Eftir mikla yfirlegu, ferðalög og spekúlasíónir, var lagt af stað til Akureyrar í morgun (erum í Skagafirði) í þeim eina tilgangi að kaupa bíl.. Þar var deginum eytt í að reynslu keyra ýmsa bíla, sem allir höfðu sitthvað fram að færa. En ofan á, um kl 15:00, varð svo forláta Skoda Octavia MDi, árg 2006, bensínknúin og beinskipt. Græn á lit, sem er hennar helsti löstur, en liturinn er ekki bíllinn, svo mikið er víst. Hún flaug í gegnum ástandsskoðun með einungis 3 smá athugasemdir. Fast á hæla Oktavíurnar var svo Corolla Wagon, en þar skildi að um 500.þús, og var litið til þess með valið í huga. Við erum himinlifandi með gott val, og nú er bara að vona að að við verðum jafn heppin og flestir Skoda eigendur :)
Hér er mynd af dýrinu eftir sína fyrstu áfyllingu hjá nýjum eigendum :)
PS: það er kannski rétt að taka það fram að bílnum var ekki lagt svona langt frá dælunni, heldur var honum bakkað inn í þeim eina tilgangi að taka mynd :)
20.3.12
14.3.12
Annað marsbloggið
Eins og mig grunaði þá er bloggþurrðin mikil núna og frá afar litlu að segja. En það helsta er kannski að ég er búinn að vera í RVK síðustu daga, svona að dunda mér við að senda atvinnuumsóknir og spila tölvuleiki og heimsækja fólk. Það er svosem allt eins og það á að vera og ekkert óvenjulegt og nýtt að gerast. Við erum þó búinn að setja bílakaup á smá pásu, því það er ekki alveg á tæru hvernig við ætlum að fjármagna þetta alltsaman. En Octavía er ennþá stefnan og mun það gerast hvenær sem það svosem verður.
Í kvöld skellti ég mér á generalprufuna á La boheme í Hörpu, en þetta var einnig í fyrsta skipti sem ég kem í það ágæta hús, og ég verð að segja að þrátt fyrir 2007 hrollinn sem fór um mig þegar ég kom þarna inn, þá varð Eldborgarsalurinn til þess að gera mig afar stolltan af því að Íslendingar eigi svona flott heimsklassa hús, sem var í raun löngu tímabært, og ég held að þrátt fyrir gagnrýnisraddir, þá hafi verið tekin rétt ákvörðun með að klára byggingu þess. Frumsýning La boheme er svo á föstudaginn kemur og þar á ég miða ásamt foreldra einingunum, og ég ætla að reyna að njóta þess, þrátt fyrir allt það sem kann að fara í taugarnar á mér.
Annars er hér mest lítið annað að frétta og ég hendi inn upplýsingum þegar þær berast.
1.3.12
Octavíian
Þessa dagana hefur verið furðulega mikið að gera, miðað við að maður sé í fríi :) Við erum búin að vera flækjast mikið í RVK, og þá aðallega að leita að nýjum bíl og leysa út búslóð. Við höfum augastað á Skoda Octavía, vegna fjölda meðmæla og afar hagstæðrar eldsneytiseyðslu, bæði innanbæjar og í langkeyrslu. Lánamál fyrir bíl eru mjög erfið, þar sem við erum ekki með íslenskar tekjur, og því ekkert voðalega auðvelt að labba inn í næsta banka og biðja um lán.
Búslóðin kom í gær, og var keyrð heim að geymslu sem við erum búin að leigja í Hafnarfirði. Það var nokkuð ljúft að fá þetta dót allt aftur til baka, að því er virðist í heilu lagi. Allavega virkar PS3 vélin mín, sem er afar ljúft :) Það kom mér mest á óvart að þetta lítur ekki út fyrir að vera eins mikið hingað komið, eins og það leit út þegar við vorum nýbúin að pakka því. En það er bara rosalega fínt. Geymslan sem við leigðum er 8,5 fermetrar og hafði ég talsverðar áhyggjur af því að það væri hugsanlega ekki nóg pláss, en viti menn, það er feyki nóg, og útlit fyrir að við getum að miklu leiti losað M&P við eitthvað af dótinu sem er hérna búið að vera í geymslu hérna í kjallaranum hjá þeim í nokkur ár :)
Að öðru leiti er afar lítið að frétta og við bara í góðu yfirlæti í sveitinni, þó alltaf sé óþægilegt að vera ekki með dótið sitt og svona fastan stað til að vera á. Nú er verið að leita að íbúð og vinnu frá og með næsta vetri, en það hefur svosem ekki verið að bera árangur ennþá :)
Að lokum nokkrar myndir úr vetrinum í Laugarási.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)