Ég er ekki enn kominn með nóturnar í hendurnar fyrir tónleikana sem ég er að fara syngja á 20.jan, er þó að fara reyna að hitta á stelpuna sem er með þær á morgun, það verður sérstaklega fróðlegt að sjá hvað ég er búinn að koma mér útí :) Nú svo er ég á fullu að reyna að koma mér í gang aftur og með hjálp Wolfgang gengur það bara stórvel. Ég er allavega sáttur við þetta allt sjálfur.
Hér var svo eldað snitsel í kvöld með sítrónusafa og öfnbökuðum heimagerðum kartöflum og graslaukssósu. Alls ekki slæmt það, maður er smám saman að fá eldamennskuáhugann aftur, eftir því sem maður hvílist meira, það er alveg magnað að sjá hvað góður svefn hefur mikið að segja um geðheilsu :)
Nú svo styttist í að mæðgurnar hendist til Íslands, og ég verð einn eftir hér í borg óttans. En það verður bara gott og ég mun, sem áður sagði, nýta tímann vel.
Guð blessi Ísland.
pjúhhh!
SvaraEyðaGóð þessi hugm með heimagerðu kartöflurnar - :)
HEIMAKRYDDUÐUM þá, til að hafa þetta pólitískt rétt.
SvaraEyða+Verði ykkur að góðu - og gott er að setja smá síldarbita og ögn af kapers ofan á schitzel, og svo ...auðvitaðmeð sítrónubátum eða sneiðum.
SvaraEyðaJa, mikið verður nú gaman þegar uppskriftabókin kemur frá Berlin - og hægt verður að prófa ljúfmetis-lýsingarnar, (holdgervðar)- hverjar leitt hafa mig að ísskápnum... í leit a að "einhverju....bara einhverju"!
Velgengnióskir
Ættarfylgjan