28.1.09

Hugleiðingar

Lengi hef ég nú verið harðorður í garð fávita, og þannig að er það bara.  Það er tildæmis rosalega erfitt að segja ekkert þegar komið er eins og það er á Íslandi.  Vissulega er það eina sem blasir við mér þessa dagana er að ég er fá aðeins fleiri Evrur fyrir peningana mína heldur en áður, sem er alltaf gott, en það er ekki nóg.   Hver einasti sjálfsæðismaður, sem þykir vera eitthvað, í þessari pólitík hefur nú lagst á árar með að gera það sem Sjfl gerir best, en það er að reyna að afvegaleiða fólk frá því sem er að gerast.  Það er verið að vitna í prósentur um hitt og þetta, og hræðsluáróðri um að allt fari til fjandans, þegar vinstri stjórnin tekur við, sem ég er ekki endilega að segja að gerist ekki :).    Mér hefur reyndar alltaf ofboðið valdahroki og yfirstéttartilburðir æðstu stjórnar Sjfl, þetta er svona svipað og valhrokinn í sumum af æðstu stjórnendum kirkjunnar.  Að fólk haldi að það geti hagað sér svona er út í hött.  Ég er mjög hrifin af orðinu sem DV notar um þennan rotna kjarna þessa valdagráðugustu stofnunar í íslensku samfélagi, en þeir kalla þetta alltaf "náhirð Davíðs Oddssonar".   Þetta minnir óneitanlega á tilburði National Sosialista flokksins hérna í þýskalandi fyrir einhverjum árum.  Það tók nú algerlega steininn úr þegar SUS (Hitlers æskan eins og ég kýs að kalla þau), ákvað að senda frá sér yfirlýsingu um að þau "harmi tilgangaslaus stjórnarslit".   Maður þarf nú ekki annað en að lesa yfirlýsinguna til að sjá hversu veruleikafirrt þetta lið er orðið.  Ég rak augun í nokkrar setningar í þessari yfirlýsingu þeirra.

"Það er forystu Geirs H. Haarde að þakka að tjónið af kerfishruni bankanna varð ekki meira en raun hefur orðið" , "Traust tök Geirs H. Haarde á þeim stóru málum..."
-Bíddu nú við!!!!  Manni sýnist ekki betur en að allt hafi farið eins illa og hægt var.  Það væri gaman að sjá hvernig þetta gæti hafa farið verr með einhverja aðra við stjórnvölinn.  
 
"Samfylkingin reyndist hins vegar vera sú kvísl sem fyrst brotnaði undan storminum"
-
Eða kannski greinin sem braut sig af sjálf til þess að minka vindmótstöðuna og koma í veg fyrir að allt helvítis tréið hrynji.

Skilyrðislaus hlíðni og blind trú á leiðtoga og flokka er það eina í þessum heimi sem skapar erfiðleika, stríð og vansæld.  Það þarf nú ekki gáfaðan einstakling til að sjá það.  Því er haldið fram að Samfylkingin sé sundurlaus og útum allt!!  Ég hefði haldið að mismunandi skoðanir fólks og rétturinn til að tjá þær sé ofar öllu, hvernig annars ætti að vera hægt að komast að réttlátri niðurstöðu um mál sem varða alla. 

Fólkið í landinu krafðist breytinga og það fékk breytingar, nú er bara að vona að þær verði til góðs, og að Jóbama taki aðeins til.  Þó á ég ekki von á því en stundum eru breytingar breytinganna vegna, það sem þarf.

Ég vil svo taka það fram að ég er algerlega óflokksbundinn, þó megi eflaust skiljast á þessum orðum mínum eitthvað annað. 

Ljúkum þessu á lokaorðunum úr áróðurssöng sem eftilvill er sunginn á fundum SUS fyrir framan mynd af foringjanum?
"Für [Haarde/Davíð] leben wir und  für ihn sterben gerne wir
Für den Führer bis zum Tod, denn er ist unser Gott"

Gott segne Island

4 ummæli:

  1. Auðvitað eru þeir til, í þessu ágæta landi, sem væru tilbúnir til þess, ef þeir læsu þessi skrif, að blása upp og fordæma hástöfum. Hér er það ansi margt sem ekki má segja þótt satt geti verið.

    SvaraEyða
  2. Þeir sem ekki þola orðin ættu ekki að vera í verkunum, það er mín skoðun. Svo ég tali nú kryptískt eins og sumir :)

    SvaraEyða
  3. Heil Haarde - Þetta er einhverstaðar kallað hjarðeðli. Þú eltir forusturollunu í blindni þó svo að hún leiði þig í sjálfheldu á klettasyllu eða út í beljandi fljót. Altaf er rétt að verja forustuna - þannig virka þessir blessuðu flokkar okkar... Guð blessi Ísland :)

    SvaraEyða
  4. Það eru aðeins til tvær tilfinningar í heiminum:
    ÓTTI og ÁST. Allar hinar eru undirflokkar af öðru tveggja. Græðgi=óttinn við að ÉG fái ekki...
    Valdafíkn = óttinn við að aðrir ráði meiru en ég...

    Græðgi og valdafíkn, þessir tveir af mörgum undirflokkum ÓTTANS eru undirrót flestra mannlegra meina; stríðsrekstrar, innrása,oheilinda og ósannsögli, valdarána, fjármálafláræðis,... og virðingarleysið fyrir öðrum mannverum er oftast blandið ótta við það, sem við ekki þekkjum....
    Ættarfylgjan

    (staðfestingarorðið sem ég fékk var nosing; örugglega dregið af "nosy", býst ég við1 Enda hvað er ég að hnýsast í þín skrif, Egill?!)

    SvaraEyða