31.8.09

Brúðkaup Fígarós og Sumar

Ég er nú á æfingu á Finale 2 úr Brúðkaupi Fígarós, það er verið að hamra sömu atriðin aftur og aftur og svosem lítið annað að gera en að blogga, enda kominn tími til. Tíminn hefur liðið mjög hratt hérna og það er skrítið að hugsa til þess að frumsýning er aðeins eftir 2 daga.... Sem er á sama tíma bara rosalega fínt, þar sem maður er farinn að vilja breyta um umhverfi aðeins. Reyndar er þetta voðalega þægilegt, maður er eitthvað svo laus við áhyggjur hérna og getur virkilega notið þess að einbeita sér bara að söng og engu öðru, með hjálp mjög góðra manna.

Í gær fórum við í matarveislu hjá sjúklega ríkum bankamanni, og hann býr í því allra flottasta húsi sem ég hef séð. Ég mun henda inn einhverjum myndum af þessu þegar ég kem heim aftur.

Hér er bara búið að vera fínasta veður, þó frekar kalt á kvöldin og morgnanna, þá verður maður að henda sér í peysu, en það lagast nú svosem uppúr hádegi, sem betur fer. Við erum reyndar alltaf inni þannig að það kannski skiptir ekki höfuðmáli.

Nú svo var öllum hérna hent í það sem heitir "Stilberatung" sem ekki skal rugla saman við "Stillberatung" :) Það var sérlega áhugvert að fara í þetta, okkur var hjálpað með fataval og hvað passar okkar litarhafti og vaxtarlagi, áhugavert sannarlega :) Ég er semsagt "Sumar" skv þessum fræðum, og það vill einmitt svo vel til að það er einmitt litasamsetning sem ég hata hvað mest:
(tekið af einhverjum vef hjá FSU)
Sumar
:
Einkenni:Mildir litir með bláum eða gráum tón. Svalir pastellitir, oft deyfðir/dempaðir með gráu. T.d. blábleikt, off-white/milt hvítt, ljósfjólað, blágrænt. Silfrað.
Húð: Oft rósbleik, e.t.v. freknótt.
Augu: Oft græn, móleit eða dökkbrún.
Hár: Oftast ljóst, dökkskollitað, hörlitt, e.t.v. aðeins rauðleitt. Klæðir oft vel upplitun/strípur.

Það er svosem ekki margt annað um þetta að segja :)

Ég fæ reglulegar fréttir af ungfrúnni, og hún er nú byrjuð að setjast upp sjálf og labba meðfram borðum, sem er mjög gott. Hérna má svo sjá mynd af ungfrúnni þar sem hún stendur alveg sjálf, og svo aðra þar sem hún bara sæt :) Þangað til næst....


25.8.09

Blues, Schmus und Apfelmus

Hér var um síðustu helgi heljarinnar blús hátíð í bænum, sem heitir btw þessu asnalega nafni sem er titill greinarinnar. Samt svaka flott búið að skreyta garðinn hérna og það var sannkölluð karneval stemmning í bænum. Við fengum frímiða inn á hátíðina eitt kvöldið og maður nýtti sér það nú til að labba um svæðið. Þetta var nú ekki skemmtilegasta tónlist sem ég hef heyrt sem þarna var í boði, þannig að ég lét mér nægja að rölta um og skoða sölubásana, sem er alltaf skemmtilegt.

Hér er allt að smella saman og maður er orðinn örþreyttur af söng alla daga, en einhvernvegin finnur maður samt orku til að halda áfram. Það eru skemmtilegir krakkar hérna og mórallinn er mjög góður, þannig að það heldur þessu svolítið á lofti líka. Nú er búið að ákveða þetta alltsaman og við munum vera í ljótu tískubúningunum alla sýninguna, upprunalega áttum við að syngja aríurnar okkar í okkar eigin "performance" fötum, því það gefst ekki tími til að skipta.
Ég mun syngja aríu sem ég hafði ekki undirbúið áður en ég kom en kann að mestu leiti, það gengur allt vel sem betur fer. Það er búið að hengja upp lista yfir þá sem eru í dómnefnd fyrir keppnina og það eru svosem engir smá pappírar, stjórnendur húsa eins og Staatsoper í Berlín, Óperunnar í Bonn, Saarbrucken og svo eitthvað meira sem ég man ekki eins og er. Í fyrra fengu meira en helmingur þáttakenda boð um samning hjá óperuhúsi eftir sýningarnar. Þannig að ef þetta er eins og í fyrra þá á ég góðan séns held ég. Verðlaunin eru 3000, 2000 og 1000 EUR fyrir fyrstu 3 sætin og svo eru 1000 EUR áhorfendaverðlaun fyrir hvert kvöld og það er ákveðið hver vinnur það með "klappmæli", sem er ekki nógu gott fyrir mig, því ég er fyrstur á svið, og reynslan kennir manni að fólk klappar oftar meira eftir því sem á líður, auk þess sem það fer nú ekki að klappa eins og brjálæðingar fyrir fyrsta atriðinu án samanburðar við önnur atriði, það er semsagt dauðadæmt að fá það.
En ég er ekkert að velta mér uppúr því að óþörfu. Þetta er exposure og það er það sem skiptir höfuð máli.

Ungfrúin er orðin hress og búin að ná sér af hitanum, unir sér ótrúlega vel í Svíþjóð hjá frænku sinni og mömmu. Ég fékk sendar myndir frá því að ungrúin fór í myndatöku fyrir norðan, og það kemur bara vel út. Svo fékk ég líka aðra mynd senda frá því í morgun sem er ansi fyndin :)
Hérna eru myndirnar............... þangað til næst, verið þið bless.

21.8.09

Hitamet, vinna og tíska

Þá má með sanni segja að hér hafi verið heitt síðustu daga, en gærdagurinn var þó það allra heitiasta sem ég hef upplifað. En hér for hitinn í 38 gráður og hélst þannig frá hádegi til loka dags, við vorum á æfingum allan daginn eins og vanalega og þær eiga sér allar stað innan hallarveggja úr þykkum steinum og því er mjög svallt innandyra og jafnvel oft kalt. Við fórum einnig til Frankfurt í gær til að máta föt hjá tískuhönnuðinum René Storck, en við munum sýna föt frá honum á í tískusýningarþemanu sem er á þessu hjá okkur. Ég verð í fatnaði upp á tæpa miljón ISK! Ótrúlega finnst mér þessi föt nú ekki alveg vera þess virði.

Hér er unnið mjög stíft og ekki laust við að mikil þreyta sé að gera vart við sig. Ég á sem betur fer um 4 tíma frí í dag frá æfingum og ætli maður nýti það ekki til að fara reyna læra það sem ég er að fara syngja í Nauköllner Oper, en ég fékk einmitt allar nótur í gær frá þeim.

Svo eru einhverjar tilfæringar í lagavalinu mínu sem er eilítið pirrandi!! Ég sendi lista yfir 5 aríur sem ég vil gefa kost á, og þar af ættu þeir hérna að velja eina, ásamt mér til að syngja í keppninni sem er hluti af þessu prógrammi. Nema hvað allt í einu vilja þessir ágætu aðilar að ég syngi aðra aríu en það sem ég var búinn að undirbúa, málið er það að ég kann þessa aríu, en hún fer mér ekkert svakalega vel og ég þarf að taka góðan slurk í að rifja upp textann osfrv! Sem er óþolandi, því hitt allt gæti ég sungið með bundið fyrir augu eyru og munn :)

Það sem nýtt er að ég hef verið boðaður í áheyrnar prufu hjá umboðsskrifstofu Neill Thornborrow í Düsseldorf þann 9.sept nk, þetta kemur í kjölfar umsóknar sem ég sendi þeim eftir að Wolfgang hafði talað við þá og beðið um að taka mig í prufu. Þetta er skref áfram.......ekki endilega uppávið en áfram.

Júlía litla er núna fárveik í Svíþjóð með móður sinni, með háan hita og sefur því enn verr en áður, þetta er ótrúlegt ástand og alveg hreint ömurlegt að mamma hennar fái ekkert að hvíla sig, en ég vona að þetta fari nú að ganga yfir. Það er búið að fara með hana til læknis sem fann ekkert að og því þarf bara að bíða og vona að allt sé í lagi.

Þangað til næst.

19.8.09

Oper Schloss Laubach

Já þá er ég staddur í Laubach sem, fyrir þá sem ekki vita, er í Hessen héraði í Þýskalandi, rétt hjá Frankfurt.

Ferðin hófst kl 6 að morgni í Berlín, þegar ég vaknaði og kláraði að pakka niður til að taka svo lestina til Fulda. Það munaði tæpri mínútu að á missti af lestinni!! Skil ekki hvað maður var að pæla en svona er það nú. Lestarferðin tók rétt rúma 4 tíma til Fulda, sem betur fer eru innstungur við borðsætin í lestunum hér, þannig að ég gat bara glápt á videó allan tímann og þetta var mjög fljótt að líða. Svo tók við um klukkutíma ferð frá Fulda til Laubach, þar sem á móti mér tók einkabísltjóri í einkabílsjtórafötum :) Mér leið eins og algerum VIP :)

Nú erum við rétt að byrja á degi 3 og ég verð að segja að þetta er helvíti gaman, og ég er mjög ánægður það sem af er. Það sem við erum að gera:

-Leik og framkomuþjálfun
-Sálfræðimeðferð (einhverjir hlæja eflaust yfir þessu)
-Dansþjálfun
-Raddþjálfun

Og svo auðvitað vinna með stjórnanda í að undirbúa allt sem við erum að gera. Conceptið í ár er tískusýning, þannig að allar senur fara fram á "catwalk" sem er mjög áhugavert. Við förum svo til Frankfurt á morgun þar sem við förum að máta hjá einhverjum þekktum tískuhönnuði, það verða svo fötin sem við notum í senum. Í arínum okkar verðum við í okkar eigin performance fötum. Fólkið er skemmtilegt og ekkert sem ætti að geta eyðilegt þessa reynslu, nema einhver hræðileg veikindi, sem ég vona bara að ég lendi ekki í :)

Á sama tíma mun ég fá sent allt efni sem tengist Rigoletto, sem ég er að fara syngja í Neuköllner Oper, þannig að það verður meira en nóg að gera næstu 3 vikurnar!!!

Meira var það ekki í bili, ég mun svo setja einn einhverjar myndir á næstu dögum.

Þangað til þá......

15.8.09

Sjóðheitar upptökur og litli dansarinn

Þá eru komnar allar upptökur úr stúdíóvinnu og hef ég sett þær inn á söngvara heimasíðuna mína (egillpalsson.com) Mér þykir hafa tekist vel til.

Fyrir þá sem nenna ekki að smella lengra er hægt að hlusta hérna líka :)





Svo er hérna létt vídeó af Júlíunni littlu að dansa og setja upp svakalega fallegan svip í leiðinni :)

12.8.09

Röddin og pasta

Mig langar rétt að benda fólki á að kíkja aðeins á heimasíðuna www.stodkennarinn.is og smella þar á Kynningarmyndband. Hlustið í svona rúma mínútu :) Það gæti komið skemmtilega á óvart.

Svo langaði mig að deila með lesendum síðunnar hvernig á að laga grunn að pasta sem hreinlega getur ekki klikkað...!
Fyrst að sjóða pasta (al dente auðvitað), ég kýs að sjóða upp úr kjötkrafti og 2-3 msk af olíu.
Svo er það einfallt, bræða c.a msk af smjörlíki eða smjör í potti, bæta við það tveimur eða fleirum fínt söxðuðum rifjum af hvítlauk og hugsanlega teskeið af fíntsöxðuðu chilli. Láta rétt malla þangað til að hvítlaukurinn er orðin mjúkur, má alls ekki brenna! Svo bara hella pastanu saman við og hræra vel þannig að smjörvökvinn nái að dreifast vel. Svo setur maður bara saman við þetta hvað sem hugurinn girnist: sólþurkaða eða ferska tómata, fersk basil osfrv. Eitt og sér er þetta bara svaka fínt og ódýrt. En ég mæli með að blanda einhverju við. Mæli með að þið prufið þetta næst þegar þið eruð að gera t.d spaghetti!

Fyrir tvo, miða ég við góða matskeið af smjöri, tvö rif og 1/3 af heilum chili pipar. Auk þess að vera gott, veldur fitan því að pastað loðir ekki saman eins og oft gerist.

Annars var það nú ekki fleira :) Góðar stundir.

10.8.09

Tíminn er núna!!!

Margt hefur verið að gerast síðustu daga, flest af því mjög gott og ánægjulegt sem betur fer. Annað í þunglyndislegri kantinum, en hvernig getur það staðist þegar allt gengur vel??

Nú fyrst ber kannski að nefna að ég hef verið í stúdíó hérna í Berlín að reyna að taka upp demó til að senda á umboðsmenn, keppnir og annað sem maður sendir demó upptökur í :) Seinni dagur upptaka var í dag og verður að segjast eins og er að ég er bara nokkuð ánægður með það sem er komið á band.....eða á maður að segja byte? Eftirvinnsla er svo planlögð á föstudag og því er fyrstu tóndæma að vænta á laugardag/sunnudag. Ég get varla beðið.

Nú svo eru það fréttirnar sem ég vildi ekki segja frá fyrr en ég hefði allt staðfest um það í höndunum, nú hef ég það semsagt. Fyrir stuttu hringdi í mig tenór félagi minn sem var með mér í Rheinsberg, og hann hafði skráð sig í eitthvað prógram sem hann gat ekki tekið þátt í, og spurði hvort ég hefði áhuga á að fara í staðinn fyrir sig, sem ég og samþykkti. Svo var hringt í mig og mér sagt að ég þyrfti að læra einhver tvö samsöngsatriði úr Brúðkaupi Fígarós og Fidelio, en ég þyrfti að senda einhver gögn og þau gætu ekki svarað mér fyrr en í dag um hvort ég mætti taka þátt. Eins var mér sagt að ég fengi ekki að taka þátt í keppnum til verðlauna fyrr en þau hefðu heyrt í mér. Svo í dag var mér sagt að ég mætti taka þátt í öllu, og það væri ekkert mál. Þetta held ég að sé vegna þess að ég sendi þeim slóðina á heimasíðuna mína, því þau hafa núna augljóslega heyrt í mér, þar sem ég fæ að vera með í öllu (egó loksins) :) Það sem er svo kannski jákvæðast við þetta er að ég fær borgað fyrir að taka þátt í þessu 3 vikna prógrammi, þar sem ég leiklistar og danstíma auk söngþjálfunar og Masterklassa.
Það er því ekkert lítið að fá að gera þetta. Það er semsagt umboðsskrifstofa sem heldur þetta og þarna verða óperustjórar allstaðar að úr þýskalandi í dómnefndum og annað slíkt, þannig að þetta verður vonandi stórt og mikið tækifæri í ofanálag. Ég er semsagt að fara í þetta eftir viku (17.Ág), og æfingar hefjast svo eigninlega í Neuköllner Oper daginn eftir að ég kem heim aftur, stress, spenna, álag, hvað er hægt að biðja um meira????????

Þunglyndið er vegna fjárhags og útlits í fjármálum heima á Íslandi, það er ekki gaman að þurfa að hrökklast heim vegna þess að peningar eru búnir, en ég á ennþá inni um 6-8 mánuði af sparnaði og svo er bara dæmið búið, þetta veldur áhyggjum og óþarfa stressi, auk þess sem sjúkratryggingar eru að renna út!!! og eitthvað fleira eflaust sem ég nenni ekki að rifja upp.

Júlíuhornið
Sú stutta hefur að mestu verið að sofa vel, en síðustu daga hefur það nú ekki alveg verið eins og best væri á kosið. Hún er svona eiginlega ljósið í myrkrinu ef svo má segja, vel samsett barn, lífsglatt og þroskað. Hún gerir allavega lífið skemmtilegra núna, þó hún geti líka reynt á það fínasta.

Hún var úti á svölum um daginn í göngugrindinni sinni, þar sem hér hefur verið um og yfir 30 stiga hita síðustu 10 dagana eða svo, svalirnar ekki alveg nógu hreinar verð ég að segja en svona er það nú bara.

8.8.09

Zum Geburtstag viel Glück!

Sungið við sívinsælt "Happy Birthday To You" eftir Patty og Mildred.J Hill, fyrir þá gömlu í Holti :)

Zum Geburtstag viel Glück
Zum Geburtstag viel Glück
Zum Geburtstag liebe Mutti
Zum Geburtstag viel Glück

Til hamingju með daginn mamma

4.8.09

Smáralindarbæklingurinn

Vorum í smá göngutúr í dag og í einni versluninni rakst ég á þetta. Tilefni í annan Smáralindarbækling ekki satt? :)

1.8.09

Gleðilegan strákúst!

Þá er kannski kominn tími á aðra færslu. Við erum sannarlega búin að jafna okkur eftir ferðina góðu og nú hefur hversdagsleikinn tekið við. Hversdagsleikinn er fínn að mörgu leiti, þá helst að því leiti að það er svo gaman að breyta til :) Við buðum í léttan ítalskan mat hérna í gær með tilheyrandi rauðvínssulli og situr undirritaður nú með léttan höfuðverk að borða currywurst og drekka bjór með til að rétta sig af fyrir daginn :)

Það sem er helst að frétta héðan frá mér er að mér hefur verið boðið þetta hlutverk, sem ég held ég hafi áður minnst á, í Neuköllner Oper. En það er lítil ópera hérna í Berlín sem er frekar virt að mér skilst, en þá að því leiti að þeir eru að gera "öðruvísi" hluti, sem er alltaf talið gott. Í þetta skiptið á að taka fyrir Rigoletto eftir Verdi og búa til eitthvað úr því! Ég verð því að vinna hérna eitthvað aðeins fram að næsta ári, en hvað þá tekur við veit nú engin, vandi er um slíkt að spá. Þetta þýðir meðal annars það að ekki verður farið heim um jól og áramót eins og var í kortunum, þar sem sýningar eru aðeins of nálægt hátíðardögum. Í staðin höfum við sett annað plan í gang, en það er að reyna að plata fólkið okkar hingað :) Sjáum hvernig það fer.

Ég er nú á fullu að undirbúa mig fyrir upptökur sem ég er að fara í 1o. og 12. ágúst. Upptökum þessum er ætlað að notast sem efni til að senda á umboðsmenn og í keppnir eftir því sem við á. Ætlunin er að taka upp að lágmarki 4 aríur og gera það vel.

Júlíuhornið
Sú stutta þroskast með ógnarhraða og er alveg dásamlegt barn að flest öllu leiti, nema það að hún mætti nú alveg sleppa því að vakna á klukkutíma fresti yfir nóttina. Komin með 3 tennur og byrjuð að "tala" alveg svakalega mikið. Hún fer mikinn í göngugrindinni sinni á hverjum degi og maður verður að hafa sig allan við að stoppa hana af þegar hún fer í leiðangra sína um íbúðina.

Vídéó frá Rheinsberg, sýning nr.2 sem er alltaf lélegust, en svona er það nú bara :)