26.1.09

Næstum því dáinn í lest?!?!

Fyrirsögnin er svosem ekki mikið til að panikka yfir, en ég var á leiðinni með lestinni um daginn, þegar á móti mér sest flóttalegur maður með mikið skegg og nokkur ör í andlitinu, hann var í mjög breiðum jakka eins og hann sé með eitthvað undir jakkanum.  Svosem þetta eitt og sér þarf ekki að segja neitt sérstakt, sumir eru bara skrítnari en aðrir....... EN..... svo tekur vinurinn upp vasaútgáfu af kóraninum, og fer að fletta fram og til baka og lesa á fullu og þylja það með sjálfum sér, á þessum tímapunkti hugsaði ég með mér "ætli það sé bara komið að því.!!", en auðvitað gerðist ekki neitt, ég seldi mér hugmyndina að þetta yrði í lagi þar sem við vorum ekki að ferðast þegar mikið fólk er á ferli.  EN ég viðurkenni fúslega að mér brá talsvert við tilbúning eigin huga á aðstæðunum.
Eins og alþjóð veit er ég einn hérna í Berlín þessa dagana, og líkar það svosem ekki illa, en viss söknuður er nú kominn í mann, þar sem maður er jú að missa af þeim tíma þegar ungfrúin vex hvað hraðast.  Ég heyri þó reglulega í þeim mæðgum og virðist nú allat vera við það sama.  Þó skilst mér að gráturinn sé hættur að vera eins sár, en vælið er mikið og erfitt að fá hana til að sofna.  Þetta er því ekki mikil breyting frá því að hún fór heim, en við vorum farin að sjá smá framför hjá henni rétt áður en haldið var til Íslands.  Hún fer nú að nálgast 2 mánaða markið,  og þá tala margir um að það verði breyting, en ef Júlía ætlar að halda sig við það sem hún hefur gert hingaðtil, þá mun hún nýta alla 3 mánuðina :)   Við ætlum að fá tíma hjá vinsælum barnalækni í febrúar og sjá hvort það skili einhverju.

Matar og svefnvenjur eru ekki upp á það besta þessa dagana, en það er allt að jafna sig, það tekur smá stund að aðlagast breyttu mynstri.  Ég er búinn að græja öll tryggingamál..... að ég held og ættum við að fá tryggingakortin okkar á morgun eða miðvikudag ef allt gengur eftir, það verður mikill léttir fyrir mig, þar sem ég þoli ekki lausa enda í einhverju svona.  Það bæði truflar einbeitinguna í öðrum hlutum og er bara ekki skemmtilegt.  Þó hefur þetta hjálpað mér mikið að
 læra þýskuna :)

Að lokum nokkrar myndir af ungrúnni...... Guð blessi Ísland

Dugleg í flugvélinni á leið til Íslands

4 ummæli:

  1. Það hefði nú verið dálítið gaman að fylgjast með þér þar sem þú sast andspænis umræddum einstaklingi - með þann möguleika opinn að þetta gætu verið endalokin. :) - en aðeins ef ég hefði vitað betur.

    Júlía er að jafna sig
    jákvæð er fregnin sú.
    Ekki skal það undra mig
    að eflist stúlkan sú.
    (frekar áhrjálegur kveðskapur :()

    SvaraEyða
  2. .....til að forða algerum mannorðsmissi vil ég geta þess að síðasta línan á að vera:
    að eflist stúlkan nú.

    SvaraEyða
  3. Ég sé þetta alveg fyrir mér, titrandi efri vörin, svitinn streymir úr andlitinu og hræðslan gerir vart við sig ! Góðu fréttirnar eru samt auðvita að það eru ekki allir múslimar með sprengjubelti innanklæða!

    Kv. Birkir

    SvaraEyða
  4. Já, hérna - og alveg að fjúka niður úr sætinu...af skelfingu ... plomm... og á gólfið..
    Sjúkkett að þú varst farinn út þegar hún sprakk!

    Ættarfylgjan

    SvaraEyða