1.3.12

Octavíian

Þessa dagana hefur verið furðulega mikið að gera, miðað við að maður sé í fríi :)  Við erum búin að vera flækjast mikið í RVK, og þá aðallega að leita að nýjum bíl og leysa út búslóð.  Við höfum augastað á Skoda Octavía, vegna fjölda meðmæla og afar hagstæðrar eldsneytiseyðslu, bæði innanbæjar og í langkeyrslu.  Lánamál fyrir bíl eru mjög erfið, þar sem við erum ekki með íslenskar tekjur, og því ekkert voðalega auðvelt að labba inn í næsta banka og biðja um lán.

Búslóðin kom í gær, og var keyrð heim að geymslu sem við erum búin að leigja í Hafnarfirði.  Það var nokkuð ljúft að fá þetta dót allt aftur til baka, að því er virðist í heilu lagi.  Allavega virkar PS3 vélin mín, sem er afar ljúft :)  Það kom mér mest á óvart að þetta lítur ekki út fyrir að vera eins mikið hingað komið, eins og það leit út þegar við vorum nýbúin að pakka því.  En það er bara rosalega fínt.  Geymslan sem við leigðum er 8,5 fermetrar og hafði ég talsverðar áhyggjur af því að það væri hugsanlega ekki nóg pláss, en viti menn, það er feyki nóg, og útlit fyrir að við getum að miklu leiti losað M&P við eitthvað af dótinu sem er hérna búið að vera í geymslu hérna í kjallaranum hjá þeim í nokkur ár :)

Að öðru leiti er afar lítið að frétta og við bara í góðu yfirlæti í sveitinni, þó alltaf sé óþægilegt að vera ekki með dótið sitt og svona fastan stað til að vera á.  Nú er verið að leita að íbúð og vinnu frá og með næsta vetri, en það hefur svosem ekki verið að bera árangur ennþá :)

Að lokum nokkrar myndir úr vetrinum í Laugarási.








Engin ummæli:

Skrifa ummæli