27.5.10

Malli mall

Hér er allt með rólegheitum. Veðrið er skelfilegt, það er reyndar hlýtt, en ömurlega skýjað og maður er í svona hálfgerðu þunglyndi af ljósleysi. Það er ekki útlit fyrir að þetta eigi eitthvað eftir að skána á næstu dögum, sem er alveg svakalega ömurlegt. EN það þýðir ekkert að væla yfir þessu.

Hér styttist í Eurovision, en ég verð einmitt staddur í Görlitz að sýna þessa helgina, þó ekki á Laugardeginum, heldur sitthvorumegin við. Laugardagurinn er frídagur, og ég veit sveimér ekki hvað ég geri af mér þá. Það barst reyndar boð í grillpartý hjá kollega á laugardeginum kl 16. Aldrei að vita nema maður finni eitthvað Eurovision party í Görlitz :)

Ekki hafa birst neinir dómar um mína frammistöðu sem "The Butler", það hafa þó birtst dómar um aðra í stykkinu og eru þeir auðvitað allir jákvæðir. Ég vona bara að maður fái að sýna sig og sanna áður en tveggja ára samningurinn rennur út.

Ég fylgist auðvitað með kosningum á Íslandi og verð að segja þetta, Ólafur F. Magnússon er ótrúleg mannvera, ég sá í gær eð fyrradag frétt um að hann hafi verið ósáttur við myndirnar sem fjölmiðlar nota af honum í fréttum!! :) Svo fylgir með myndin sem hann vill að sé notuð í staðin. Það sem mér finnst fyndið við það er að bolurinn er blár með hvítum röndum, og það sem kórónaði svo ruglið er að í fréttum í kvöld er Ólafur í saman bolnum að ganga í hús og dreif bæklingunum sínum:) Æji það er bara eitthvað fyndið við þetta. Og almennt að sjá hvað fólk lýgur og reynir að segja það sem kjósendur vilja heyra, mér finnst þetta bara barnalegt að mannkynið sé enn að standa í þessu rugli. Er ekkert skárra til, í alvöru?

Júlía vex og vex, ég smellti mynd af henni í kvöld þar sem hún var að hendast í bað, og stendur í sömu stöðu og fyrir 6-7 mánuðum síðan. Skemmtilegt að sjá þetta þó það sé svona stuttur tímakvarði.




23.5.10

Júlía í máli og myndum og vídeói

Þá er komið inn NÝTT sjóðandi heitt Júlíuvídeó og fullt fullt af myndum.

Google er búið að loka fyrir að maður geti á einfaldan hátt sett inn videó beint á bloggið, þannig að þið smellið bara á linkinn til að skoða :)

"Narcissus hittir sjálfan sig"


19.5.10

Frumsýning gekk vel

Þá er ég loksins kominn heim í lengri tíma. Það er gott að geta verið heima hjá sér innanum dótið sitt og fólkið sitt. Sú littla veit aldrei hvernig hún á að haga sér þegar ég er að koma heim eftir langan tíma og snýst það oft út í fíflalæti og mikla gleði, sem er vissulega gaman að sjá.

Gunnar koma á frumsýninguna hjá mér og tók upp hljóð á meðan, sýnir svosem ekkert hvernig þetta hljómaði í raun og veru en gefur ágætis mynd. Hann leigði svakalegan bens til að koma hingað, nýrri gerðina af þeim sem við fórum á í sumarfíið í fyrrasumar. Og ég fékk að fljóta með honum til baka til Berlínar. Næsta sýning er svo á laugardaginn kemur.

Ég fór á fund í gær vegna góðgerðartónleika sem ég er að fara syngja á með þýsku sópransöngkonunni Barböru Krieger, en hún hefur einmitt sungið með mörgum af stærstu nöfnum heims, og er það því mikill heiður að fá að gera þetta með henni. Afar viðkunnanleg kona og ég hlakka til að syngja með henni. Góðgerðartónleikarnir eru vegna Gedächtniskirkjunnar hérna í Berlín sem er mörgum túristanum kunn, þar sem aðeins stendur einn turn eftir og restin að hruni komin, þessir tónleikar eru liður í að þakka styrkjendum fyrir og safna meira í leiðinni. Þetta er ágætis upphitun fyrir stórtónleikana í sumar :)

Að vera kominn heim til sín hefur þá kosti að maður getur leyft sér meira í mat og drykk. Hérna hjá okkur var spargel á mánudag og úr spargel afgöngunum gerði ég svo hvítvíns og rjómalagaða spargel súpu frá grunni, og ég get ekki sagt annað en að vel hafi tekist til. Þetta var nú bara eins og á besta veitingastað, nema ég veit að í þetta var ekki notað neitt duft og aðeins úrvalshráefni.

Ég veit reyndar ekki enn hvað verður í matinn í kvöld, en það á eftir að koma í ljós hvort það verði einhver ævintýramennska :)

Nú er hafinn undirbúningur að flutningum sem við höfum fest á dagsetninguna 18.Júlí. Fórum í gær í Bauhaus til að versla málningardót, málningu og svona holufyllingar spartl. Fólkið sem hefur búið á undan okkur hérna taldi sig vera afar gáfað þegar þau löguðu ljótar sprungur í baðkarinu með málningu sem ég þreyf af núna rétt áðan með acetone, baðið lítur í raun mikið betur út núna eftir skítavinnubrögðin hafa verið þrifin burt. Við erum líka búin að prufa loft og veggjamálninguna sem við keyptum og hún hverfur algerlega inn í það sem er fyrir, þannig að það er ótrúlegur léttir. Tónleikarnir mínir eru Föstudaginn 16.Júlí, og planið er að flytja tveimur dögum seinna, en þá verða einmitt þau gömlu í heimsókn og geta þá kannski tekið einn og einn geisladisk.

Við erum semsagt komin með undirritaðan leigusamning í hendurnar, og leigjandinn er svo indæll að hann hefur boðið okkur að fá lyklana mánuði fyrir innflutningsdag, bara ef við viljum flytja þetta í nokkrum ferðum, sem er frábært.

Ég er að reyna að koma mér í að læra allt sem ég þarf að læra fyrir næsta season í Görlitz, auk tónleikanna tveggja í sumar. Það er afar gaman að vanda að sitja og reyna að læra texta.....minnir mig alltaf á þegar ég var að reyna læra ljóð úr Ljóðaspegli hjá Stebba Bö í grunnskóla í gamladaga, það var ekki gaman og ekki auðvelt. Það ætti að vera eitt af sterku þáttunum hjá söngvara að vera snöggur að læra..........spurning hvort það komi með hækkandi aldri??

Sumarið hér lætur heldur betur á sér kræla, hér er skítkallt og maður þarf að klæða sig vel ef maður ætlar út, þykka peysu og létta vetlinga!! Ótrúlegur andskoti! En svona er þetta, í kortunum eru einhver hlýindi og það er vonandi að það haldist.

Þangað til næst, fyrir frelsara vorn Jesus Christ.

14.5.10

Milljónamærin snýr aftur

Þá er æfingum lokið fyrir óperuna "Der Besuch der Alten Dame", frumsýning er á morgun og í dag er hvíldardagur. Það er skítarigning hérna eins og er, og mjög kalt. Alveg merkilega óþolandi hvernig veðrið er búið að vera hérna síðust daga.

Ég ætlaði nú bara að henda inn nokkrum skemmtilegum myndum frá síðustu dögum og læt það duga í bili:

Viðtal við okkur tvo nýliðana í Görlitz birtist í dag í Sächsische Zeitung

Ég í hlutverki mínu sem þjónninn að tilkynna Illuga 40 ára gamla nauðgunarkæru :)

Brosmynd í gerfinu fyrir Skúla :)

Plakatið

10.5.10

Bobby

Þetta er semsagt nafnið á persónunni sem ég leik í uppsetningu óperuhússins í Görlitz á verkinu "Der Besuch der alten Dame", sem er ópera eftir Gottfried von Einem byggð á frægri sögu Freidrich von Dürrenmatt.

Hérna eru nokkrar myndir af gerfinu mínu sem er ansi skemmtilegt :)



7.5.10

Herberge, dagblöðin, æfingar og næsta ár....

Þar sem ég sit hér við gluggan og horfi út á Untermarkt torgið, verður mér litið á þetta sérstæða orð Herberge, sem við Íslendingar notum í daglegu tali. Ég haf marg oft velt því fyrir mér hvaðan þetta sé komið og afhverju við segjum herbergi um þessi rými í húsum. Orðið er samsett og er komið úr forníslensku að hluta og þýsku að ég held, nema þetta sé allt úr íslensku komið, hvað veit ég svosem um það. En fyrri hlutinn er að sjálfsögðu her(military) og svo bergen sem á þýsku útlegst sem skjól/byrgi. Þetta þykir mér merkilegt :)

Mikið hefur verið um æfingar síðustu daga og má alveg segja að vel hafi gengið, síðust 4 daga hafa verið æfingar með hljómsveit (OP) og svo æfing á sviði með hljómsveit (BO). Blaðamaður frá Berliner Morgenpost hafði samband við mig í vikunni og tók við mig langt viðtal sem á að birtast þann 17.júní nk, maður veit reyndar ekkert hversu umfangsmikið það verður nú þegar það er komið á prent :) Svo í næstu viku er ég að fara í viðtal hjá Sächsische Zeitung (reynið bara að bera þetta fram:)) Þannig að það er nóg að gera, það styttist óðum í frumsýninu, en nú er rétt rúm vika til stefnu.

Ég er búinn að fá áætlunina fyrir næsta ár, og það lítur út fyrir að tímabilið frá ágúst til jóla verði ansi strembið, en á móti kemur að eftir jól róast aðeins, ef hægt er að tala um ró :) Ég á svo 2 vikna vetrarfrí í febrúar og svo 6 vikna frí um sumarið, sem afar fínt. Gott að vita svonalagað fyrirfram.

Ég hef haldið símasambandi við litu fjölskylduna, og verð að segja að það er ótrúlega gaman að heyra í bakgrunninum þegar ég er að tala við Soffíu í síman "babba! babba" sem þýðir auðvitað pabbi :) Svo er nánast hægt að halda uppi samræðum við Júlíu í símann, henni þykir það afar mikið sport að fá að spjalla við pabba, sem er í "Göshhh" að "lalala".

Ætla að hendast heim til Berlínar, að lokinni æfingu á morgun, það verður afa ljúft. Þó mér þyki nú fátt leiðinlegra en að ferðast 3 tíma með ömurlegri lest.

Svona rétt í lokin langar mig svo að deila með ykkur stuttmynd sem var tekið að öllu leiti í Görlitz, það skemmtilega við það er að ég bý nákvæmlega þar sem flest atriðin voru tekin upp og útsýnið úr glugganum mínum er beint yfir torgið og á turninn :)

Þessi stuttmynd heitir "Stolz der Nation" og er í raunininni einskonar mynd í mynd :) Þ.e þessi mynd birtist í myndinni "Inglorious Basterds" sem áráðurmyndin. Þetta er auðvitað hálfgert grín og verulega ofleikið en svona á það að vera :)