29.6.12

Barnadagbókin - Emma Lind og Freydísin

Þar sem við erum ekki mjög dugleg að halda utan um framfarir dætranna, ætla ég að reyna að koma þeim í blogg, svona til minnis.

Emilía er farin að sofa nokkuð betur, sofnar á milli 20-21 á kvöldin og er vöknuð um 6:30-7:00, og tekur svo tvo lúra á daginn, yfirleitt mjög stutta.  40 mín til 2 tíma, svona eftir stuði.  Hún er farin að setjast upp í vagninum þannig að það líður að því að kaupa þurfi beisli á hana til að festa niður.  Hún er einnig farin að setjast upp í rúmminu sínu og reyna að standa upp, en hún nær ekki alveg upp ennþá og því gengur það ekki. Komnar eru 6 tennur, 4 niðri og 2 uppi.  Þeim er óspart beitt til að hakka í sig málma, tré og auðvitað mat.  Eins og önnur börn, geri ég ráð fyrir, getur hún ekki séð í friði snúrur og ýmis tæki.  Það er eins og hún þekki virði þeirra tækja sem hún sækir í því dýru símarnir eru vinsælastir. Einnig eru peningaveski vinsæl.

Það svipar um margt til þeirra systra.  Skriðtæknin er sú sama og það er alveg magnað.  Emilía gerir sig hægt og rólega líklega til að fara ganga, og er nú þegar farin að ganga meðfram hlutum, en maður sér að löngunin til að sleppa og komast lengra er oft ansi sterk, en hún gugnar alltaf á því.  Hún er líka skemmtilega rjóð í kinnum alltaf og það helgast kannski af of mikilli útiveru í sólinni sem er búin að vera í Laugarási síðan við fluttumst hingað í byrjun Júní. Ég held oft að hún sé bara með hita eða eitthvað þvi þetta lítur þannig út.

Júlía hefur mikið þorskast í tali síðustu vikur, og er nú að syngja og búa til og breyta textum laga, það er afar fyndið að hlusta á það.  Eins eru ýmis orðasambönd sem hún skilur ekki, eðlilega, eins og tildæmis um daginn þá var hún Froskaheft, hún var að hoppa og tengdi það eitthvað saman :)  Ætli maður þurfi ekki að passa sig af og til að nota þessi líku orð of oft.  Eins svarar hún afa sínum alltaf þegar hann segir ,,Ég er nú hræddur um það", með ,,Ég er glöð um það".  Hún sér líka reglulega "hunanga flugu" í garðinum, og vaknaði svo með martröð um daginn þegar það kom fluga að reyna að drepa hana :)  Eitthvað fleira er búið að heyrast síðustu daga sem ég ekki man í augnablikinu, en ég hendi því hérna inn þegar það kemur upp.

Af öðru er svosem ekki mikið að frétta, það er vissulega orðið þreytandi að búa inni á öðrum og svona ákveðin geðlægð sem fylgir því.  Auk þess er ég alveg tapa geðheilsunni á að vera heima og hugsa um börnin mín, sem betur fer eru hérna amma og afi sem taka stóran þátt í því og ég get farið í tölvuna og sinnt hugðarefnum.  Eftir rúman mánuð byrja ég svo í nýrri vinnu, og hef verið að reyna að undirbúa mig fyrir það með ýmsum hætti, það hefur gengið ágætlega og ég er búinn að læra fullt af nýju og sniðugu sem hægt er að gera með tölvum :)  Ég skráði mig líka í söngkennaranám í Söngskólanum í Reykjavík, en það þarf að koma í ljós hvort ég geti yfir höfuð sinnt því.  Ég er alltaf að gera of mikið, alltaf!  Júlía er svo komin með pláss í leikskólanum Fífuborg í Grafarvogi, sem er örstutt frá Flétturimanum, þar sem við munum búa þangað til hann selst.  Sem er svosem áframhaldandi óvissa fyrir okkur.

Við systkinin verðum svo loksins öll á Íslandi á sama tíma síðan 2008, og það verður gaman að upplifa það á ný.  Hugurinn stendur út aftur og ég sé mig bara alls ekki eiga heima á Íslandi, hvernig sem það kemur svo til með að púslast saman við alltsaman.


Þingvallavatn í Júní

8.6.12

Hin sveitin og hreinsun

Ég er staddur í Laugarási, og við komum hingað 30.Maí sl, hér var ofboðslega gott veður, engin vindur og 20-22°C í nokkra daga, algerlega frábært.  Dvölin hófst á því að fengin var að láni kerra til að flytja stóran hluta búslóðarinnar, sem hér hefur verið í geymslu sl 4 ár, til Reykjavíkur í aðra geymslu, þangað til við eigum kost á að flytja inn í forláta íbúð Áma bróður í Ágúst.  Ég er líka búinn að nota tímann og fara í gegnum allt gamla dótið mitt síðan ég var í grunnskóla, og það voru 2 heilir stútfullir ruslapokar af geisladiskum, bókum og stílabókum.  Ég get ekki annað sagt en að þesskonar hreinsun hafi gert mér gott, ekki bara efnislega heldur hefur maður lagst yfir fortíðina og vegið og metið, og hent ýmsu, veraldlegu og andlegu.  Ég held að þau gömlu séu líklega kát yfir því að búið að er að henda einhverju sem hér er búið að taka mikið af plássi síðustu árin.

Stefnan er svo að reyna að koma restinni af búslóðinn í bæinn á næstu dögum, en hvað verður þarf svo að koma í ljós.  Hér er sófasett, rúm, borð og ýmislegt í stærri kantinum sem þarf að flytja í sumar.  Kerrur eða stærri bílar er eitthvað sem við erum að skoða möguleika á á næstu dögum.

Flutningur er áætlaður hjá mér í byrjun Agúst, en þá byrja ég að vinna hjá Advania, þar sem ég þekki vel til, því ég var hjá EJS á sínum tíma og þeir sameinuðust Skýrr og urðu svo Advania.  En þarna er mikið af fólki sem ég þekki og því verður þetta ekki alveg ókunnugt.  Ég hlakka til að komast í stöðuga vinnu, þar sem vinnuframlag er metið að verðleikum og kunnátta og starfsþekking skilar sér, ólíkt söngnum.  Ég er að vissuleiti svolítið sorgbitinn yfir því að gefa söngin upp á bátinn á þennan hátt, en það er bara ekkert eftir í stöðunni þvímiður.  En kannski eftir nokkur ár kemur tilfinningn aftur og löngunin.  Ég hugsa oft til Görlitz og Þýskalands og verð að segja að ég sakna þess verulega að vera þar.  Þó margt sé ekki fullkomið þar, er Ísland ágætis raunveruleikatékk, þegar kemur að því að bera saman lífsgæði.  Soffía sér nú um að vinna fyrir okkur og okkar útgjöldum og það er merkileg tilfinning, hún vill reyndar frekar vera heima og ég úti að vinna þannig að það er ansi magnað.

Ég hef verið að detta aftur í hugleiðsluiðkun og hef verið að nota til þess ýmis tól eins og binaural beats, leidda hugleiðslu og dáleiðslu.  Ég finn af og til mikin mun á mér, en ég held nú samt í grunnin að þetta hafa lítil sem engin áhrf.  En ég held áfram að vona og prufa, því þetta slakar á manni og það er líka gott.

Júlía fór út í dag og rispaði bílinn okkar í bak og fyrir með svona krítarmolum sem ætlaðir eru til að teikna á stéttina. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hvað ég varð reiður við hana, enda búið að banna henni þetta áður.  Hún hélt svo áfram um kvöldið og lék sér að því að sturta vatni ofan í bókakassa frá Guðnýju frænku.  Sem betur fer virðist ekki vera mikill skaði en samt sem áður, þá skammaðist ég í henni og hún grenjaði bara eins og hennar er von og vísa þessa dagana.  Ef hún er ekki að detta í gólfið og slasa sig á annan hátt, þá hefur hún verið að gera eitthvað af sér.  En auðvitað er hún eins og engill inn á milli og mjög dugleg að leika við systur sína.  Emilía er byrjuða að skríða og kemst nú í flest allt sem hugurinn girnist, sem er ansi margt. Hún braggast líka hratt og er farin að segja "daaa" þegar eitthvað dettur í gólfið, hún getur líka gert sterk og stór, sem er svosem ekki merkilegt fyrir börn á þessum aldri.  En þær systur hafa alveg sama skriðstíl sem er mjög merkilegt útaf fyrir sig.  Þær blómstra allavega og virðast glaðar með lífið.

Jæja þetta var pistillinn í bili.  Meira næst.