Þetta eru áleitnar spurningar sem líklega verður ekki svarað nema eftir því sem tíminn líður. Áramótin komu og fóru, hér var horft á fréttaannála og áramótaskaup. Það var einnig skæpað í Holtið eftir miðnætti og gaman að sjá að þar var fólk slakt sem endranær, ekki laust við það að maður hafi saknað þess að halda ekki áramót eins og maður er vanur, þ.e ekki með grenjandi barn yfir sér og illa sofinn.
Bjarti punkturinn í áramóta jóla og áramótahaldi hérna var maturinn, þar sem í hann var lögð sérstök natni. Persónulega er ég ánægðastur með andabringurnar sem ég eldaði á gamlárs, þar var hent saman allskyns uppskriftum, þar sem ég fann ekki neina uppskrift af þessu sem innihélt allt eins og ég vildi hafa það. Marinering úr appelsínusafa, púðursykri, hunangi, sírópi, hvítvíni og rosemary...... mmmmm. Kjötið var alveg hrikalega gott, sem ég átti ekki von á þar sem lyktin af því ósteiktu var ekkert spes, og nánast óætt daginn eftir, en nýsteikt....mmmm hef bara ekki smakkað annað eins. Ég hef því skrifað niður formúluna, og mun vonandi geta látið á hana reyna aftur fljótlega. Með öndinni voru svo brúnaðar kartöflur með 50/50 púðursykur og hvítur sykur, það er jafnvel betra en að nota bara hvítann, og svo gerði ég kalkúnafyllingu með þessu sem var alveg súpergóð.
Berlínarbúar skjóta allflestir upp flugeldum, og hér kaupir maður þá bara í matvöruverslunum. Á Íslandi hef ég aldrei keypt flugelda og gerði það heldur ekki hér. Enda hefði það nú líkelgast ekki verið neitt sérstaklega gaman.
Júlía er búin að vera sérlega slæm síðustu tvær nætur og það er varla hægt að leggja hana frá sér öðruvísi en að allt fari í háaloft. Þetta er auðvitað hrikalega þreytandi, og ég sem hélt að þetta gæti ekki versnað. En nei nei, þá gerist það bara.
Jæja ein mynd hérna frá ármótum í Berlín. Og að sjálfsögðu eru komnar fleiri myndir í myndaalbúmið hennar Júlíu.
Þangað til næst. Guð blessi Ísland
já það er mörgum spurningum ósvarað... vonandi þó að svarið verði; já við þeim flestum allavega :)
SvaraEyðavorum að skoða myndir af Fröken Júlíu, hún er mjög fín stelpa.
SvaraEyðaJá og gleðilegt nýtt ár.
Frá stuðliðinu í Kirkjuholti.
Gleðilegt nýtt ár og til hamingju með dótturina. Segir ekki í gömlu máltæki að öll él stytti upp um síðir, vonandi verður þetta magakveisu él ekki alltof langvarandi... En ég ætla að taka mér það bessaleyfi að benda á bloggið þitt ef fólk er að spyrja af hverju maður sé ekki komin með krakka ;)
SvaraEyðaBestu óskir fyrir árið 2009
Dóra Drumbur
Sem betur fer vitum vér aumir menn aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er hinsvegar yfirleitt aðferð okkar að vona að allt fari á besta veg. Þegar grundvöllurinn er lagður eftir kúnstarinnar reglum reynist niðurstaðan oftar ekki verða sú sem vonast er eftir.
SvaraEyðaMenna verða að vera djúpt þenkjandi á þessum tímum.