Ég er búinn að setja mig í samband við osteópat og manuall therapista sem er með stofu hérna ekki lengra en 500m frá okkur, sem er gott. Það verður áhugavert að sjá hvort slíkt húmbúkk komi til með að hjálpa eitthvað til, reyndar hef ég mikla trú á því, þar sem osteópatía er nánast sami hlutur og crani-sacral therapy sem ég sjálfur lærði á sínum tíma, hafði einhvernvegin alltaf hugsað mér að setja barnið mitt í slíkt til að forða því frá m.a ADHD og fleiri vandamálum sem þetta á að geta komið veg fyrir.
Annars er nú bara það helst að frétta að Soffía og dóttirin eru á leið til íslands 16.janúar, þannig að ég fæ þá góða pásu frá væli í nokrra daga til að geta nú sinnt vinnu og söng að meiri mætti, og þessi tími verður nýttur í botn, það er algerlega öruggt mál!!
Hér hefur maður verið að reyna að elda eitthvað undanfarna daga en ekki mikil löngun er þar á bakvið. Þó verður maður nú að reyna að elda eitthvað, sérstaklega þar sem frúin á helst að borða bara "leiðinlegan" mat, því það virðist vera það eina sem er eitthvað vit í, erum búin að reyna allt annað. Gáfum þeirri litlu stærri skammta af Dicyclo en við höfðum áður gert, þó ekki meira en lágmarkið sem mælt er með, og töldum við aftur að það væri að gera sig, en nú höfum við ekki gefið henni það í 2 daga og hún hefur aldrei verið betri, þó hún mætti nú aulast til að sofa eitthvað.
Ljúkum þessu á vetrarmynd héðan frá Kurfürsten og einni góðri af þeirri litlu.
Guð blessi Ísland.


Gaman að námið sem ég borgaði 2 milljónir fyrir sé kallað húmbúkk. En vonandi virkar það
SvaraEyðaHey Fröken Jules er mánaðargömul í dag - húrra fyrir henni.
SvaraEyðaEn eigum við eitthvað að ræða prakkarasvipinn á frökeninni á myndinni "djöfull er ég nú búin að hrissta upp í liðinu, gamla settið svefnlaust og ég á orginu"
Peace fyrir Júlíu.
Kv, frá frænkunni á gullskónum.
Já Þorvaldur, ég átti von á því að þú tækir þetta til þín :) En varla er fólk að borga 2 milljónir fyrir nám sem ekkert vit er í ?
SvaraEyðaSæll Egill og til hamingju með stelpuna. Leitt að heyra hvað hún er slæm í maganum... veit ekki hvort það hefur eitthvað að segja en allt reykt kjöt og malt/jólaöl fór mjög illa í magann á báðum mínum stelpum.
SvaraEyðaGangi ykkur vel með þetta allt saman
kv
Hekla Hrönn
Ótrúlega er hún falleg á þessari mynd stelpan - lítur ekki út fyrir að vera ósofin ;)
SvaraEyðaKv. Kristín Ósk
Þú ÁGÆTI tenór á erlendri grund...
SvaraEyðasko!!! Afskiptasemin alveg að fara með hirðkveðil Kvistholts sem þarf aðeins að leiðrétta einn hlut í frásögn þinni af næturvökunum, sem munu þó senn vera að lagast.
... að þjóna undir rassgatið á ... það er ég öldungis viss um að þú hefur ætlað að segja "hlúa að elsku litlu dótturinni, sem er augasteinninn okkar og við gætum ekki lifað án" - var það ekki rétt skilið?
Ekki móðgast ... ljúfi tenór. Þið eigið bara greinilega svo skýrlegt og fallegt barn!
Skelfing verður nú gaman og gott á mörgum vígstöðvum fyrir marga aðila að móðir Soffía skuli ætla að bregða sér bæjarleið með frumburðinn. Megi allir njóta þess í ystu æsar!
Svo er ég öldungis keng-sammála Þorvaldi bróður þínum í athugasemdum um prakkarasvipinn á litlu stúlkunni ykkar. "Gamla settið á tauginni"!!! "Gamla settið" - það eruð nefnilega þið! nú er komiðo að ykkur.
hihi og hehe
gangi ykkur allt í haginn
H.Ág.