"Það er forystu Geirs H. Haarde að þakka að tjónið af kerfishruni bankanna varð ekki meira en raun hefur orðið" , "Traust tök Geirs H. Haarde á þeim stóru málum..."
-Bíddu nú við!!!! Manni sýnist ekki betur en að allt hafi farið eins illa og hægt var. Það væri gaman að sjá hvernig þetta gæti hafa farið verr með einhverja aðra við stjórnvölinn.
-Bíddu nú við!!!! Manni sýnist ekki betur en að allt hafi farið eins illa og hægt var. Það væri gaman að sjá hvernig þetta gæti hafa farið verr með einhverja aðra við stjórnvölinn.
"Samfylkingin reyndist hins vegar vera sú kvísl sem fyrst brotnaði undan storminum"
- Eða kannski greinin sem braut sig af sjálf til þess að minka vindmótstöðuna og koma í veg fyrir að allt helvítis tréið hrynji.
Skilyrðislaus hlíðni og blind trú á leiðtoga og flokka er það eina í þessum heimi sem skapar erfiðleika, stríð og vansæld. Það þarf nú ekki gáfaðan einstakling til að sjá það. Því er haldið fram að Samfylkingin sé sundurlaus og útum allt!! Ég hefði haldið að mismunandi skoðanir fólks og rétturinn til að tjá þær sé ofar öllu, hvernig annars ætti að vera hægt að komast að réttlátri niðurstöðu um mál sem varða alla.
Fólkið í landinu krafðist breytinga og það fékk breytingar, nú er bara að vona að þær verði til góðs, og að Jóbama taki aðeins til. Þó á ég ekki von á því en stundum eru breytingar breytinganna vegna, það sem þarf.
Ég vil svo taka það fram að ég er algerlega óflokksbundinn, þó megi eflaust skiljast á þessum orðum mínum eitthvað annað.
Ljúkum þessu á lokaorðunum úr áróðurssöng sem eftilvill er sunginn á fundum SUS fyrir framan mynd af foringjanum?
"Für [Haarde/Davíð] leben wir und für ihn sterben gerne wir
Für den Führer bis zum Tod, denn er ist unser Gott"
"Für [Haarde/Davíð] leben wir und für ihn sterben gerne wir
Für den Führer bis zum Tod, denn er ist unser Gott"
Gott segne Island
Auðvitað eru þeir til, í þessu ágæta landi, sem væru tilbúnir til þess, ef þeir læsu þessi skrif, að blása upp og fordæma hástöfum. Hér er það ansi margt sem ekki má segja þótt satt geti verið.
SvaraEyðaÞeir sem ekki þola orðin ættu ekki að vera í verkunum, það er mín skoðun. Svo ég tali nú kryptískt eins og sumir :)
SvaraEyðaHeil Haarde - Þetta er einhverstaðar kallað hjarðeðli. Þú eltir forusturollunu í blindni þó svo að hún leiði þig í sjálfheldu á klettasyllu eða út í beljandi fljót. Altaf er rétt að verja forustuna - þannig virka þessir blessuðu flokkar okkar... Guð blessi Ísland :)
SvaraEyðaÞað eru aðeins til tvær tilfinningar í heiminum:
SvaraEyðaÓTTI og ÁST. Allar hinar eru undirflokkar af öðru tveggja. Græðgi=óttinn við að ÉG fái ekki...
Valdafíkn = óttinn við að aðrir ráði meiru en ég...
Græðgi og valdafíkn, þessir tveir af mörgum undirflokkum ÓTTANS eru undirrót flestra mannlegra meina; stríðsrekstrar, innrása,oheilinda og ósannsögli, valdarána, fjármálafláræðis,... og virðingarleysið fyrir öðrum mannverum er oftast blandið ótta við það, sem við ekki þekkjum....
Ættarfylgjan
(staðfestingarorðið sem ég fékk var nosing; örugglega dregið af "nosy", býst ég við1 Enda hvað er ég að hnýsast í þín skrif, Egill?!)