Ég er því kominn með nýtt símanúmer sem þið þurfið að nota ef þið þurfið að ná í mig.
Gamla númerinu 664-6232 verður lokað í kvöld eða á mánudag, það þýðir því ekkert að vera með það addressubókinni sinni lengur. Í staðinn má notast við:
+49-162-488-0984
Endilega nota þetta númer í framtíðinni til að hringja og senda mér sms, þangað til annað er tekið fram :)
Nú er ferðinni heitið í Kaufland og IKEA til að versla inn fyrir heimilið. Starfslokapartíið sem átti að vera í kvöld var frestað til morguns vegna ónógrar þáttöku. Morgundagurinn hentar flestum mun betur. Það er líka bara meiri ró í því, þó er ég reyndar á námskeiði milli 16 og 19 á morgun, en ég er á bílaleigubíl þannig að ég verð snöggur.
Nú áheyrnarprufan gekk svosm ágætlega, nema hvað ég er nokkuð viss um að ég verði ekki fyrir valinu, er meira að segja ekki alveg viss um að ég vilji það. Þetta var pínlítill salur og mjög ljótt hús, heillaði mig mjög lítið. Við keyrðum semsagt til Neustrelitz í gær og ferðin tók um 2 tíma, það var leiðinda veður, rigning og þunglyndislegt. Vegurinn var einbreiður og mjög mikið af vöruflutningabílum á ferð, þannig að þetta var nú ekki skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í. FS og FrkJ komu með og var sú síðarnefnda pirruð eins og venjulega. Á heimleið var svo allt stopp, þar sem það hafði orðið eitthvað slys, ég notaði GPS tækið og fann aðra leið heim, en það þýddi um 30 mín lengri för, það hefði hvort eð er verið eitthvað svipað að bíða í röð. Júlía er skemmtileg og góð og svo grenjar og grenjar, engin veit afhverju, en búið er að komast að því að hún þegir og er róleg fyrir framan sjónvarpið, nú og svo var að detta í hús stóll sem miklar vonir eru bundnar við, en það er þessi hérna. Nú verður gaman að sjá hvort þetta virki eitthvað :)
Jæja þá er þessi vinnudagur búinn, og ég stimpla mig út í síðasta skipti.......
Jahá þá er ákveðnu skrefi lokið og næsta skref tekur við, eitthvað segir mér að það verði gott skref..eitthvað sem liggur í loftinu þessa dagana !
SvaraEyðaVerður fróðlegt að sjá hvort að nýji stóllinn nái að standast kröfur ungfrúrinnar
Ekki er mér fyllilega ljóst hvort rétt sé að samfagna eða samhryggjast við þessi tímamót. Hallast þó fremur að hinu fyrrnefnda - full einbeitni til að negla þýskan óperuheim.
SvaraEyðaUngfrú Júlía F. verður örugglega nokkuð hress með diskóljósin :)
Kaflaskipti eru í sjálfu sér ekki slæm. Vonandi leggjast þjóðverjarnir flatir og í kjölfarið heimsbyggðin!
SvaraEyðaEn þangað til gefst þér væntanlega tími til að ná fram fullkominni tækni á EOSinn. Ekki slæmt það!