6.2.12

Að kveðja gott fólk

Í gær var hér haldin heljarinar veisla íslenskum stíl.  Hangikjöt, rúgbrauð, harðfiskur og hákarl, auk brennivínsins góða.  Rúgbrauð og hangikjöt rauk út en minna fór fyrir því að harðfiskurinn færi sem er afar skrítið, því fólki fannst hann mjög góður.  Það kom mér merkilega á óvart að mjög margir fengu sé hákarl, og oftar en einusinni, og var það mál manna að þetta smakkaðast nú bara alveg eins og einhverjir franskir ostar :)  Og íslenska brennivínið þótti gott með, þó vissulega væri það ekki allra eins og venjan er.  Ég lét mig því hafa það að raunverulega smakka hákarl í fyrsta skipti, ekki get ég sagt að það hafi verið eitthvað hræðilegt, en ég mun ekki leggja mér þetta til munns aftur nema bara svona í félagslegum tilgangi.  Það kemur mér líka alltaf á óvart hvað íslenska brennivínið getur smakkast vel svona nýkomið úr frysti.

Hér mættu örugglega um 20 manns og var mikið gaman, veislan byrjaði kl 16:00 og var búin um kl 20:00 sem er bara nokkuð gott, Júlía komst í háttinn á svona nokkurvegin réttum tíma og við líka.

Hér fékk ég að skilnaði alveg stórkostlegar gjafir, og ég er öllum vinum mínum afar þakklátur fyrir að hugsa svona hlítt til mín.  Hér voru margir mjög sorgmæddir yfir því að ég væri að fara, og auðvitað er ég það líka að mörgu leiti. Mér leið að vissu leiti eins og ég væri að fara eftir 40 ára farsælt starf þegar þau gáfu mér sésmíðað úr frá Görlitz í skilnaðargjöf, þetta er eitt af aðeins 250 úrum sem framleidd eru, þannig að þarna er um flottan safngrip að ræða.  Ég fékk svo forláta músamottu með áprentaðri mynd af okkur flestum, þessi mynd var tekin í hléi á næst síðustu sýningunni minni hérna.  Og meira hefði ég ekki getað óskað mér að skilnaði allt þetta frábæra fólk.

Nú tekur við mikið stress og pökkun.  Flest húsgögnin verða keyrð út í dag og verður því afar tómlegt hér um að litast í kvöld og á morgun.  Ég hendi inn myndum af veislunni við tækifæri, þar sem ekki finnst usb snúra ákkúrat þessa stundina :)
Músamottan fína

Engin ummæli:

Skrifa ummæli