30.3.08

Sumartími

Við erum semsagt officially komin á sumartíma frá og með deginum í dag. Það þýðir að við erum komin 2 tímum á undan Íslandi. Alveg magnað fyrirbrigði.

Héðan er fátt að frétta, það var svona sameinginlegur hóptími hjá Janet á föstudaginn, og ég tróð upp með Hamraborginni, svona til að kynna íslenskan menningararf :) Það gekk bara glimrandi vel, ég var allavega ánægður með hvernig það gekk. Í gær var að mestu rólegur dagur, ég sat í tölvunni og drakk bjór á meðan frúin á heimilinu fór eins og stromsveipur um heimilið og tók til og gerði það sem þurfti að gera. Ss fínn og rólegur dagur. Það styttist í yfirlýst heilsuátak, og ég er á báðum áttun, þar sem ég einfaldlega NENNI ÞESSU EKKI!!! EN ég verð, ég finn það mjög vel, það er ekki gott að vakna á sama stað og vinna á samastað og maður vaknar, og fara aldrei neitt út. Þannig að þetta er líka geðheilbrigðismál. Og nú þegar sumartíminn er kominn þarf þetta ekki að hafa áhrif á vinnuna heima, þar sem ég get vaknað hér kl 9 og farið í ræktina, en samt verið kominn í vinnuna kl 8 að íslenskum, þetta er bara algjör snilld. :)

Fékk eitthvað bréf frá Þýsku Orkuveitunni Vattenfall, sem ég hef ekki hugmynd um hvað þýðir, þannig að ég skannaði það og sendi Janet til yfirlestrar, það er óþolandi að fá svona bréf hérna, maður gæti allt eins verið að fá útburðartilkynningu, og maður hefði ekki hugmynd um það.

Úfff jæja, það er spurning hvað maður gerir af sér í dag, hugmyndin sem ég vaknaði með í morgun var að klára bjórinn sem ég á og spila tölvuleiki, þar sem á morgun er slíkt komið í tímabundna pásu. Veðrið er súperfínt, mjög hlýtt en sólarlaust, ætli maður píni sig ekki út í göngutúr með frúnni á eftir.

Bis später

26.3.08

VIDEÓ og MYNDIR

HÉR (videó)
&
HÉR (myndir)

25.3.08

Komin heim

Ég ætla ekki að skrifa mikið meira en ég hef þegar gert um þessa stóru páskaferð, heldur ætla ég að leyfa myndum og léttu vídeói frá ferðinni að tala sínu máli.

En ef ég dreg saman, þá var þetta svona, lögðum af stað frá Berlín um 14 á fimmtudaginn síðasta, keyrðum úr ágætis veðri inn í rigningu og snjókomu. Þegar komið var til Bayreuth, var létt skoðunarferð farin um svæðið, en ég var einmitt þarna síðasta sumar. Það verður að segjast eins og er að bærinn er ekki eins sjarmerandi í rigningu og þungskýjuðu. Svo var brunað í leiðinda veðri sem leið lá til Austurríkis og þaðan til Lichtenstein, þar var þó komið fínasta veður og heiðskýrt, nema það var auðvitað myrkur, og var auðsýnt að þarna var fallegt. Við gistum eina nótt í fínasta fjallahóteli í höfuðborginni Vaduz. En svo var vaknað um 10 í talsverðri snjókomu, við keyrðum þá af stað í snjókomunni sem leið lá um Alpana að Ítalíu, þar sem við brunuðum áfram í öllu betra veðri alveg til Monte Carlo í Monaco, þar var brjálað rok og þjónar ríkafólksins þurftu að hafa sig alla við við að festa þyrlurnar á snekkjunum sem þarna voru. Við rölltum aðeins um bæinn fengum okkur Pizzu og keyrðum svo til Nice, þar sem við gistum á hóteli eina nótt. Daginn eftir vöknuðum við í 17 stiga hita, og keyrðum til Cannes, þar sem við eyddum deginum og gerðum vel við okkur í mat og drykk. Þar var svo gist áður en lagt var íann heim á leið. Við ætlðum að skoða eitthvað svaka flott gljúfur, sem fannst aldrei þrátt fyrir tækið góða, og þrátt fyrir að það er um 21 km á lengd!!! Og því var þetta um 2 tíma útúrdúr á frönskum sveitavegum upp og niður sikk sakk og rugl.......ekkert voðalega gaman. Þarna sáum við þó Lavender akra út um allt, það var nokkuð magnað. Svo keyrðum við í fínu veðri til Grenoble, Lyon og svo loks Dijon þar sem við gistum síðustu nóttina okkar áður en haldið var heim. Borðum á einhverjum stað þarna sem var voða skrítinn, þar var margt sniðugt svosem eins og ostabræðslutæki :)

Nú það var ekki breytt útaf venjunni, þegar við vöknuðum var allt orðið snjóhvítt, og við lögðum af stað kl 7:30 um morguninn til að vera nú komin einhverntíma heim. Við keyrðum næstu 3 tímana í snjókomu og slabbi, sem er ekki gaman, ef það hefur ekki komið fram áður :) Þegar við komum inn í Þýskaland aftur fór að létta til og hraðinn að aukast umtalsvert á þjóðvegunum. Í frakklandi er nefnilega mesta samansafn af hraðamyndavélum og hraðaeftirliti sem ég hef séð, fólk keyrir þar alveg nákvæmlega eftir skiltunum, en um leið om maður datt í landið okkar góða, virtust skiltin bara vera formsatriði. En það má segja að meðalhraðinn í Frakklandi hafi verið um 80-90 km klst en í þýskalandi um 130-170 km klst, það er nokkuð mikill munur, enda vorum við um 4-5 tíma að keyra frá landamærunum Luxemburg/Þýskaland/Frakkland til Berlínar. Hingað komum við svo í rosalega fínu veðri, 7 stiga hita og fíneríi.

Nú svo í dag fór ég að skila bílaleigubílnum, en ekki fyrr en við höfðum nýtt hann til að versla í matinn. Svo fór bara að snjóa hérna í dag, og þegar þetta er skrifað, er nýbúið að kyngja niður snjó. Veðurútlit er þó bara nokkuð gott og virðist vera sem stöðugt hækkandi hiti sé í kortunum.

Þetta endaði á því að vera mun lengri texti en ég ætlaði mér. Þið sleppið því þá bara að lesa hann ef þið nennið því ekki :) ha ha ha ha

Mjög bráðlega koma svo nýjar myndir og sjóðheitt vídeó :)

22.3.08

Nice og Monaco. Franska Rívíeran.

Þá erum við komin til Nice í Frakklandi. Lögðum af stað í heljarinnar snjókomu frá Lichtenstein, því skal ekki neitað að tilhlökkunin var búin að vera mikil að vakna á þeim stað og drekka í sig fjallasýn sem við sáum aðeins lítillega í myrkrinu þegar við komum til Vaduz. En í staðin fengum við þó mjög fallegt veður, en það var bara ekkert skyggni. Við tók svo löng keyrsla um Alpana, þar sem við vorum í mokandi snjó og slabbi, þangaðtil allt í einu við fórum í gegnum 1.km löng göng, og komum út hinumegin á þurran og auðan veg, og ekki snjókorn í augsýn neinstaðar. Þetta var án efa eitt það skrýtnasta sem ég hef upplifað lengi. Eftir a hafa ekið á ofsaferð í gegnum hundruði ganga(sem var voða gaman fyrstu 3-4 skiptin), komum við loks að landamærum Ítalíu, þar sem við þurftum ekkert að sýna eitt eða neitt, bara keyrðum í gegn. Í ölpunum var hitastig um frostmark. Eftir að við vorum búin að keyra í Ítalíu um klukkustund var hitinn orðinn 10-12°C oeg eftir annan klukkutíma vorum við komin í 15,5. Sem var mikið tilhlökkunarefni, því það bara á að vera einhversstaðar gott veður. Þegar nær dró sjónum fór svo að kólna aftur og við tóku göng eftir göng eftir göng, og allt eins, þetta var svipað eins og keyra Húnavatnssýslurnar.

Þegar við komum til Monaco var klukkan orðin rúmlega fjögur, og við keyrðum sem leið lág niður að höfninni, þar sem við sáum alveg svakalegar snekkjur. Ein var meira að segja það svakalega að þar var þyrla!!! Veðrið var þvímiður ekkert spes, mjög hvasst og sólarlaust og 12 stiga hiti. Við gengum aðeins um, en vegna þess að það var föstudagurinn langi, var flesta allt lokað. Fengum okkur svo helvíti góða pizzu og héldum upp á hótelið okkar sem er í bænum "Beaulieu sur Mer" mitt á milli Nice og Monaco (c.a 8 km frá Monaco.)

Næst er ferðinni heitið til Cannes (um 30 mín akstur), þar sem við munum gista eina nótt, eftir að hafa skoðað okkur um. Veðrið í dag lítur vel út og er spáð skýlausum himni, 15 stiga hita og þvímiður talsverðum vindi í dag. En við látum það ekki á okkur fá. Svo er planið að byrja að keyra heim á leið á sunnudag, en þá í gegnum Frakkland, sem leið liggur gegnum Lyon, Dijon og Nancy, þaðan svo beint yfir til Þýskalands.

....meira síðar.

20.3.08

Þegar maður kemst í netsamband

Erum komin til Lichtenstein, eftir langa keyrslu í mesta hraðakstri sem ég hef á æfinni lent í, GPS tækið segir mér að við höfum mest farið mest í 170km/klst, en það virðist vera svona í lægri kantinum, þar sem fólk tók fram úr mér villevæk. Keyrðum í allskyns veðrum meðalannars snjóstormi og sól og rigningu og roki, og hvað eina. Hér í Vaduz var 18 stiga hiti fyrir viku síðan var okkur sagt af hótelgaurnum sem tók á móti okkur. Nú er bara snjór og læti, snjóa á í nótt og ég veit ekki hvað. Hér verða sko teknar myndir á morgun áður en haldið verður til Mónakó eða Mílanó, verst að ég tók ekki USB (UBS) snúru með til að setja inn myndir núna :)

Aællvega nenni ekki að blogga meir, bis später.

Sögulegir hlutir hafa gerst frá síðasta bloggi:

Evran hefur aldrei í sögunni lækkað úr 123 í 122, en það hefur gerst, og því um merk tíðindi að ræða.

Stutta bloggið mitt í dag er til að segja frá því að nú verður tekin lengsta bloggpása sem sögur fara af síðan ég kom hingað til Berlínar, þar sem ég og frú erum að fara leggja í langa bílferð um víðlendur meginlands evrópu. Ekki verður því punktum varpað á skjá fyrr en þriðjudag/miðvikudag næstu viku.

Söngur virðist vera að taka við sér aftur og mér gekk bara nokkuð vel í síðasta tíma sem var í gær. Eftir tíma fórum við 3 strákar frá Íslandi í dinner á Ítölskum stað rétt hjá Janet, voða gott, ég fékk mér svínamedallíur í mildri sinnepssósu og capers, helvíti gott að skola því svo niður með svosem eins og tveimur glösum af úrvals Chianti beint frá Ítalíu.

Jæja, þá er að leggja af stað..............

18.3.08

Hvað er söguleg hæð? 123,12 ?

Ég talað í dag við menn sem sjá um tryggingamiðlun á Íslandi, og hef ég tekið þá ákvörðun að koma þeim peningum og verðmætum sem ég á á íslandi undan eitthvað annað. Það á vist að vera voða sniðugt að fjárfesta núna, þar sem flestir sjóðir eru að jafna sig og á uppleið eftir langa niðurlegu. Ég hugsa sem svo að það getur varla verið verri að láta peningana rotna á Íslandi en einhversstaðar annarsstaðar. Einhverjir myndu eflaust segja við þessu að ástandið sé ekkert skárra annarsstaðar, því allt er á niðurleið allsstaðar, það er kannski rétt, en maður verður svosem að hofa á það að sumstaðar eru sterkari bakhjarlar en heima á Íslandi.

Hér lagast veðrið ekki mikið og útlit er fyrir að hvert sem við förum í páskafrí verði leiðinda rigning og kuldi...... Það er alveg ótrúlegt hvernig hlutirnir haldast í hendur við við að gera manni lífið leitt, en við látum það bara vera gaman, og erum jafnvel að hugsa um að keyra til Parísar í staðinn, þar sem þar virðist ætla að vera skynsamlegra veður, ekki veit ég hversu skemmtilegt er að keyra þar, en maður þarf ekki alltaf að hugsa um það :)

Ný uppskrift er væntanlega í Matarhornið, en það er Hunangssinnepsgljáður hnetu....æ þar er ekki til neitt á íslensku sem er "peanutcrusted"allavega þannig er það nú, með salati. Einföld uppskrift ef uppskrift má kalla. Meira síðar.



En það styttist óðum í sumarið sem kemur með allri sinni gleði og ég hlakka mikið til að

15.3.08

111,5 við síðustu tölur frá Landsbanka Íslands

Já það má segja að lífið leiki við mann hérna í Berlín. Veðrið bara nokkuð gott í dag, sól, léttskýjað og 10 stiga hiti. Gæti hugsanlega verið verra.

Ég tel að ég hafi náð að koma mér uppúr þeirri lægð sem ég er búinn að vera í raddlega, og þá að sama tíma andlega, í síðasta tíma hjá Janet. En þá fór ég að tengja loksins sambandið milli þess að opna hálsinn bæði í norður og suður eins í austur og vestur, hvorutveggja þarf að gerast til að hægt sé að framkalla röddina frjálsar. Auðvitað þarf meira til en bara það, en þetta var það sem ég þurfti, nú er bara að ná að muna þetta og gera þetta aftur af miklu öryggi, þá held ég barasta að ég sé að verða tilbúinn.

Ég er búinn að senda inn umsókn á 12 daga MasterClass/Workshop í Austurríki í sumar, þar sem unnið er frá morgni til kvölds í að setja upp senur í óperum auk þess að vinna með raddþjálfara og píanóleikara. Sú sem sér um þetta er kennarinn hans Ásgeirs Páls, Martha Sharp, ef ég kemst inn í þetta væri það mjög gott fyrir mig, þar sem mig er farið að vanta eitthvað að stefna að og syngja, maður lærir ekki að syngja bara með því að gera raddæfingar :)

Vinkona Soffíu er hér og þær eru nú farnar í enn eina verslunarferðina, á meðan sit ég hér og hugsa um hvort ég ætli að fara spila "The Witcher" eða "S.T.A.L.K.E.R", hugsa að sá síðarnefndi verði fyrir valinu. Ég er nýbúinn að kaupa mér "Crysis" og kláraði hann í gærkvöldi. Ótrúlega fínn leikur og skemmtilegt concept, en....allt of stuttur, og ég held að ég fíli ekki alveg þetta geimveru concept sem er í lok leiksins. Sá hluti leiksins sem snýst um að gjörsigra kóreyska herinn sem er að elta mann er stórkostlegur og ég vildi að það hefði verið meira um það. Assassins Creed kemur svo út 26.mars að ég held, og mér finnst ólíklegt annað en að maður fái sér hann :)

Annars var ég að uppgötva að ég átti fullt af myndum af Gemsanum mínum, sem ég er núna búinn að henda í myndasafnið mitt, hægt er að smella á það hér vinstramegin.

Bis Später

12.3.08

Evran dottin í 107 og ég veit ekki hvað.....!!!

Hér hefur verið leiðindaveður undanfarna daga og lítið að gerast annað en vinna á fullu. Ég er þó búinn að vera reyna að skipuleggja mig og vinna eftir einhverjum áætlunum sem ég set mér fyrir, en það er bara ekki alveg að ganga. Við að breyta mataræðinu líkt og ég hef gert, fylgja alveg svakaleg fráhvörf, það er eiginlega með ólíkindum að manni líði svona, það læðast inn hugsanir eins og "hversvegna er ég að þessu?", sama hvað maður borðar maður er alltaf einhvernvegin svangur og það skapar bara ákveðin pirring í manni, sem er ekki gaman. Kannski/vonandi er þetta bara tímabundið. Ég er því búinn að taka þá ákvörðun að vera ekki alveg svona grófur í þessu eins og ég ætlaði mér upphaflega. Núna ætla ég að borða bara góðan mat, en þó sleppa sykri og glúteini eins og ég framast get. Brauð og kornmeti eru þó mikilvæg uppistaða fyrir mig, og því mun ég líklegast ekki sleppa því svo glatt.

Ég er komin á það að fara hreifa mig aftur, eins og komið hefur fram á þessari síðu, það felst í því að að loknu páskafríi mun ég hefja daglegar ferðir í ræktina þar sem ég ætla að reyna að fylgja einhverju plani í þetta skiptið. Maður hálf öfundar þau gömlu að vera að komast í gott form, þegar maður sjálfur hefur alla burði til að halda sér flottum líkamlega, en gerir það ekki. Jæja, en maður er þó byrjaður að hugsa þetta, því allt hefst jú á einni hugsun.

Ég henti mér svo í dag og lét tryggja allt draslið mitt, auk þess að tryggja okkur Soffíu gegn öllum þeim skaða sem við gætum hugsanlega valdið öðrum. Við erum því tryggð núna í bak og fyrir, fyrir 14 þús á ári, eins og staða evrunar er í dag. Svolítið mikið finnst mér, og kannski er þetta bara vitleysa, en það er búið og gert.

"Tilraunaeldhús Egils - matur fyrir hugsandi fólk"
Austurlenskt stir-fry að hætti tenorsins

Gulrætur
Paprika
Laukur
Engifer
Hvítlaukur
Kjúklingabringur
Black bean sauce
Soja sósa
Baunaspírur
Núðlur (má nota hvað sem er)
Kjúklinga/nauta soð

Skera kjúklingabringur í teninga, steikja á pönnu ásamt hvítlauk og engiferi. Eftir 3-4 mín setja saman við gróft skornar gulrætur, papriku og lauk (og eitthvað annað það grænmeti sem á hugan sækir) og svo auðvitað Black Bean sauce, sem gerir bragðið. Þetta er steikt saman í nokkra stund og smakkað til með kjöt eða kjúklingakrafti.

Sjóða þarf núðlurnar þegar maturinn er að verða tilbúinn. Gott er að byrja á að sjóða upp kjötkraft, þannig er hægt að nota hann bæði til að smakka til matinn, sjóða núðlurnar upp úr og svo er hægt að henda smá bok choi og jafnvel gulrótum eða öðru grænmeti samanvið og nota sem súpu á undan matnum. Nú má svo sturta matnum af pönnunni í eitthvað ílát, setja smá olíu á pönnuna, hella vatni/soði af núðlum og steikja þær á pönnunni ásamt baunaspírunum og smá soja sósu til að fá bragð. Hollt gott, ódýrt og einfallt.

9.3.08

í Sól og sumari..

Ekki nóg með það að við séum að fara í páskaferð niður til Ítalíu (já það er búið að ákveða það), þá erum við einnig búin að panta okkur ferð til Rhodos í maí, þar sem stendur til að hitta súperfrænku Beggu og hennar föruneyti :) Voða fínt að vera búinn að ganga frá þessu. Þetta verður líklegast bara sumarfríið mitt í sumar, þó maður þurfi nú varla að fara langt til að vera hér í sumar og sól allt sumarið, sem verður vissulega svolítið öðruvísi.

Nú við erum að hugsa um að fara skrá okkur í líkamsræktarstöð sem er hérna ekki langt frá, það er um 29 EUR á mánuði, en þá má maður mæta hvernær sem er fyrir kl 13 á daginn, sem er alveg fínt fyrir mig, því ég er ekki kvöld workout maður, og hef aldrei verið. Þetta verður líka ótrúleg fjölbreytni fyrir mig, þar sem ég er heima allan daginn að vinna og maður er að verða svolítið leiður á að fara ekki almennilega í gang. Heima gat maður stuðað sig í gang með því að keyra í ruglinu sem þar fyrirfinnst, en hérna er þetta svo miklu rólegra eitthvað að maður veit ekki alveg hvernig maður á að haga sér!!

Helgin fór í að hjóla alveg gífurlega mikið, á föstudaginn eftir vinnu, skellti ég mér í heimsókn til Gunnars og frúar, sem búa í um 20mín hjólafjarlægð frá okkur, mjög vel staðsett, og eru nálægt Bergmannstrasse, sem er mjög flott og lifandi veitingahúsagata hér í Berlín. Þau búa á efstu hæð með útsýni á Sjónvarpstunrinn og einnig sést glitta í Berliner Dom. Verð að viðurkenna að þó það séu margir kostir sem fylgja því að búa á fyrstu hæð er margt til að öfundast út í þá sem búa á efstu hæðunum. Rólegheit í öllum herbergjum, gott útsýni osfrv. En svona er það bara, er ekki alltaf grasið grænna annarsstaðar? Nú við fórum svo öll út að borða um kvöldið á Mexikanska staðinn Cancún hérna á Mantauffelstrasse, sem er ekki ýkja langt frá Kurfürsten.

Hér er náttúrulega verkfall lestarstjóra næstu 10 daga, náist ekki að semja, og því hefur verið algert helvíti að ferðast hér um, þó ganga einhverjar lestar og við nýttum okkur það með því að fara í smá miðbæjarferð, svo var hjólað heim sem var um 45 mín ferð. Fín hreyfing þennan daginn og ekki laust við að maður kæmi samt endurnærður heim eftir þetta. Soffía reyndar alveg dauð, því hún hjólar almennt mjög mikið til og frá skóla, en fyrir mér var þetta algert afrek :)

Svo á sunnudeginum var farið í léttan hjólatúr að flottum garði hér í nánd, og þar þurfi að labba þar sem hjól eru bönnuð. Það kostaði 2 EUR í garðinn og ekki laust við að hann sé ansi flottur, gaman verður að kíkja þangað í sumar. Svo var farið á hinn steikar staðinn hérna nálægt og ég henti mér á dýrindis kengúrusteik, og Soffía fékk sér eitthvað 120gr smádót með kartöflu.

"Tilraunaeldhús Egils - matur fyrir hugsandi fólk"
Þetta var prufað á síðasta fimmtudag:

Hollustu karrí Egils:
Kjúklingabringur (skornar í teninga)
Hvítlaukur
Engifer
Eðalkarrí
Kanill
Negull
Kókosfeiti
Laukur
Paprika
Jógúrt 1,5%
Sýrður rjómi
Stevia (eða sykur)

Meðlæti:
Hvítlaukssteikt brokkolí
Brokkolí
hvítlaukur
salt og pipar

Hita pönnu með kókosolíu, steikja á henni örstutt puréaðan eða smáttskorinn hvítlauk, lauk og engifer. Henda kjúkling saman við eftir 1-2 mín, og láta léttbrúnast. Þvínæst hella samanvið papriku, og öðrui því grænmeti sem hugurinn girnist (ekki samt brokkolí, því það stelur bragði), hérn væri svo tilvalið a setja saman við kjúklingakrafti eða kjötkrafti, en ég gerði það ekki. Ég setti bara vatn, svo má henda saman við þetta karrí, bara góðum slatta, svo kanil og negul. Bara smakka þetta til. Eftir svona 10 mín, hella saman við jógúrt 0,5.ltr og 1-2 msk sýrðum og Stevía, bara rétt hnífsodd, eða 1 msk sykur. Láta helst malla í 30 mín.
Setja brokkolí í matvinnsluvél, og mauka það, ekki alveg í puré, en bara þangað til fínt sxað. Svo setja puréaðan hvítlauk og engifer á pönnu (50/50 engifer/hvítl), hvítlaukurinn má byrja að brúnast, henda svo brokkolí á og hræra grimmt. Salta og pipra eftir smekk. Algjör snilld sem meðlæti með mat, og svakalega hollt og gott.

6.3.08

Nýtt frá Valfurstagötu 75

Tekin hefur verið lýðræðisleg ákvörðn um að fara í páskafrí hérna á götu valinna fursta. Búið er að panta bíl, og er ætlunin að keyra sem leið liggur annaðhvort í gegnum Danmörk og til Svíþjóðar, nú eða bara niður til Salzburgar og Ítalíu. Ferðin hefur ekki verið skipulögð, og er það bara hið besta mál. Þetta verður svona óvissuferð bara með öllu sem því tilheyrir. Ferðavélin verður tekin með og bloggað ef þurfa þykir :)

Þar sem ég er hættur að borða sykur, gerjað, hveiti og ávexti í bili, þá fær maður aldeilis að finna fyrir því að til er eitthvað sem heitir fráhvarfseinkenni. Þetta þekki ég vegna þess að ég hef gert þett áður. Þetta er rúm vika af algjöru helvíti (kannski alveg svo slæmt), en þetta er erfitt, því líkaminn öskrar á eitthvað gerjað eða sykur, eða bara eitthvað sem er óhollt :) En ég stenst freystingar því það er bara komið að því. Það er ekki gaman að vera ekki við 100% heilsu, bæði andlega og líkamlega. Svo er bara svo tilvalið að breyta um lifnaðarhætti þegar maður er á nýjum stað, og ég tala nú ekki um, heima hjá sér allan daginn, maður hefur heldurbetur tækifæri til að elda og útbúa þann mat sem manni hentar við þær aðstæður.

Hér á eftir kemur létt uppskrift af mjög hollum millimálarétti sem ég er að hakka mig þessa dagana:
Sjóða saman
CousCous
Brokkolí
Eðalkarry (ekki eitthvað drasl)
Búa bara til nógu mikið af þessu, því þetta geymist í góðum ísskáp.

Svo þegar manni langar í eitthvað, einfaldlega tekur maður það sem maður þarf, skellir því í örbylgjuna og hitar, svo bara sulla yfir þetta hreinni jógúrt (þýska jógúrtin bragðast eins og AB mjólk), og sítrónusafa eftir smekk. Einnig er hægt að sleppa karríinu út í CousCousið og bæta bara kryddum við jógúrtina áður en henni er hellt yfir.....mmmmmm

Ég ætla mér svo að vera með reglulegan þátt sem heitir:
"Tilrauna eldhús Egils - matur fyrir hugsandi fólk"
þar sem ég mun birta þær uppskriftir sem mér dettur í hug að prófa.
"Næst verð ég með Brokkolí puré.....fylgist með"

4.3.08

Snjókarl með nef og með hatt

Já hérna er bara farið að snjóa.....merkilegt hvað þetta er líkt Íslandinu að vissuleiti. Veðrið gefur fögur fyrirheit um batnandi veður og hlýrri tíma, en svo er það allt rifið af manni og dempt yfir mann snjókomu. Hún er nú reyndar ekki mikil eins og sjá má á meðfygljandi mynd. Rétt hvítt á fótboltavellinum.
Nú staða evrunnar er farin að valda mér hugarangri, þar sem allt er orðið margfallt dýrara hérna en það var þegar við komum, tildæmis hefur söngtíminn farið úr rúmum 4200. kr í rúmar 5000.kr sem er alveg upphæð sem maður finnur fyrir. Nú svo til að bæta gráu ofan á svart, er Janet að fara hækka gjaldið í 60 EUR pr tíma, sem þýðir að miðað við stöðuna er farið að kosta jafn mikið fyrir mig að fara í tíma til hennar eins og að fara í tíma til David Jones, ég er því að hefja skoðun á flugi til NY, í lok sumars. Söngur gengur hægt, og ég er ekki alveg að átta mig á því hversvegna þessi ládeyða er yfir mér. Líklegast er það þó veðrið, en þó gæti það verið ýmislegt annað. Ég hef því tekið þá lýðræðislegu ákvörðun að hætta að drekka áfengi í bili og fara pína í mig mat sem ég hef ekki ánægju af því að borða, auk þess að hreyfa mig að lágmarki 40 mín á dag og stunda hugleiðslu. Gaman verður að sjá hvort ég komist ekki í betra andlegt og líkamlegt ástand við það.

Ég hef einnig komist að þeirri "groundbreaking" staðreynd að ég þarf bara einfaldlega að skipuleggja mig betur til að koma öllu sem ég vil og þarf að gera fyrir á einum degi.

2.3.08

Helgin sem var.......

Jahá, þá er langri helgi lokið, á miðvikudaginn komu foreldrarnir ásamt yngstu systkinum í heimsókn. Dagurinn hófst á því að fara út á Tempelhof Flugvöll að ná í bílinn, sem var hvorki meira né minna en Renault Espace, fínasti bíll og nokkuð kraftmikill. Ég keyrði Soffíu í skólann og fór svo beint á Tegel til að sækja fólkið, einhver seinkun var á flugi, þannig að ég keypti mér hálfan líter af vatni á 300 kall og m&m poka á 200 meðan ég var að bíða. Merkilegt hvað það er sem veldur því að verðlagið sé svona á flugvöllum!!!! það er allavega ekki skortur á viðskiptum sem skapar hátt vöruverð. Þetta er bara einhverskonar rugl efnahagssvæði, sem er svosem ekki nýtt, fyrir mér allavega.

Nú við byrjuðum helgina á að fara í Kurfürstenstr og borða smávegis góðgæti sem Soffía mín var búinn að útbúa fyrir þreytta gesti. Famílían átti góða stund saman hérna í 2-3 tíma, áður en ákveðið var að fara í smá bíltúr á Potsdammer Platz að skoða sig um. Eftir túrinn var farið að borða á Cancún, og það var sem fyrr nokkuð fínn matur. Daginn eftir var sofið út, eða alveg til kl 9:30, ég vaknaði þó rétt fyrir kl 8 til að vinna. Svo var haldið áleiðis niður að Beliner Dom, þar sem hún var skoðuð í bak og fyrir, eftir að tókst að finna bílastæði á skikkanlegu verði. Gengið var upp "Unter den Linden" sem er líklegast ein þekktasta gatan hérna um þessar mundir, stoppað var stuttlega í mat á "Cafe Via Nova" á Universitäts Strasse, þangað kíkti Hilmar Örn að hitta okkur. Við gengum svo öll saman upp að Brandenborgarhliðinu, þar sem Hilmar sýndi okkur "Raum der Stille" herbergið sem er einmitt í hliðinu sjálfu, mjög magnað að koma þangað.

Nú svo yfirgaf Hilmar okkur og við skelltum okkur í parísarhjólið sem búið er að setja upp nálægt Potsdammer Platz, sjá má skemmtilegt vídeó af þeirri för hérna :). Þvínæst var haldið í Alexa, verslunarmiðstöðina, þar sem fólk missti sig í innkaupum :) Eftir það var svo farið á frábæran steikarstað, sem er mjög þekktur og virtur hér í Berlín, "Block House". Daginn eftir var svo haldið á Kurfürstendamm, sem er ein aðal verslunargatan hérna, og er rétt við dýragarðinn. Þar fór kvenfólkið í fatabúðir og við strákarnir skelltum okkur í 6 hæða raftækjabúðina sem er svosem ekki í frásögu færandi. En þetta var stórskemmtilegt allt saman. Við hittum svo Hilmar og Andra son hans þegar við vorum að klára og keyrðum saman heim í kurfürsten, þar sem fólk fékk smá fordrykk áðurn en haldið var á "Buffalo steikhús", þar var borðað og rætt lífisins vandamál. Svo skildu leiðir og Hilmar og Andri héldu heim á leið á meðan við familían röltum okkur heim á Kurfürstenstr, þar sem fólk datt í svosem eins og eina rauða fyrir svefninn. Veðrið var bara held ég eins og best verður á kosið fyrir svona árstíma, og voru þau heppin að lenda ekki í roki og rigningu sem var komin í gang þegar ég skutlaði þeim á flugvöllin. Allt í allt frábær helgi og skemmtilegar stundir.

Nýjar myndir komnar hér til vinstri og meira síðar héðan frá Berlín.