15.1.09

Nútímalegt = leiðinlegt?

Þá fæ ég aðeins að njóta þess að hafa litlu Júlíu hjá mér í einn dag í viðbót.  Hún er mikið búin að reyna að vera dugleg síðustu daga og hefur lítið grenjað, þó koma stór og löng köst seinnipart dags til miðnættis eða þar um bil.  Hún sefur núna umtalsvert, eins og ungabörn eiga að gera, hún er líka mjög vakandi fyrir umhverfinu sínu, þegar hún er vakandi, og sérlega áhugasöm, auk þess sem hún er byrjuð að "tala" á fullu.   Þetta gerir mann ánægðan, það er gott að vita að barnið er að þroskast eins og eðlilegt er.  Ég er búinn að safna nokkrum videóklippum saman frá heimkomu og til dagsins í dag, ég mun deila því með lesendum síðunnar um helgina þegar ég hef smá tíma til að klippa þetta saman.

Ég er í óðaönn þessa dagna að REYNA að læra nútímaverk(atónal) fyrir 20.janúar nk.  Það er hægara sagt en gert.   Stundum er bara auðveldara að giska á tónana, þar sem það er yfirleitt réttara en að reyna að muna hvað á að koma hvar :)   Þetta er semsagt upptaka og tónleikar sem verða haldnir í Villa Wannsee til að "minnast" (veit ekki hvort að það rétt að segja það þannig) Wannsee fundarins þar sem ákveðið var að útrýma gyðingum.   Ég ákvað að taka þetta vitandi hverskyns tónlist þetta væri þar sem maður getur ekki alveg gagnrýnt eitthvað án þess að prufa það allavega sjálfur, auk þess að maður hefur gott af því að komast út og syngja eitthvað af og til. Verkið sem um ræðir heitir "Todesfuge" og er eftir Arie Shapira.

Ég er kominn á fullt að undirbúa næsta ár, og er þegar kominn með nokkrar keppnir í sigtið, auk áheyrnarprufa.  Þarf að fara í það útbúa efni til að senda og gera allt klárt, það versta er að það eru nokkrar stórar keppnir og prufur í febrúar, ákkúrat á sama tíma og ég er á Íslandi, en aldurstakmark er 35 í eitthvað af þeim þannig að ég á séns að ári, ef ég verð ekki búinn að gefast algerlega upp og orðin peningalaus þegar að því kemur.

Hér er ennþá snjór yfir öllu og mikið mistur liggur yfir Berlín þessa stundina.  Hér er þó farið að hlýna og vonandi kemur sumarið bara mikið fyrr en það gerði  á síðasta ári.

Guð blessi Ísland.


1 ummæli:

  1. Vakandi fyrir umhverfinu, "talar", sefur umtalsvert betur... allt í réttu áttina, þrátt fyrir bið í byrjun. - Sennilega er fröken Júlía að æfa sig fyrir að vera góð og skemmtileg heima í Skagafirði. Svo veit hún líka að þú ert dálítið þreyttur..."pabbi minn".

    Sem sagt gangi nú allt vel:
    ferðir og ferðalög,
    æfingar og áheyrnarprufur, eldamennska og innkaup...
    og að fá að SOFA heima - lengi... og oft... og svo aðeins meira. - Dásamlegt!

    Ættarfylgjan

    SvaraEyða