Nú staða evrunnar er farin að valda mér hugarangri, þar sem allt er orðið margfallt dýrara hérna en það var þegar við komum, tildæmis hefur söngtíminn farið úr rúmum 4200. kr í rúmar 5000.kr sem er alveg upphæð sem maður finnur fyrir. Nú svo til að bæta gráu ofan á svart, er Janet að fara hækka gjaldið í 60 EUR pr tíma, sem þýðir að miðað við stöðuna er farið að kosta jafn mikið fyrir mig að fara í tíma til hennar eins og að fara í tíma til David Jones, ég er því að hefja skoðun á flugi til NY, í lok sumars. Söngur gengur hægt, og ég er ekki alveg að átta mig á því hversvegna þessi ládeyða er yfir mér. Líklegast er það þó veðrið, en þó gæti það verið ýmislegt annað. Ég hef því tekið þá lýðræðislegu ákvörðun að hætta að drekka áfengi í bili og fara pína í mig mat sem ég hef ekki ánægju af því að borða, auk þess að hreyfa mig að lágmarki 40 mín á dag og stunda hugleiðslu. Gaman verður að sjá hvort ég komist ekki í betra andlegt og líkamlegt ástand við það.Ég hef einnig komist að þeirri "groundbreaking" staðreynd að ég þarf bara einfaldlega að skipuleggja mig betur til að koma öllu sem ég vil og þarf að gera fyrir á einum degi.
Kærar þakkir enn og aftur fyrir höfðinglegar móttökur.
SvaraEyðaÞetta með ládeyðuna er líklegast ekkert annað en hversdagsleikinn eftir tveggja mánaða hasar. Það er rétt hjá þér, að skipulag á hlutina kemur þessu að öllum líkindum í samt lag. :)
Vorkveðjur úr vetrarríkinu.
Fór svipaðar pælingar fyrir nokkru, æfa reglulega, borða rétt, hugleiðsla. Himin og jörð.
SvaraEyðaReyndar hef aldrei verið að hafa mikið fyrir mínum mat, þannig lítil breyting var þar á :P
En gangi þér vel með þetta.
afhverju bara ekki að flytja til fyrirheitna landsins? That´a no brainer eins og Peter Griffin myndi orða það
SvaraEyða