29.6.12

Barnadagbókin - Emma Lind og Freydísin

Þar sem við erum ekki mjög dugleg að halda utan um framfarir dætranna, ætla ég að reyna að koma þeim í blogg, svona til minnis.

Emilía er farin að sofa nokkuð betur, sofnar á milli 20-21 á kvöldin og er vöknuð um 6:30-7:00, og tekur svo tvo lúra á daginn, yfirleitt mjög stutta.  40 mín til 2 tíma, svona eftir stuði.  Hún er farin að setjast upp í vagninum þannig að það líður að því að kaupa þurfi beisli á hana til að festa niður.  Hún er einnig farin að setjast upp í rúmminu sínu og reyna að standa upp, en hún nær ekki alveg upp ennþá og því gengur það ekki. Komnar eru 6 tennur, 4 niðri og 2 uppi.  Þeim er óspart beitt til að hakka í sig málma, tré og auðvitað mat.  Eins og önnur börn, geri ég ráð fyrir, getur hún ekki séð í friði snúrur og ýmis tæki.  Það er eins og hún þekki virði þeirra tækja sem hún sækir í því dýru símarnir eru vinsælastir. Einnig eru peningaveski vinsæl.

Það svipar um margt til þeirra systra.  Skriðtæknin er sú sama og það er alveg magnað.  Emilía gerir sig hægt og rólega líklega til að fara ganga, og er nú þegar farin að ganga meðfram hlutum, en maður sér að löngunin til að sleppa og komast lengra er oft ansi sterk, en hún gugnar alltaf á því.  Hún er líka skemmtilega rjóð í kinnum alltaf og það helgast kannski af of mikilli útiveru í sólinni sem er búin að vera í Laugarási síðan við fluttumst hingað í byrjun Júní. Ég held oft að hún sé bara með hita eða eitthvað þvi þetta lítur þannig út.

Júlía hefur mikið þorskast í tali síðustu vikur, og er nú að syngja og búa til og breyta textum laga, það er afar fyndið að hlusta á það.  Eins eru ýmis orðasambönd sem hún skilur ekki, eðlilega, eins og tildæmis um daginn þá var hún Froskaheft, hún var að hoppa og tengdi það eitthvað saman :)  Ætli maður þurfi ekki að passa sig af og til að nota þessi líku orð of oft.  Eins svarar hún afa sínum alltaf þegar hann segir ,,Ég er nú hræddur um það", með ,,Ég er glöð um það".  Hún sér líka reglulega "hunanga flugu" í garðinum, og vaknaði svo með martröð um daginn þegar það kom fluga að reyna að drepa hana :)  Eitthvað fleira er búið að heyrast síðustu daga sem ég ekki man í augnablikinu, en ég hendi því hérna inn þegar það kemur upp.

Af öðru er svosem ekki mikið að frétta, það er vissulega orðið þreytandi að búa inni á öðrum og svona ákveðin geðlægð sem fylgir því.  Auk þess er ég alveg tapa geðheilsunni á að vera heima og hugsa um börnin mín, sem betur fer eru hérna amma og afi sem taka stóran þátt í því og ég get farið í tölvuna og sinnt hugðarefnum.  Eftir rúman mánuð byrja ég svo í nýrri vinnu, og hef verið að reyna að undirbúa mig fyrir það með ýmsum hætti, það hefur gengið ágætlega og ég er búinn að læra fullt af nýju og sniðugu sem hægt er að gera með tölvum :)  Ég skráði mig líka í söngkennaranám í Söngskólanum í Reykjavík, en það þarf að koma í ljós hvort ég geti yfir höfuð sinnt því.  Ég er alltaf að gera of mikið, alltaf!  Júlía er svo komin með pláss í leikskólanum Fífuborg í Grafarvogi, sem er örstutt frá Flétturimanum, þar sem við munum búa þangað til hann selst.  Sem er svosem áframhaldandi óvissa fyrir okkur.

Við systkinin verðum svo loksins öll á Íslandi á sama tíma síðan 2008, og það verður gaman að upplifa það á ný.  Hugurinn stendur út aftur og ég sé mig bara alls ekki eiga heima á Íslandi, hvernig sem það kemur svo til með að púslast saman við alltsaman.


Þingvallavatn í Júní

Engin ummæli:

Skrifa ummæli