Já það má segja að lífið leiki við mann hérna í Berlín. Veðrið bara nokkuð gott í dag, sól, léttskýjað og 10 stiga hiti. Gæti hugsanlega verið verra.
Ég tel að ég hafi náð að koma mér uppúr þeirri lægð sem ég er búinn að vera í raddlega, og þá að sama tíma andlega, í síðasta tíma hjá Janet. En þá fór ég að tengja loksins sambandið milli þess að opna hálsinn bæði í norður og suður eins í austur og vestur, hvorutveggja þarf að gerast til að hægt sé að framkalla röddina frjálsar. Auðvitað þarf meira til en bara það, en þetta var það sem ég þurfti, nú er bara að ná að muna þetta og gera þetta aftur af miklu öryggi, þá held ég barasta að ég sé að verða tilbúinn.
Ég er búinn að senda inn umsókn á 12 daga MasterClass/Workshop í Austurríki í sumar, þar sem unnið er frá morgni til kvölds í að setja upp senur í óperum auk þess að vinna með raddþjálfara og píanóleikara. Sú sem sér um þetta er kennarinn hans Ásgeirs Páls, Martha Sharp, ef ég kemst inn í þetta væri það mjög gott fyrir mig, þar sem mig er farið að vanta eitthvað að stefna að og syngja, maður lærir ekki að syngja bara með því að gera raddæfingar :)
Vinkona Soffíu er hér og þær eru nú farnar í enn eina verslunarferðina, á meðan sit ég hér og hugsa um hvort ég ætli að fara spila "The Witcher" eða "S.T.A.L.K.E.R", hugsa að sá síðarnefndi verði fyrir valinu. Ég er nýbúinn að kaupa mér "Crysis" og kláraði hann í gærkvöldi. Ótrúlega fínn leikur og skemmtilegt concept, en....allt of stuttur, og ég held að ég fíli ekki alveg þetta geimveru concept sem er í lok leiksins. Sá hluti leiksins sem snýst um að gjörsigra kóreyska herinn sem er að elta mann er stórkostlegur og ég vildi að það hefði verið meira um það. Assassins Creed kemur svo út 26.mars að ég held, og mér finnst ólíklegt annað en að maður fái sér hann :)
Annars var ég að uppgötva að ég átti fullt af myndum af Gemsanum mínum, sem ég er núna búinn að henda í myndasafnið mitt, hægt er að smella á það hér vinstramegin.
Bis Später
Var einmitt að kaupa Assasins Creed í dag. Kvíði fyrir að byrja spila hann
SvaraEyðaÉg sem hélt að það að opna hálsinn í norður og suður, austur og vestur þýddi skurðaðgerð - eða bílslys!
SvaraEyðaAð maður vilji svo gera slíkt viljandi. Einum of fyrir mig...