Tekin hefur verið lýðræðisleg ákvörðn um að fara í páskafrí hérna á götu valinna fursta. Búið er að panta bíl, og er ætlunin að keyra sem leið liggur annaðhvort í gegnum Danmörk og til Svíþjóðar, nú eða bara niður til Salzburgar og Ítalíu. Ferðin hefur ekki verið skipulögð, og er það bara hið besta mál. Þetta verður svona óvissuferð bara með öllu sem því tilheyrir. Ferðavélin verður tekin með og bloggað ef þurfa þykir :)
Þar sem ég er hættur að borða sykur, gerjað, hveiti og ávexti í bili, þá fær maður aldeilis að finna fyrir því að til er eitthvað sem heitir fráhvarfseinkenni. Þetta þekki ég vegna þess að ég hef gert þett áður. Þetta er rúm vika af algjöru helvíti (kannski alveg svo slæmt), en þetta er erfitt, því líkaminn öskrar á eitthvað gerjað eða sykur, eða bara eitthvað sem er óhollt :) En ég stenst freystingar því það er bara komið að því. Það er ekki gaman að vera ekki við 100% heilsu, bæði andlega og líkamlega. Svo er bara svo tilvalið að breyta um lifnaðarhætti þegar maður er á nýjum stað, og ég tala nú ekki um, heima hjá sér allan daginn, maður hefur heldurbetur tækifæri til að elda og útbúa þann mat sem manni hentar við þær aðstæður.
Hér á eftir kemur létt uppskrift af mjög hollum millimálarétti sem ég er að hakka mig þessa dagana:
Sjóða saman
CousCous
Brokkolí
Eðalkarry (ekki eitthvað drasl)
Búa bara til nógu mikið af þessu, því þetta geymist í góðum ísskáp.
Svo þegar manni langar í eitthvað, einfaldlega tekur maður það sem maður þarf, skellir því í örbylgjuna og hitar, svo bara sulla yfir þetta hreinni jógúrt (þýska jógúrtin bragðast eins og AB mjólk), og sítrónusafa eftir smekk. Einnig er hægt að sleppa karríinu út í CousCousið og bæta bara kryddum við jógúrtina áður en henni er hellt yfir.....mmmmmm
Ég ætla mér svo að vera með reglulegan þátt sem heitir:
"Tilrauna eldhús Egils - matur fyrir hugsandi fólk"
þar sem ég mun birta þær uppskriftir sem mér dettur í hug að prófa.
"Næst verð ég með Brokkolí puré.....fylgist með"
nohh.. það er ekkert annað!
SvaraEyðaég hef prufað svona hveiti-bann, það gengur ekkert vel hjá mér. Keypti annars spelt hveiti og mun gera tilraun til brauðgerðar einhverntíman á næstunni.
Vildi annars bara benda þér á að hún Kiri vinkona þín á afmæli í dag, þú hefur væntanlega sent henni þínar bestu afmæliskveðjur?