27.2.09

Síðasti vinnudagurinn

Þá er komið að lokum þessa tímabils.  Skemmtileg og áhugaverð 10 ár með skemmtilegu og góðu fólki.  Ég notaði daginn í það að kveðja fólk og klára ýmis mál sem á mér hvíldu.

Ég er því kominn með nýtt símanúmer sem þið þurfið að nota ef þið þurfið að ná í mig.
Gamla númerinu 664-6232 verður lokað í kvöld eða á mánudag, það þýðir því ekkert að vera með það addressubókinni sinni lengur.  Í staðinn má notast við:
+49-162-488-0984
Endilega nota þetta númer í framtíðinni til að hringja og senda mér sms, þangað til annað er tekið fram :)

Nú er ferðinni heitið í Kaufland og IKEA til að versla inn fyrir heimilið.   Starfslokapartíið sem átti að vera í kvöld var frestað til morguns vegna ónógrar þáttöku.   Morgundagurinn hentar flestum mun betur.  Það er líka bara meiri ró í því, þó er ég reyndar á námskeiði milli 16 og 19 á morgun, en ég er á bílaleigubíl þannig að ég verð snöggur.

Nú áheyrnarprufan gekk svosm ágætlega, nema hvað ég er nokkuð viss um að ég verði ekki fyrir valinu, er meira að segja ekki alveg viss um að ég vilji það.  Þetta var pínlítill salur og mjög ljótt hús, heillaði mig mjög lítið.  Við keyrðum semsagt til Neustrelitz í gær og ferðin tók um 2 tíma, það var leiðinda veður, rigning og þunglyndislegt.   Vegurinn var einbreiður og mjög mikið af vöruflutningabílum á ferð, þannig að þetta var nú ekki skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í.  FS og FrkJ komu með og var sú síðarnefnda pirruð eins og venjulega.  Á heimleið var svo allt stopp, þar sem það hafði orðið eitthvað slys, ég notaði GPS tækið og fann aðra leið heim, en það þýddi um 30 mín lengri för, það hefði hvort eð er verið eitthvað svipað að bíða í röð.   Júlía er skemmtileg og góð og svo grenjar og grenjar, engin veit afhverju, en búið er að komast að því að hún þegir og er róleg fyrir framan sjónvarpið, nú og svo var að detta í hús stóll sem miklar vonir eru bundnar við, en það er þessi hérna.  Nú verður gaman að sjá hvort þetta virki eitthvað :)

Jæja þá er þessi vinnudagur búinn, og ég stimpla mig út í síðasta skipti.......

25.2.09

Kominn aftur til Berlínar

Þá er maður kominn aftur á heimilið sitt umkringdur sínu dóti og með geymslupláss og ekki tilfinninguna að vera inni á einhverjum.

Það er vissulega gott að vera kominn aftur, en auðvitað saknar maður alltaf fólksins síns.  
Hér tekur nú við smá törn í að gera sig að alvöru söngvara.  Síðasti vinnudagurinn minn er á föstudaginn og hef ég boðið í léttar veitingar hérna á Kurfürsten í tilefni af því að nú hefst nýr kafli í mínu lífi, kafli sem verður vonandi stærri og meiri en sá sem lokið hefur verið við auk þess má segja að þetta sé einnig 10 ára afmæli mitt í vinnu á sama vettvangi.  Það verður skrítin tilfinning að hafa engar skildur nema gagnvart sjálfum sér og fjölskyldunni.

Á morgun  hendist ég upp til Neustrelitz þar sem ég er að fara í áheyrnarprufu fyrir lítið hús þar í bæ.  Við höfum einmitt tekið bíl til að fara þangað saman og reyna að sjá eitthvað í leiðinni.  Svo fékk ég bréf frá öðrum aðilum sem ég sendi DVD og þeir hrifust svo af að þeir vilja hitta mig og heyra í mér "live".  Það verður semsagt í næstu viku, þetta er fyrir mjög stóra óperuhátíð sem er haldin á sumrin.   Ég var búinn að skrá mig í þetta í fyrra en gat ekki mætt sökum veikinda, en nú er vonandi komið að því :)  Þetta er að sjálfsögðu allt eins og áður maður veit í raun ekkert hvað kemur útúr þessu, en eini sénsinn að fá eitthvað er að taka þátt!

Ætlunin var líka að sækja um í alþjóðlegri keppni í Osló sem er í ágúst en það þarf að vera búið að skila öllu efni fyrir 1.mars og ég vil ekki taka áhættuna á að tapa 80 evrum ef ég fæ ekki að vera með.  Svona er það nú bara.

Júlía hefur að mestu verið góð, en þó var hún vælandi meira og minna í allan gærdag, og til kl 1:30 eins og venjulega.  Við erum að fara reyna að hefja smá svefnþjálfun núna, þannig að það verður gaman að sjá hvað gerist.  Skv "Uppeldishandbókinni" ættu börn sem eru um 5 kg að sofa 5-7 tíma á nóttu.   Júlía hefur einmitt aldrei sofið meira en 4 tíma í einum rykk!!

Jæja nóg er komið af skrifi, ég læt vita hvernig gekk í prufunum og mun fara skrifa reglulegar í þetta blogg :)

Komnar eru inn FULLT FULLT af myndum fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.


18.2.09

Að dunda sér í ásnum

Hér höfum við haft það verulega gott þó stutt sé, Reykjavíkurferð er áætluð á morgun, reyndar ekki fyrr en undir miðnætti eða þar um bil.  Veður hefur nú kannski ekki verið með besta móti, en það hafa skapast skilyrði fyrir ákveðinni tegund myndatöku sem kallast HDR myndataka eða eitthvað svoleiðis.  Ég hef að sjálfsögðu reynt að nýta mér þessa nýfengnu þekkingu til að grípa náttúrufegurð Laugarássins og nágrennis.  Hér að neðan fara nokkrar myndir sem spruttu úr þessari vettvangsferð minni og EOSins.

Júlía litla er búin að vera mjög dugleg og heimsótti afa og ömmu í vinnuna í dag, þvímiður hitti hún ekki á "Guðrúnu á bókasafninu", en það koma líklega tímar.   Hún hefur vissulega skánað og það er ennþá þakkarvert, en það er byrjað að örla á smávægilegri tilætlunarsemi hjá henni, sem seinnameir verður frekja, og í skjóli magakrampa getur hún enn komist upp með það að maður tekur ekkert á þessu eins og agavandamáli :)  

16.2.09

Júlía Freydís Egilsdóttir

Stelpan hefur semsagt hlotið fullt nafn fyrir augum guðs og manna og erum við að sjálfsögðu voða ánægð með að þetta sé nú allt komið, þ.e öll formlegheitin búin.

Það er annars að frétta að ég kom til landsins fyrir rúmri viku síðan og hef dvalið í góðu yfirlæti hjá tengdó í Skagafirðinum.  Þar var líka drifið í það að fara með þá litlu til læknis til að láta kanna allt sem hægt væri svo það væri nú hægt að útiloka alvarlegri hluti.  Það var gert með rannsókn á blóði og þvagi auk skoðunnar hjá frábærum lækni á Akureyri.   Þetta er semsagt bara ungbarnakveisa!!  En það eru nú góðar fréttir að hún hefur stórlagast á síðustu 2 vikum.  Núna er þetta að mestu bundið við kvöldin milli 20 og 1 á nóttu.    Við erum því nokkuð ánægð með þetta þar sem sú litla er að mestu núna ansi lífsglöð.  

Risastór veisla var haldin að Neðri-Ási, og sú litla fékk margar góðar og fallegar gjafir, héðan fara að sjálfsögðu margar þakkir til allra sem þangað mættu og glöddust með okkur.

Allavega við erum nú mætt í Holtið og þar verðum við fram á föstudag, en þá er ferðinni heitir til RVK þar sem þarf að útrétta ýmislegt :)  M.a á að reyna að sína Íslensku Óperunni að ég get sungið og fara út að borða með frúnni á meðan guðfeðgin passa og sjá til þess að Júlía víki ekki af hinum gullna vegi trúarinnar.

Hérna fyrir neðan má svo sjá skírnarmynd af þeirri litlu og eina þar sem sú litla sýnir stollt plásturinn sem hún fékk eftir blóðrufuna sem hún fór í hjá lækninum :)

5.2.09

Mér þykir afar leiðinlegt...

...að ferðast, og það er komið að enn einu ferðalaginu.  Það sem vekur með mér mestu leiðindin er tollahliðið í Keflavík, og það er ekki afþví að ég hef eitthvað að fela, heldur þvert á móti, manni líður alltaf eins og maður sé einhver glæpamaður.  í þetta skiptið er ég glæðamaðurinn að fara flytja með mér stórhættulega myndavél sem stórskaðar þjóðarbúið afþví að ég keypti hana ekki á Íslandi. Þeir hjá tollinum ráðlögðu mér að fara með vélina í rauða hliðið og tilkynna hana og láta vita að ég færi  með hana aftur úr landi, þá fnegi ég einhverja kvittun og þeir myndu taka niður kreditkortanúmerið mitt sem tryggingu.  Svo afhendi ég kvittunina þegar ég fer út aftur og þá er allt fellt niður!!!!   Er þetta svona í nokkru öðru landi í heiminum?!?  Helvítis fasista land!

Allavega, snemma í fyrramálið hendist ég í tíma hjá títtnefndum Wolfgang, og svo heim að klára að vinna og svo er það bara til Íslands, þar sem góðvinur minn Þröstur ætlar að sækja mig á völlinn, ég mun stoppa stutt í Reykjavík og fljúga snemma til Akureyrar daginn eftir.  Síðan á að skíra 14.febrúar, fljúga svo til baka til Reykjavíkur og eyða nokkrum dögum í Laugarási, svo er það að syngja fyrir Íslensku Óperuna og fara til tannlæknis föstudaginn 20.febrúar.  Að öðru leiti hefur ferðin lítið verið skipulögð.

Svo er það áheyrnarprufa þegar ég kem út og síðustu 4 dagarnir í vinnu, þetta er allt stórmerkilegt.  Ég er búinn að fá námslánið mitt, það fyrsta á ferlinum og ég get ekki annað sagt en það breyti ansi miklu, áhyggur af næsta ári hurfu fljótlega, þó þarf maður nú að fara varlega með það sem maður er með.  Það er auðvelt að eyða peningum, þó þér séu nú eiginlega til þess:), en galdurinn er að gera það svo skynsemi sé í því.  

Dagarnir hér hafa verið ósköp ljúfir og það er sannarlega ekki hægt að kvarta yfir því.  Þó neita ég því ekki að ég sakna þess að sjá ekki Júlíu litlu vaxa á þeim hraða sem hún er búin að vera gera.  Hún fór með mömmu sinni í höfuðbeina og spjaldhryggs jöfnun í gær og í dag, og skilst mér að hún hafi bara verið mjög góð, það er vonandi að það haldi áfram að vera þannig.  Svo á mánudag þá eigum við tíma hjá íslenskum lækni, sem ætlar að taka röntgen og gera einhverjar rannsóknir, þá erum við allavega búinn að gera flest allt sem hægt er, nema að setja hana á formúlu.  Það er semsagt versti kosturinn skv öllum.  Svona er það nú.

Hérna eru svo tvær myndir sem ég fékk sendar í dag.

1.2.09

Að hafa ekki vitað þetta áður

Í gær var sem sagt farið á "The Bird", sem fyrir þá sem ekki vita er hamborgara og steikarstaður að bandarískri fyrirmynd.   Þangað er langt að fara fyrir mig, eða um klukkutími.  Við hittumst þarna fámennur hópur íslendinga til að gæða okkur á hamborgurum.    Það má eiginlega segja að þarna hafi ég smakkað besta borgara í heimi fram til þessa.  Það er með ólíkindum hvað þetta var gott, kjötið var líklega um 6-7 cm breitt gert úr glænýju nautahakki, með einhverjum ruglgóðum kryddum og eldgrillað.   Þetta var að sjálfsögðu ekki eldað meira en "medium rare", þeir taka það reyndar fram á matseðlinum að vinsamlegast ekki biðja um meiri steikingu en medium :)  Ég kann vel við þennan stað.  Maður fær troðinn disk af miklu góðgæti, allt er búið til á staðnum meira að segja tómatsósan.  Mínusarnir sem staðurinn fær er háfaðinn og svo var bjórinn hálfflatur. En ég mun alveg örugglega fara aftur.  Verðmiðinn?  Jahh, ekki það ódýrasta, en 11 Evrur fyrir borgarann og 3 fyrir bjórinn, en það má svosem teljast eðlilegt.   Þarna eru líka steikur sem gaman væri að prufa, en fyrir 300gr steik þar að borga litlar 36 Evrur, en miðað við borgara reynsluna, þá efast ég ekki um að steikin sé góð.


Jæja þá fer maður að koma sér í það að læra tónfræði og tónlist.  Júlía er enn við sama heygarðshornið og ekkert við því að gera, þó á að reyna að panta tíma hjá lækni í næstu viku, einhverjum sérfræðingi í óþoli barna.  Verður gaman að sjá hvað kemurútúr því.