Við erum semsagt officially komin á sumartíma frá og með deginum í dag. Það þýðir að við erum komin 2 tímum á undan Íslandi. Alveg magnað fyrirbrigði.
Héðan er fátt að frétta, það var svona sameinginlegur hóptími hjá Janet á föstudaginn, og ég tróð upp með Hamraborginni, svona til að kynna íslenskan menningararf :) Það gekk bara glimrandi vel, ég var allavega ánægður með hvernig það gekk. Í gær var að mestu rólegur dagur, ég sat í tölvunni og drakk bjór á meðan frúin á heimilinu fór eins og stromsveipur um heimilið og tók til og gerði það sem þurfti að gera. Ss fínn og rólegur dagur. Það styttist í yfirlýst heilsuátak, og ég er á báðum áttun, þar sem ég einfaldlega NENNI ÞESSU EKKI!!! EN ég verð, ég finn það mjög vel, það er ekki gott að vakna á sama stað og vinna á samastað og maður vaknar, og fara aldrei neitt út. Þannig að þetta er líka geðheilbrigðismál. Og nú þegar sumartíminn er kominn þarf þetta ekki að hafa áhrif á vinnuna heima, þar sem ég get vaknað hér kl 9 og farið í ræktina, en samt verið kominn í vinnuna kl 8 að íslenskum, þetta er bara algjör snilld. :)
Fékk eitthvað bréf frá Þýsku Orkuveitunni Vattenfall, sem ég hef ekki hugmynd um hvað þýðir, þannig að ég skannaði það og sendi Janet til yfirlestrar, það er óþolandi að fá svona bréf hérna, maður gæti allt eins verið að fá útburðartilkynningu, og maður hefði ekki hugmynd um það.
Úfff jæja, það er spurning hvað maður gerir af sér í dag, hugmyndin sem ég vaknaði með í morgun var að klára bjórinn sem ég á og spila tölvuleiki, þar sem á morgun er slíkt komið í tímabundna pásu. Veðrið er súperfínt, mjög hlýtt en sólarlaust, ætli maður píni sig ekki út í göngutúr með frúnni á eftir.
Bis später
Engin ummæli:
Skrifa ummæli