25.3.08

Komin heim

Ég ætla ekki að skrifa mikið meira en ég hef þegar gert um þessa stóru páskaferð, heldur ætla ég að leyfa myndum og léttu vídeói frá ferðinni að tala sínu máli.

En ef ég dreg saman, þá var þetta svona, lögðum af stað frá Berlín um 14 á fimmtudaginn síðasta, keyrðum úr ágætis veðri inn í rigningu og snjókomu. Þegar komið var til Bayreuth, var létt skoðunarferð farin um svæðið, en ég var einmitt þarna síðasta sumar. Það verður að segjast eins og er að bærinn er ekki eins sjarmerandi í rigningu og þungskýjuðu. Svo var brunað í leiðinda veðri sem leið lá til Austurríkis og þaðan til Lichtenstein, þar var þó komið fínasta veður og heiðskýrt, nema það var auðvitað myrkur, og var auðsýnt að þarna var fallegt. Við gistum eina nótt í fínasta fjallahóteli í höfuðborginni Vaduz. En svo var vaknað um 10 í talsverðri snjókomu, við keyrðum þá af stað í snjókomunni sem leið lá um Alpana að Ítalíu, þar sem við brunuðum áfram í öllu betra veðri alveg til Monte Carlo í Monaco, þar var brjálað rok og þjónar ríkafólksins þurftu að hafa sig alla við við að festa þyrlurnar á snekkjunum sem þarna voru. Við rölltum aðeins um bæinn fengum okkur Pizzu og keyrðum svo til Nice, þar sem við gistum á hóteli eina nótt. Daginn eftir vöknuðum við í 17 stiga hita, og keyrðum til Cannes, þar sem við eyddum deginum og gerðum vel við okkur í mat og drykk. Þar var svo gist áður en lagt var íann heim á leið. Við ætlðum að skoða eitthvað svaka flott gljúfur, sem fannst aldrei þrátt fyrir tækið góða, og þrátt fyrir að það er um 21 km á lengd!!! Og því var þetta um 2 tíma útúrdúr á frönskum sveitavegum upp og niður sikk sakk og rugl.......ekkert voðalega gaman. Þarna sáum við þó Lavender akra út um allt, það var nokkuð magnað. Svo keyrðum við í fínu veðri til Grenoble, Lyon og svo loks Dijon þar sem við gistum síðustu nóttina okkar áður en haldið var heim. Borðum á einhverjum stað þarna sem var voða skrítinn, þar var margt sniðugt svosem eins og ostabræðslutæki :)

Nú það var ekki breytt útaf venjunni, þegar við vöknuðum var allt orðið snjóhvítt, og við lögðum af stað kl 7:30 um morguninn til að vera nú komin einhverntíma heim. Við keyrðum næstu 3 tímana í snjókomu og slabbi, sem er ekki gaman, ef það hefur ekki komið fram áður :) Þegar við komum inn í Þýskaland aftur fór að létta til og hraðinn að aukast umtalsvert á þjóðvegunum. Í frakklandi er nefnilega mesta samansafn af hraðamyndavélum og hraðaeftirliti sem ég hef séð, fólk keyrir þar alveg nákvæmlega eftir skiltunum, en um leið om maður datt í landið okkar góða, virtust skiltin bara vera formsatriði. En það má segja að meðalhraðinn í Frakklandi hafi verið um 80-90 km klst en í þýskalandi um 130-170 km klst, það er nokkuð mikill munur, enda vorum við um 4-5 tíma að keyra frá landamærunum Luxemburg/Þýskaland/Frakkland til Berlínar. Hingað komum við svo í rosalega fínu veðri, 7 stiga hita og fíneríi.

Nú svo í dag fór ég að skila bílaleigubílnum, en ekki fyrr en við höfðum nýtt hann til að versla í matinn. Svo fór bara að snjóa hérna í dag, og þegar þetta er skrifað, er nýbúið að kyngja niður snjó. Veðurútlit er þó bara nokkuð gott og virðist vera sem stöðugt hækkandi hiti sé í kortunum.

Þetta endaði á því að vera mun lengri texti en ég ætlaði mér. Þið sleppið því þá bara að lesa hann ef þið nennið því ekki :) ha ha ha ha

Mjög bráðlega koma svo nýjar myndir og sjóðheitt vídeó :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli