27.5.10

Malli mall

Hér er allt með rólegheitum. Veðrið er skelfilegt, það er reyndar hlýtt, en ömurlega skýjað og maður er í svona hálfgerðu þunglyndi af ljósleysi. Það er ekki útlit fyrir að þetta eigi eitthvað eftir að skána á næstu dögum, sem er alveg svakalega ömurlegt. EN það þýðir ekkert að væla yfir þessu.

Hér styttist í Eurovision, en ég verð einmitt staddur í Görlitz að sýna þessa helgina, þó ekki á Laugardeginum, heldur sitthvorumegin við. Laugardagurinn er frídagur, og ég veit sveimér ekki hvað ég geri af mér þá. Það barst reyndar boð í grillpartý hjá kollega á laugardeginum kl 16. Aldrei að vita nema maður finni eitthvað Eurovision party í Görlitz :)

Ekki hafa birst neinir dómar um mína frammistöðu sem "The Butler", það hafa þó birtst dómar um aðra í stykkinu og eru þeir auðvitað allir jákvæðir. Ég vona bara að maður fái að sýna sig og sanna áður en tveggja ára samningurinn rennur út.

Ég fylgist auðvitað með kosningum á Íslandi og verð að segja þetta, Ólafur F. Magnússon er ótrúleg mannvera, ég sá í gær eð fyrradag frétt um að hann hafi verið ósáttur við myndirnar sem fjölmiðlar nota af honum í fréttum!! :) Svo fylgir með myndin sem hann vill að sé notuð í staðin. Það sem mér finnst fyndið við það er að bolurinn er blár með hvítum röndum, og það sem kórónaði svo ruglið er að í fréttum í kvöld er Ólafur í saman bolnum að ganga í hús og dreif bæklingunum sínum:) Æji það er bara eitthvað fyndið við þetta. Og almennt að sjá hvað fólk lýgur og reynir að segja það sem kjósendur vilja heyra, mér finnst þetta bara barnalegt að mannkynið sé enn að standa í þessu rugli. Er ekkert skárra til, í alvöru?

Júlía vex og vex, ég smellti mynd af henni í kvöld þar sem hún var að hendast í bað, og stendur í sömu stöðu og fyrir 6-7 mánuðum síðan. Skemmtilegt að sjá þetta þó það sé svona stuttur tímakvarði.




Engin ummæli:

Skrifa ummæli