuði, þar syngja allir fyrir alla. Þetta var tekið upp á videó, og ef það er eitthvað varið í það, sem ég er að vona, þá birti ég það hugsanlega hér á þessari síðu. (Hér fyrir neðan má svo sjá kvöld í Berlín sem EOSinn smellti myndum af á heimleið).
Frúin er nú farin að finna meira og meira fyrir óþægindum og við eigum enn langt í land. Sem er náttúrulega ekki gott, en þetta er allt eðlilegt. Við erum búin að hitta ljósmóðurina sem var að klára að fara yfir með okkur skriflega þáttinn í fæðingunni, þ.e.s listann yfir allt það sem getur farið úrskeiðis, sem er nú ekki það skemmtilegasta, en það er fínt að vera viðbúinn. Svo er bara að skrifa undir samninginn og borga 100EUR, þá erum við opinberlega skráð hjá þeim og ferlið getur hafist. Til gamans erum við búin að glugga í kellingabækur, til að fá skýrari mynd af því hvers kyns barnið er, og bendir allt til þess að um sé að ræða strák. Við notuðum meðal annars, pendúl og kínverska stjörnuspeki :) Þetta er auðvitað meira til gamans gert, en þetta er engu að síður áhugavert. Þess má þó geta að kínverska stjörnuspekin er talin vera um 90% nákvæm þegar kemur að þessu. Eins hefur pendúllinn gott "track record", fengum meira að segja að vita það að barnið kemur nákvæmlega 20.nóv :)
Bis später.......
nohh það er ekkert annað ! aldeilis aðferðir til að fá staðfestingu á kyni ungans :)
SvaraEyðaþetta eru kellingabækur sem ekki þarf að grípa til ef maður bara einfaldlega fær að vita kynið í sónar.
SvaraEyðaHe he ég tek þessu væntanlega sem skoti á mig ;)
SvaraEyðakv
Soffía
hahaha Soffía, hann þurfti að fá sínu fram; one way or the other :)
SvaraEyða