21.2.12

Síðasta bloggið í bili?

Þar sem við erum komin heim er til lítils að vera halda út einhverju sérstöku bloggi til að upplýsa um það sem er að gerast, eða hvað?  Það er allavega ekki mikill hvati til að nenna að skrifa eitthvað.  Kannski heldur maður þessu áfram fyrir sjálfan sig, þar sem um öllu meira er að skrifa núna en áður en við fluttum burt.  Ég vona þó að við séum ekki alveg komin til að vera.  En það verður bara að skoðast á næstu mánuðum.

Já, til að draga saman síðustu daga þá er kannski helst nýliðin helgi sem stendur uppúr.  En þá hélt ég stórtónleika í Aratungu ásamt því sem sú yngri var skírð í Skálholtskirkju daginn eftir.  Þetta gekk nú allt saman upp, og það var ótrúlega gaman að sjá allt fólkið sitt og að þau skyldu gleðjast með okkur.  Fólk gerði sér sérstaka ferð úr Reykjavík á tónleika og svo skírn daginn eftir, sem er alveg ótrúlegt, og ég er afar þakklátur þeim stuðningi sem ég hef fundið fyrir og það gladdi mig mikið að fólki þótti gaman á tónleikunum mínum :)  Ég var, eins og svo oft, ekki alveg sáttur með mína frammistöðu, en þá hefði ég bara átt að aflýsa tónleikunum, ég tók sénsinn að ég væri orðinn nógu góður og það var kannski ekki alveg raunin.  En svona er líf söngvarans.

Hér höfum við bara verið að taka því rólega síðustu daga, og ég að byrja að skoða hvað ég vil gera með líf mitt í framtíðinni.  Núna er t.d verið að skoða Rafeindavirkjun, sem væri vissulega ákveðið rökrétt framhald á tölvu þekkingunni.  Söngurinn er kannski ekki það sem ég sé fyrir mér að ég muni vinna við, stressið og óvissan er bara allt of mikil fyrir mitt litla hjarta.  Þó verður maður líkast til alltaf með annan fótinn í þessu, sem er kannski bara best.

Jæja andleysið er komið upp og ég veit ekki alveg hvað ég get sett meira niður hérna.  En myndir eru komnar inn á sinn stað (hérna).



Engin ummæli:

Skrifa ummæli