Þar sem við erum komin heim er til lítils að vera halda út einhverju sérstöku bloggi til að upplýsa um það sem er að gerast, eða hvað? Það er allavega ekki mikill hvati til að nenna að skrifa eitthvað. Kannski heldur maður þessu áfram fyrir sjálfan sig, þar sem um öllu meira er að skrifa núna en áður en við fluttum burt. Ég vona þó að við séum ekki alveg komin til að vera. En það verður bara að skoðast á næstu mánuðum.
Já, til að draga saman síðustu daga þá er kannski helst nýliðin helgi sem stendur uppúr. En þá hélt ég stórtónleika í Aratungu ásamt því sem sú yngri var skírð í Skálholtskirkju daginn eftir. Þetta gekk nú allt saman upp, og það var ótrúlega gaman að sjá allt fólkið sitt og að þau skyldu gleðjast með okkur. Fólk gerði sér sérstaka ferð úr Reykjavík á tónleika og svo skírn daginn eftir, sem er alveg ótrúlegt, og ég er afar þakklátur þeim stuðningi sem ég hef fundið fyrir og það gladdi mig mikið að fólki þótti gaman á tónleikunum mínum :) Ég var, eins og svo oft, ekki alveg sáttur með mína frammistöðu, en þá hefði ég bara átt að aflýsa tónleikunum, ég tók sénsinn að ég væri orðinn nógu góður og það var kannski ekki alveg raunin. En svona er líf söngvarans.
Hér höfum við bara verið að taka því rólega síðustu daga, og ég að byrja að skoða hvað ég vil gera með líf mitt í framtíðinni. Núna er t.d verið að skoða Rafeindavirkjun, sem væri vissulega ákveðið rökrétt framhald á tölvu þekkingunni. Söngurinn er kannski ekki það sem ég sé fyrir mér að ég muni vinna við, stressið og óvissan er bara allt of mikil fyrir mitt litla hjarta. Þó verður maður líkast til alltaf með annan fótinn í þessu, sem er kannski bara best.
Jæja andleysið er komið upp og ég veit ekki alveg hvað ég get sett meira niður hérna. En myndir eru komnar inn á sinn stað (hérna).
21.2.12
12.2.12
Isländisches Stolz - Afmælisblogg
Við lentum á Íslandi í gærnótt um kl 1:37 að staðartíma. Flugið hafði verið frekar þreytandi svona eins og maður myndi búast við með smábarn með í för, en allt hafðist það nú.
Ferðin má segja að hafi hafist á Mánudeginum 6.Feb, en þá var opinberlega öllum skuldbindingum lokið í Görlitz og við komin a fullt að pakka í kassa og keyra út þau húsgögn sem við vorum búin að selja. Það gekk allt vel fyrir sig, og við tók svo hin mjög svo erfiði 7.Feb, en þann dag höfðum við pantað flutningabílinn heim að dyrum að sækja búslóðina, sem ég bjóst nú ekki við að yrði svo mikið en endaði í 6 brettum!! Dagurinn hófst á því að ég fór að skila blóðþrýstingsmæli sem ég var búinn að vera með í sólarhring, svona til að meta hvort lyfin væru að hafa tilætluð áhrif. Svo var brunað heim og byrjað að pakka á bretti, sem hefði aldrei verið mögulegt ef ekki hefði notið við aðstoðar nokkurra góðra aðila sem komu að hjálpa okkur að bera og passa stelpurnar. Án þeirra hefði þetta ekki gengið. Ég kláraði heilsuna í þessu, og er búinn að vera frekar raddlaus og veikur síðustu daga, ég er þó að vona að ég verði buinn að ná fullri heilsu á Laugardaginn eftir viku. Það er búið að vera mjög kalt í þýskalandi og við vorum nánast úti allan tíman að raða á bretti, plasta og bera, á endanum var ekkert eftir. Við eyddum svo þessum degi ásamt um 4 tímum af þeim næsta í að þrífa og henda rusli. Mikið var eftir sem erfitt var að henda, eða hreinlega átta sig á því hvert átti að setja. Við nutum góðrar hjálpar frá strák sem vinnur við húsið, og hann og faðir hans sögðu okkur að koma bara með allt sem við gætum ekki hent til þeirra og þeir myndu bara losa okkur við það!! Alveg ótrúleg góðmennska og gott hjartalag sem þjóðverjar hafa þegar maður kynnist þeim. Ég var skammaður fyrir að biðja ekki um hjálp, þegar þeir fréttu að við hefðum staðið í þessu ein, fólk hélt að við hefðum bara ráðið flutningafyrirtæki til að pakka og svona, eins og margir gera. Isländisches Stolz var það kallað.
Daginn eftir tók svo við ferð til Berlínar með troðfullan bíl í 15 stiga frosti. Þar var brunað í sendiráðið til að fá vegabréf fyrir litlu dömuna og detta í spjall hjá Gunnari Snorra, sendiherra. Þvínæst í verslunarmiðstöðina "okkar" í Tempelhof til að gera síðustu innkaupin í Þýskalandi i bili. Svo var farið á Tegel flugvöll til að tékka sig inn til Kaupmannahafnar. Á þessum tíma féllust mér hendur yfir magni farangurs sem við vorum með, en við náðum einhvernvegin að koma þessu um borð án þess að borga yfirvigt. Vopnaleitarfólkið var með því skemmtilegra sem ég hef lent í, ótrúlega almennileg og skilningsrík yfir ferðalögum með börn. Ein konan þarna tók meira að segja Emilíu á meðan við vorum að hlaða öllu á bandið. Okkur tókst svo að gleyma tveimur töskum hjá þeim og þau bara komu og leituðu að okkur í biðsalnum til að láta okkur vita, hefði þetta gerst annarsstaðar? Það veit ég ekki, en þetta létti vissulega aðeins á manni.
Í Kaupmannahöfn sótti okkur Þorvaldur, og keyrði til Ásu og Sörens þar sem við gistum á okkar stutta stop-over í höfninni. Við sváfum örstutt og hentumst svo næsta morgun til Málmeyjar, þar sem við heimsóttum Fjólu og Co á meðan Þorvaldur fékk afhentan styrk upp á 6.5 milljónir. Daginn eftir var svo farið aðeins niður í bæ og borðað og verslað. Svo var heljarinnar matarveisla hjá Ásu og Sörra áður en við héldum út á völl til að fljúga heim. Í check-in var okkur tjáð að sumar töskurnar væru of þungar, og því þurftum við að standa í því að færa á milli, sem var svosem í lagi, því við vorum ein að tékka inn, þrátt fyrir að vélin væri full. Þannig að það reddaðist allt. Önnur flugfélög eins og til Airberlin, tékkuðu bara allt inn þó sumar töskur væru 2-3 kg of þungar, því heildar þyngdin var langt undir. En ekki Iceland Express, þvímiður. Skil ekki svona umburðarleysi.
Jæja, flugið tók um 3 tíma, og vorum við lent Keflavík um kl 1:30 eftir miðnætti, og komin heim í holtið um 4. Svo erum við bara búin að vera slaka á núna og ég að reyna að ná heilsu til að syngja eftir tæpa viku! :)

6.2.12
Að kveðja gott fólk
Í gær var hér haldin heljarinar veisla íslenskum stíl. Hangikjöt, rúgbrauð, harðfiskur og hákarl, auk brennivínsins góða. Rúgbrauð og hangikjöt rauk út en minna fór fyrir því að harðfiskurinn færi sem er afar skrítið, því fólki fannst hann mjög góður. Það kom mér merkilega á óvart að mjög margir fengu sé hákarl, og oftar en einusinni, og var það mál manna að þetta smakkaðast nú bara alveg eins og einhverjir franskir ostar :) Og íslenska brennivínið þótti gott með, þó vissulega væri það ekki allra eins og venjan er. Ég lét mig því hafa það að raunverulega smakka hákarl í fyrsta skipti, ekki get ég sagt að það hafi verið eitthvað hræðilegt, en ég mun ekki leggja mér þetta til munns aftur nema bara svona í félagslegum tilgangi. Það kemur mér líka alltaf á óvart hvað íslenska brennivínið getur smakkast vel svona nýkomið úr frysti.
Hér mættu örugglega um 20 manns og var mikið gaman, veislan byrjaði kl 16:00 og var búin um kl 20:00 sem er bara nokkuð gott, Júlía komst í háttinn á svona nokkurvegin réttum tíma og við líka.
Hér fékk ég að skilnaði alveg stórkostlegar gjafir, og ég er öllum vinum mínum afar þakklátur fyrir að hugsa svona hlítt til mín. Hér voru margir mjög sorgmæddir yfir því að ég væri að fara, og auðvitað er ég það líka að mörgu leiti. Mér leið að vissu leiti eins og ég væri að fara eftir 40 ára farsælt starf þegar þau gáfu mér sésmíðað úr frá Görlitz í skilnaðargjöf, þetta er eitt af aðeins 250 úrum sem framleidd eru, þannig að þarna er um flottan safngrip að ræða. Ég fékk svo forláta músamottu með áprentaðri mynd af okkur flestum, þessi mynd var tekin í hléi á næst síðustu sýningunni minni hérna. Og meira hefði ég ekki getað óskað mér að skilnaði allt þetta frábæra fólk.
Nú tekur við mikið stress og pökkun. Flest húsgögnin verða keyrð út í dag og verður því afar tómlegt hér um að litast í kvöld og á morgun. Ég hendi inn myndum af veislunni við tækifæri, þar sem ekki finnst usb snúra ákkúrat þessa stundina :)
Hér mættu örugglega um 20 manns og var mikið gaman, veislan byrjaði kl 16:00 og var búin um kl 20:00 sem er bara nokkuð gott, Júlía komst í háttinn á svona nokkurvegin réttum tíma og við líka. Hér fékk ég að skilnaði alveg stórkostlegar gjafir, og ég er öllum vinum mínum afar þakklátur fyrir að hugsa svona hlítt til mín. Hér voru margir mjög sorgmæddir yfir því að ég væri að fara, og auðvitað er ég það líka að mörgu leiti. Mér leið að vissu leiti eins og ég væri að fara eftir 40 ára farsælt starf þegar þau gáfu mér sésmíðað úr frá Görlitz í skilnaðargjöf, þetta er eitt af aðeins 250 úrum sem framleidd eru, þannig að þarna er um flottan safngrip að ræða. Ég fékk svo forláta músamottu með áprentaðri mynd af okkur flestum, þessi mynd var tekin í hléi á næst síðustu sýningunni minni hérna. Og meira hefði ég ekki getað óskað mér að skilnaði allt þetta frábæra fólk.
Nú tekur við mikið stress og pökkun. Flest húsgögnin verða keyrð út í dag og verður því afar tómlegt hér um að litast í kvöld og á morgun. Ég hendi inn myndum af veislunni við tækifæri, þar sem ekki finnst usb snúra ákkúrat þessa stundina :)
![]() |
| Músamottan fína |
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)