Eins og alþjóð veit er ég einn hérna í Berlín þessa dagana, og líkar það svosem ekki illa, en viss söknuður er nú kominn í mann, þar sem maður er jú að missa af þeim tíma þegar ungfrúin vex hvað hraðast. Ég heyri þó reglulega í þeim mæðgum og virðist nú allat vera við það sama. Þó skilst mér að gráturinn sé hættur að vera eins sár, en vælið er mikið og erfitt að fá hana til að sofna. Þetta er því ekki mikil breyting frá því að hún fór heim, en við vorum farin að sjá smá framför hjá henni rétt áður en haldið var til Íslands. Hún fer nú að nálgast 2 mánaða markið, og þá tala margir um að það verði breyting, en ef Júlía ætlar að halda sig við það sem hún hefur gert hingaðtil, þá mun hún nýta alla 3 mánuðina :) Við ætlum að fá tíma hjá vinsælum barnalækni í febrúar og sjá hvort það skili einhverju.
Matar og svefnvenjur eru ekki upp á það besta þessa dagana, en það er allt að jafna sig, það tekur smá stund að aðlagast breyttu mynstri. Ég er búinn að græja öll tryggingamál..... að ég held og ættum við að fá tryggingakortin okkar á morgun eða miðvikudag ef allt gengur eftir, það verður mikill léttir fyrir mig, þar sem ég þoli ekki lausa enda í einhverju svona. Það bæði truflar einbeitinguna í öðrum hlutum og er bara ekki skemmtilegt. Þó hefur þetta hjálpað mér mikið að
læra þýskuna :)
Að lokum nokkrar myndir af ungrúnni...... Guð blessi Ísland
Dugleg í flugvélinni á leið til Íslands



Það hefði nú verið dálítið gaman að fylgjast með þér þar sem þú sast andspænis umræddum einstaklingi - með þann möguleika opinn að þetta gætu verið endalokin. :) - en aðeins ef ég hefði vitað betur.
SvaraEyðaJúlía er að jafna sig
jákvæð er fregnin sú.
Ekki skal það undra mig
að eflist stúlkan sú.
(frekar áhrjálegur kveðskapur :()
.....til að forða algerum mannorðsmissi vil ég geta þess að síðasta línan á að vera:
SvaraEyðaað eflist stúlkan nú.
Ég sé þetta alveg fyrir mér, titrandi efri vörin, svitinn streymir úr andlitinu og hræðslan gerir vart við sig ! Góðu fréttirnar eru samt auðvita að það eru ekki allir múslimar með sprengjubelti innanklæða!
SvaraEyðaKv. Birkir
Já, hérna - og alveg að fjúka niður úr sætinu...af skelfingu ... plomm... og á gólfið..
SvaraEyðaSjúkkett að þú varst farinn út þegar hún sprakk!
Ættarfylgjan