30.1.09

Everybody knows about the The Bird.....

Fyrirsögnin er ekki alveg að vísa í það sem allir kannast við :)  Heldur það að hér hefur stefnan verið tekin á veitingastaðinn "The Bird", sem á að bjóða upp á bestu hamborgara Berlínar... ef ekki bara þýskalands.   Hér er almennt ekki hægt að fá svona góða alvöruborgara, reyndar BK og MD, en það eru ekki alvöru í mínum huga.  Hamborgarar hérna eru yfirleitt kjötfars.   Ég hlakka því til á morgun að sjá hvort það reynist rétt sem sagt er að þarna fáist bestu borgara í bænum.  Það er alltaf gaman að takast á við fullyrðingar, og veit ég fátt skemmtilegra en að kasta fram fullyrðingum af og til.
Hérna kom í gær filmcrew að taka viðtal við mig vegna komandi heimildamyndar um Wannsee fundinn.  Þeir eru að tala við alla sem komu að tónleikunum þann 20.jan sl.  Þetta var mjög afslappað og þægilegt.  Engar erfiðar spurningar :)   Mér skilst að þetta verði 3 diska sett, á víst að vera eitthvað vandað.  Og það ætti að koma út eftir svona ár, það er nú langur tími, hver veit hvar maður verður þá?

Júlíuhornið er á sínum stað að þessu sinni:
Stúlkan sú er enn við sama heygarðshornið þvímiður, og veit ég að hún er að ganga langt á orku mömmu sinnar og ömmu og afa fyrir norðan.  Ég vona að ég geti eitthvað létt undir þegar ég kem til Íslands.  Vona bara að hún verði búin með þetta leiðinda tímabil þegar ég kem heim :)
Hérna eru svo nokkrar myndir af ungfrúnni.  Það má sjá að hún er að verða ljóshærð, eins má sjá afar fagran sveip sem hún mun ekki verða þakklát fyrir eftir nokkur ár :)

28.1.09

Hugleiðingar

Lengi hef ég nú verið harðorður í garð fávita, og þannig að er það bara.  Það er tildæmis rosalega erfitt að segja ekkert þegar komið er eins og það er á Íslandi.  Vissulega er það eina sem blasir við mér þessa dagana er að ég er fá aðeins fleiri Evrur fyrir peningana mína heldur en áður, sem er alltaf gott, en það er ekki nóg.   Hver einasti sjálfsæðismaður, sem þykir vera eitthvað, í þessari pólitík hefur nú lagst á árar með að gera það sem Sjfl gerir best, en það er að reyna að afvegaleiða fólk frá því sem er að gerast.  Það er verið að vitna í prósentur um hitt og þetta, og hræðsluáróðri um að allt fari til fjandans, þegar vinstri stjórnin tekur við, sem ég er ekki endilega að segja að gerist ekki :).    Mér hefur reyndar alltaf ofboðið valdahroki og yfirstéttartilburðir æðstu stjórnar Sjfl, þetta er svona svipað og valhrokinn í sumum af æðstu stjórnendum kirkjunnar.  Að fólk haldi að það geti hagað sér svona er út í hött.  Ég er mjög hrifin af orðinu sem DV notar um þennan rotna kjarna þessa valdagráðugustu stofnunar í íslensku samfélagi, en þeir kalla þetta alltaf "náhirð Davíðs Oddssonar".   Þetta minnir óneitanlega á tilburði National Sosialista flokksins hérna í þýskalandi fyrir einhverjum árum.  Það tók nú algerlega steininn úr þegar SUS (Hitlers æskan eins og ég kýs að kalla þau), ákvað að senda frá sér yfirlýsingu um að þau "harmi tilgangaslaus stjórnarslit".   Maður þarf nú ekki annað en að lesa yfirlýsinguna til að sjá hversu veruleikafirrt þetta lið er orðið.  Ég rak augun í nokkrar setningar í þessari yfirlýsingu þeirra.

"Það er forystu Geirs H. Haarde að þakka að tjónið af kerfishruni bankanna varð ekki meira en raun hefur orðið" , "Traust tök Geirs H. Haarde á þeim stóru málum..."
-Bíddu nú við!!!!  Manni sýnist ekki betur en að allt hafi farið eins illa og hægt var.  Það væri gaman að sjá hvernig þetta gæti hafa farið verr með einhverja aðra við stjórnvölinn.  
 
"Samfylkingin reyndist hins vegar vera sú kvísl sem fyrst brotnaði undan storminum"
-
Eða kannski greinin sem braut sig af sjálf til þess að minka vindmótstöðuna og koma í veg fyrir að allt helvítis tréið hrynji.

Skilyrðislaus hlíðni og blind trú á leiðtoga og flokka er það eina í þessum heimi sem skapar erfiðleika, stríð og vansæld.  Það þarf nú ekki gáfaðan einstakling til að sjá það.  Því er haldið fram að Samfylkingin sé sundurlaus og útum allt!!  Ég hefði haldið að mismunandi skoðanir fólks og rétturinn til að tjá þær sé ofar öllu, hvernig annars ætti að vera hægt að komast að réttlátri niðurstöðu um mál sem varða alla. 

Fólkið í landinu krafðist breytinga og það fékk breytingar, nú er bara að vona að þær verði til góðs, og að Jóbama taki aðeins til.  Þó á ég ekki von á því en stundum eru breytingar breytinganna vegna, það sem þarf.

Ég vil svo taka það fram að ég er algerlega óflokksbundinn, þó megi eflaust skiljast á þessum orðum mínum eitthvað annað. 

Ljúkum þessu á lokaorðunum úr áróðurssöng sem eftilvill er sunginn á fundum SUS fyrir framan mynd af foringjanum?
"Für [Haarde/Davíð] leben wir und  für ihn sterben gerne wir
Für den Führer bis zum Tod, denn er ist unser Gott"

Gott segne Island

26.1.09

Næstum því dáinn í lest?!?!

Fyrirsögnin er svosem ekki mikið til að panikka yfir, en ég var á leiðinni með lestinni um daginn, þegar á móti mér sest flóttalegur maður með mikið skegg og nokkur ör í andlitinu, hann var í mjög breiðum jakka eins og hann sé með eitthvað undir jakkanum.  Svosem þetta eitt og sér þarf ekki að segja neitt sérstakt, sumir eru bara skrítnari en aðrir....... EN..... svo tekur vinurinn upp vasaútgáfu af kóraninum, og fer að fletta fram og til baka og lesa á fullu og þylja það með sjálfum sér, á þessum tímapunkti hugsaði ég með mér "ætli það sé bara komið að því.!!", en auðvitað gerðist ekki neitt, ég seldi mér hugmyndina að þetta yrði í lagi þar sem við vorum ekki að ferðast þegar mikið fólk er á ferli.  EN ég viðurkenni fúslega að mér brá talsvert við tilbúning eigin huga á aðstæðunum.
Eins og alþjóð veit er ég einn hérna í Berlín þessa dagana, og líkar það svosem ekki illa, en viss söknuður er nú kominn í mann, þar sem maður er jú að missa af þeim tíma þegar ungfrúin vex hvað hraðast.  Ég heyri þó reglulega í þeim mæðgum og virðist nú allat vera við það sama.  Þó skilst mér að gráturinn sé hættur að vera eins sár, en vælið er mikið og erfitt að fá hana til að sofna.  Þetta er því ekki mikil breyting frá því að hún fór heim, en við vorum farin að sjá smá framför hjá henni rétt áður en haldið var til Íslands.  Hún fer nú að nálgast 2 mánaða markið,  og þá tala margir um að það verði breyting, en ef Júlía ætlar að halda sig við það sem hún hefur gert hingaðtil, þá mun hún nýta alla 3 mánuðina :)   Við ætlum að fá tíma hjá vinsælum barnalækni í febrúar og sjá hvort það skili einhverju.

Matar og svefnvenjur eru ekki upp á það besta þessa dagana, en það er allt að jafna sig, það tekur smá stund að aðlagast breyttu mynstri.  Ég er búinn að græja öll tryggingamál..... að ég held og ættum við að fá tryggingakortin okkar á morgun eða miðvikudag ef allt gengur eftir, það verður mikill léttir fyrir mig, þar sem ég þoli ekki lausa enda í einhverju svona.  Það bæði truflar einbeitinguna í öðrum hlutum og er bara ekki skemmtilegt.  Þó hefur þetta hjálpað mér mikið að
 læra þýskuna :)

Að lokum nokkrar myndir af ungrúnni...... Guð blessi Ísland

Dugleg í flugvélinni á leið til Íslands

22.1.09

Nazi Germany

Tónleikar í Villa Wannsee gengu bara nokkuð vel.   Þetta tók reyndar allan daginn, þar sem það var verið að taka vídeó, heimildarmynd.  Maður var því mættur þarna kl 14 og svo var maður ekki kominn  heim fyrr en um 23 um kvöldið.  Ekki get ég sagt að þetta sé það skemmtilegasta sem ég geri en þetta er hluti af þessu.   Nú það var fullt hús á tónleikunum og við máttum vel við una held ég, tónlistinn ekki alltaf það skemmtilegasta sem ég hef  heyrt, en eins og ég hef áður sagt þá var ágætt að syngja þetta.

Maður fékk alveg hrikalega tilfinningu fyrir sögunni þegar maður var þarna, ég er nú ekki mikill sögukall og þykir nú yfirleitt leiðinlegt að vera eitthvað  að velta mér uppúr henni, en þegar maður kemur á svona stað og áttar sig á því hvað gerðist þarna, þá verður upplifunin önnur.  Þegar ég kom svo heim, þá horfði ég á heimildarmynd um Nasista og hvernig þetta gat allt gerst, auk þess sem fjallað var um Valkyrjuna, í kjölfarið horfði ég svo á Der Untergang. 
  Það var mjög áhugavert að  horfa á þessar myndir fyrir það eitt að allt gerðist þetta hérna í Berlín, og það er gaman að þekkja alla staðina sem þar koma fyrir.  Svo var ég að fá símtal frá framleiðanda myndarinnar og hann vill endilega fá mig í viðtal eftir helgi, held að allir söngvararnir hafi farið í slíkt viðtal, þannig að það er spennandi.

Nú í gær hentist ég svo í kvikmyndahús, á svokallaða óvissusýningu, þar sem maður kaupir sér miða og svo kemur bara í ljós hvaða mynd verður sýnd.  Þetta eru alltaf myndir sem ekki eru komnar í bíó.  Í þetta skiptið var það myndin "The Curious Case of Benjamin Button".  Þetta er ein sú almesta tímasóun og leiðinda mynd sem ég hef látið mig hafa það að horfa á.  Þetta eru tveir og hálfur tími sem ég sakna úr lífi mínu en ég mun aldrei fá aftur.   Myndin fær 16 hauskúpur af 3 mögulegum.

Villa Wannsee í bakgrunni.

Í þessu herbergi fór fundurinn fram.
Veröndin þar sem Hitler og fleiri fóru í reykpásu.  Í baksýn má sjá í átt að fundarherberginu

18.1.09

12 tímar, nútímaverk, besame og eitthvað fleira

Það má segja að dagurinn hafi hafist á því að sofa í eina 12 tíma, sem er nú ekki algengt hér á bæ. En í ljósi þess að littla dóttir mín og eiginkona eru nú farin af heimilinu til Íslands, þá gefst manni kostur á slíkum munaði :) 

Nú dagurinn hófst á því að fara beint að æfa mig, því þetta syngur sig nú ekki alveg sjálft.  Svo var hentst á æfingu í Listaháskólanum hér í Berlín.   Æfingin gekk vel og við náum öll vel saman sem þarna erum, ekki skemmir að ég þekki nokkuð vel til 3 af meðsöngvurum mínum.  Tónskáldið var mætt á svæði til að svara spurningum um verkið og ef það væri eitthvað sem þarf að laga.  Nú svo hófst æfingin eftir að búið var að láta okkur öll fá headphones, þetta virkar þannig að við fáum línuna okkar spilaða í eyrun, þar sem ekkert mark er takandi á nótnagildum, þögnum og takkt stærðum.  Það er svosem fínt og æfingin gekk svakalega vel, eiginlega mikið betur en ég þorði að vona.  Svo r önnur æfing á morgun og svo bara kvikmyndaupptaka og tónleikar á þriðjudag.

Á leið heim  með lestinni, söng fyrir mig vinkona mín, sem syngur bara Besame Mucho, og gerir það með hrikalega breiðu og leiðinlegu víbratói, auk þess að vera klædd í svona "ESSO flíspeysu" sem er nú ekki alveg til þess að auka á gleðina hjá fólkinu.  Hún tók þó inn slatta af pening sýndist mér, allavega meira en margir aðrir sem maður hefur séð í lestunum hérna.

Nú inn er komið SJÓÐHEITT VIDEÓ,  en áður en horft er skal skilja fordóma og vanþekkingu eftir við lyklaborðið.  Hlutar í vídeóinu gætu farið fyrir brjóstið á vitleysingum sem hafa annan húmor en ég.  Eins mega þeir sem telja sig betri foreldra en okkur einnig sleppa því að horfa.
Góða skemmtun.


Guð blessi Ísland.


16.1.09

Nýjar myndir komnar inn....

...í tilefni af heimsókn drottningar og fylgdarliðs til Íslands í dag.

Ég reyni svo að standa við það að henda inn smá vídeói á morgun eða hinn á milli þess sem ég reyni að læra nútímatónverk.

Myndir hér, nú eða smella á albúmið hér til hliðar.

15.1.09

Nútímalegt = leiðinlegt?

Þá fæ ég aðeins að njóta þess að hafa litlu Júlíu hjá mér í einn dag í viðbót.  Hún er mikið búin að reyna að vera dugleg síðustu daga og hefur lítið grenjað, þó koma stór og löng köst seinnipart dags til miðnættis eða þar um bil.  Hún sefur núna umtalsvert, eins og ungabörn eiga að gera, hún er líka mjög vakandi fyrir umhverfinu sínu, þegar hún er vakandi, og sérlega áhugasöm, auk þess sem hún er byrjuð að "tala" á fullu.   Þetta gerir mann ánægðan, það er gott að vita að barnið er að þroskast eins og eðlilegt er.  Ég er búinn að safna nokkrum videóklippum saman frá heimkomu og til dagsins í dag, ég mun deila því með lesendum síðunnar um helgina þegar ég hef smá tíma til að klippa þetta saman.

Ég er í óðaönn þessa dagna að REYNA að læra nútímaverk(atónal) fyrir 20.janúar nk.  Það er hægara sagt en gert.   Stundum er bara auðveldara að giska á tónana, þar sem það er yfirleitt réttara en að reyna að muna hvað á að koma hvar :)   Þetta er semsagt upptaka og tónleikar sem verða haldnir í Villa Wannsee til að "minnast" (veit ekki hvort að það rétt að segja það þannig) Wannsee fundarins þar sem ákveðið var að útrýma gyðingum.   Ég ákvað að taka þetta vitandi hverskyns tónlist þetta væri þar sem maður getur ekki alveg gagnrýnt eitthvað án þess að prufa það allavega sjálfur, auk þess að maður hefur gott af því að komast út og syngja eitthvað af og til. Verkið sem um ræðir heitir "Todesfuge" og er eftir Arie Shapira.

Ég er kominn á fullt að undirbúa næsta ár, og er þegar kominn með nokkrar keppnir í sigtið, auk áheyrnarprufa.  Þarf að fara í það útbúa efni til að senda og gera allt klárt, það versta er að það eru nokkrar stórar keppnir og prufur í febrúar, ákkúrat á sama tíma og ég er á Íslandi, en aldurstakmark er 35 í eitthvað af þeim þannig að ég á séns að ári, ef ég verð ekki búinn að gefast algerlega upp og orðin peningalaus þegar að því kemur.

Hér er ennþá snjór yfir öllu og mikið mistur liggur yfir Berlín þessa stundina.  Hér er þó farið að hlýna og vonandi kemur sumarið bara mikið fyrr en það gerði  á síðasta ári.

Guð blessi Ísland.


12.1.09

Kling klong og út fór sú gamla

Það hefur nú ekki borið til mikilla tíðinda hér á bæ síðustu daga.  Ég fór þó um helgina í söngtíma hjá títtræddum Wolfgang, sá tími varð nú til þess að lyfta skapinu og áhyggjunum talsvert, þar sem góður árangur náðist, sem fyrr.   Seinnipart sama dags fórum við í heimsókn til kunningjafólks okkar sem var með okkur á geburtsvorbereitungskursinum.  Þetta er mjög yndislegt fólk, og dóttir þeirra fæddist 10 dögum á eftir Júlíu.  Það er þó talsverður munur á þeim tveimur, þeirra stelpa sefur mikið og grætur lítið, en að sama skapi drekkur hún ekki nægjanlega mikið og það veldur þeim áhyggjum.  Það er því ansi breytt sviðið sem getur verið að þessum litlu greyjum.   Júlía er aðeins að skána dag frá degi, en samt ekki nóg til að maður sé alveg sáttur.   EN fagna ber öllum framförum og það gerir maður auðvitað.  

Ég er ekki enn kominn með nóturnar í hendurnar fyrir tónleikana sem ég er að fara syngja á 20.jan, er þó að fara reyna að hitta á stelpuna sem er með þær á morgun, það verður sérstaklega fróðlegt að sjá hvað ég er búinn að koma mér útí :)  Nú svo er ég á fullu að reyna að koma mér í gang aftur og með hjálp Wolfgang gengur það bara stórvel.  Ég er allavega sáttur við þetta allt sjálfur.  

Hér var svo eldað snitsel í kvöld með sítrónusafa og öfnbökuðum heimagerðum kartöflum og graslaukssósu.  Alls ekki slæmt það, maður er smám saman að fá eldamennskuáhugann aftur, eftir því sem maður hvílist meira, það er alveg magnað að sjá hvað góður svefn hefur mikið að segja um geðheilsu :)

Nú svo styttist í að mæðgurnar hendist til Íslands, og ég verð einn eftir hér í borg óttans.  En það verður bara gott og ég mun, sem áður sagði, nýta tímann vel.

Guð blessi Ísland.

8.1.09

Er sagan endalaus? eða hvernig virkar þetta?

Í mestu frostatíð sem riðið hefur yfir Berlín í yfir 10 ár, situr maður inni í hlýjunni, á milli stríða, sötrar appelsínusafa og hugleiðir framtíð sína á meðan maður borðar brauðsneið með heimatilbúnu skinkusalati.    Svona er Berlín í dag.

Hér er semsagt hrikalega kalt, og lítið hægt annað en að hanga bara inni.  Þó þurftum við að hendast útfyrirhússins dyr í gær með ungfrúnna, en hún var á leið til læknis.  Til að gera langa sögu stutta, þá er ekkert annað annað en gasverkir, þannig var nú það.  Læknirinn sem við hittum var mjög yndislega og talaði ensku við okkur að fyrrabragði, hvort það segi eitthvað um þýskukunnáttu okkar skal ég ekki segja :)   Allavega við fengum enn eitt náttúrulyfið sem Júlía harðneitar að drekka þannig að það er ekki uppi á borðinu að gefa það.  Fengum einnig ávísað kúmenstílum!!  Já þið lesið rétt, þjóðverjar eru voðalega náttúruþenkjandi, sem er í raun bara gott mál, en þetta er svolítið magnað.  Á morgun er svo verið að fara með Júlíu í reglubundna ungbarnaskoðun, og þar verður meðal annars tekin sónar af mjöðmunum á henni, en það er víst einhver regla eða gera það hér.  Meira veit ég ekki hvað gerist.    Svo eftir það er það tveggjamiljón króna maðurinn, sem ætlar að beita Osteopatíu á blessað barnið. 

Nú sagan endalausa varðandi tryggingamál heldur áfram....... eða svo sýnist manni í fyrstu. Þýsku tryggingaskírteinin okkar eru ss útrunnin og við þurfum að láta endurnýja, það er búið að útbúa alla pappíra og senda þá til þýskalands, ég hringdi í dag til að tékka á því hvort þetta væri komið, og það var eitthvað vesen, sem endaði með því að þau ætla að hringja í mig í fyrramálið.  Afþví að við erum ekki með tryggingaskírteinið fyrir Júlíu er ekki ólíklegt að okkur verði hafnað í skoðuninni á morgun.  Reyndar komumst við upp með að nota Evrópska skírteinið mitt í gær, þar sm ungfrúin er ekki komin með slíkt í hendurnar, en það var nú bara afþví að starfsfólkið var svo yndislegt.  Þvímiður eru ekki öll klinik sem sinna ungbarnaskoðunum, þar sem það er svo mikið að gera allstaðar, þannig að við megum kannski teljast heppin að vera þó kominn með fótin í dyrnar á einu klinik hér, ekki kannski það besta, en ætti að duga.

Annars er hér allt að skána aðeins sú litla hefur róast mikið á nóttunni og geta foreldarnir hvílst aðeins á nóttunni.  En á daginn er hún vælandi meira en áður.  Við erum því farin, að læknisráði, að gefa henni risaskammta af Minifominu hugsanlega er það eitthvað að hjálpa.

Jæja, meira var það ekki í bili, Guð blessi Ísland og íslenska þjóð.

5.1.09

Bjartur og fallegur dagur í dag

Það er skrítið ástand að sofa og vaka bara einhverntíma.  Ég hef verið duglegur við að sofa á daginn og vaka nóttunni, en það er ekki af sömu óreglu og margir aðrir.   Hér hefur verið nóg að gera við að þjóna undir rassgatið á prinsessunni.  Hún virðist nú vera að róast aðeins, þó ekki sé nú enn útséð um það, síðustu 2 nætur hefur henni tekist að sofa allavega til 4, og eftir það tek ég hana og leyfi mömmu hennar að sofa.  Þetta mælist svosem ekkert illa fyrir hjá mér, því mér þykir gaman að vaka á nóttunni, sérstaklega ef sú litla sefur.  EN nú þarf að mæta í vinnu á morgnanna og því verður að berjast fyrir þessu.   Ég fór snemma að sofa í gær um 22:00 og vaknaði kl 2:00 og hef verið vakandi síðan.   Ekki er þreyta farin að gera vart við sig enn, en það mun vafalaust gerast áður en vinnudagurinn er úti.

Ég er búinn að setja mig í samband við osteópat og manuall therapista sem er með stofu hérna ekki lengra en 500m frá okkur, sem er gott.  Það verður áhugavert að sjá hvort slíkt húmbúkk komi til með að hjálpa eitthvað til, reyndar hef ég mikla trú á því, þar sem osteópatía er nánast sami hlutur og crani-sacral therapy sem ég sjálfur lærði á sínum tíma, hafði einhvernvegin alltaf hugsað mér að setja barnið mitt í slíkt til að forða því frá m.a ADHD og fleiri vandamálum sem þetta á að geta komið veg fyrir.

Annars er nú bara það helst að frétta að Soffía og dóttirin eru á leið til íslands 16.janúar, þannig að ég fæ þá góða pásu frá væli í nokrra daga til að geta nú sinnt vinnu og söng að meiri mætti, og þessi tími verður nýttur í botn, það er algerlega öruggt mál!!

Hér hefur maður verið að reyna að elda eitthvað undanfarna daga en ekki mikil löngun er þar á bakvið.  Þó verður maður nú að reyna að elda eitthvað, sérstaklega þar sem frúin á helst að borða bara "leiðinlegan" mat, því það virðist vera það eina sem er eitthvað vit í, erum búin að reyna allt annað.  Gáfum þeirri litlu stærri skammta af Dicyclo en við höfðum áður gert, þó ekki meira en lágmarkið sem mælt er með, og töldum við aftur að það væri að gera sig, en nú höfum við ekki gefið henni það í 2 daga og hún hefur aldrei verið betri, þó hún mætti nú aulast til að sofa eitthvað. 

Ljúkum þessu á vetrarmynd héðan frá Kurfürsten og einni góðri af þeirri litlu.

Guð blessi Ísland.

2.1.09

Á nýju ári....

...mun ég fá vinnu við að syngja?   Þurfum við að flytja í minna húsnæði?  Getum við haldið það út hérna í Berlín?  Verður Júlía betri?  Fáum við einhvern svefn næstu 15 árin?  Mun maður loksins finna tilganginn í þessu öllu saman? 

Þetta eru áleitnar spurningar sem líklega verður ekki svarað nema eftir því sem tíminn líður.  Áramótin komu og fóru, hér var horft á fréttaannála og áramótaskaup.  Það var einnig skæpað í Holtið eftir miðnætti og gaman að sjá að þar var fólk slakt sem endranær, ekki laust við það að maður hafi saknað þess að halda ekki áramót eins og maður er vanur, þ.e ekki með grenjandi barn yfir sér og illa sofinn.

Bjarti punkturinn í áramóta jóla og áramótahaldi hérna var maturinn, þar sem í hann var lögð sérstök natni.  Persónulega er ég ánægðastur með andabringurnar sem ég eldaði á gamlárs, þar var hent saman allskyns uppskriftum, þar sem ég fann ekki neina uppskrift af þessu sem innihélt allt eins og ég vildi hafa það.   Marinering úr appelsínusafa, púðursykri, hunangi, sírópi, hvítvíni og rosemary...... mmmmm.  Kjötið var alveg hrikalega gott, sem ég átti ekki von á þar sem lyktin af því ósteiktu var ekkert spes, og nánast óætt daginn eftir, en nýsteikt....mmmm hef bara ekki smakkað annað eins.  Ég hef því skrifað niður formúluna, og mun vonandi geta látið á hana reyna aftur fljótlega.  Með öndinni voru svo brúnaðar kartöflur með 50/50 púðursykur og hvítur sykur, það er jafnvel betra en að nota bara hvítann, og svo gerði ég kalkúnafyllingu með þessu sem var alveg súpergóð.  

Berlínarbúar skjóta allflestir upp flugeldum, og hér kaupir maður þá bara í matvöruverslunum.  Á Íslandi hef ég aldrei keypt flugelda og gerði það heldur ekki hér.  Enda hefði það nú líkelgast ekki verið neitt sérstaklega gaman.

Júlía er búin að vera sérlega slæm síðustu tvær nætur og það er varla hægt að leggja hana frá sér öðruvísi en að allt fari í háaloft.  Þetta er auðvitað hrikalega þreytandi, og ég sem hélt að þetta gæti ekki versnað.  En nei nei, þá gerist það bara.

Jæja ein mynd hérna frá ármótum í Berlín.  Og að sjálfsögðu eru komnar fleiri myndir í myndaalbúmið hennar Júlíu.

Þangað til næst.  Guð blessi Ísland