2.4.08

Þá er maður byrjaður í ræktinni....

....enn einusinni!!

Búinn að skrá sig í mjög flotta líkamsræktarstöð hérna nálægt, Fitness Company, þetta er víst eitthvað alþjóðlegt fyrirbæri, og maður hefur aðgang að öllum Fitness Company stöðvunum. Þetta er að vissu leiti flottara en WorldClass heima, en að öðru leiti ekki. Þarna eru t.d ekki æfingahandklæði, ekki blöndunartæki í sturtunum og ekki vatnsstandur. EN umhverfið er mjög flott, ný tæki og vel viðhaldið. Konurnar eru með sér gufu í klefanum sínum, en karlarnir eru með unisex gufu, og ólíkt íslandi þá er BANNAÐ að vera í sundfötum í gufunni, en mér er svosem sama um það, ég er engin tepra.

Maður fer af stað með offorsi, ég er nú samt að passa að ofgera mér ekki, og ég ákvað að nota aftur Body-for-Life, prógrammið sem hentaði mér mjög vel síðast þegar ég notaði það. Mjög einfallt og fljótlegt. Hættan er alltaf sú að gera of mikið, þá verður maður þreyttur á þessu og gefst upp fljótt, en þetta prógram er sett upp þannig að maður eiginlega getur það ekki.

Í fyrsta skipti síðan ég byrjaði að hreyfa mig eitthvað af viti, finn ég loksins þetta "high", sem fólk talar um, og ég held að það helgist af því að ég er búinn að vera frekar "low" í langan tíma. Þannig að núna er ekkert mál að breyta mataræði og ekkert mál sleppa áfengi og þannig rugli, það er bara mjög fínt. Nú er bara spurning um að stíga ölduna meðan hún er, og taka svo á æfingaleiðanum þegar hann kemur upp.

Í matarhorninu þetta skiptið er uppskrift að "Power-breakfast" sem ég henti saman í morgun, eiginlega stærsta próteinbomba sem ég hef búið til.

2 egg
1 skinkusneið (alvöru þykk þýsk skinka)
kotasæla
pizzakrydd jurtablanda

Steikja eggin báðumegin, henda skinkunni á sjóðheita pönnuna, láta hana rétt hitna og snúa svo við og setja kotasæluna og kryddið ofan á. Þegar kotasælan er byrjuð að bráðna tekur maður skinkuna af með kotasælunni og setur ofan á annað eggið á disk, og svo hitt eggið ofaná. Nóg salt er í skinkunni, þanngi að ekki er þörf á að salta þetta sérstaklega. En gaman er að nota pipar.

3 ummæli:

  1. Ég fékk bara thvílíkt vatn í munninn thegar ég las uppskriftina - verd ad prófa thetta einhvertímann (Søren mundi nú heldur ekki gráta thad ad fá svona morgunmat ;o)).

    Annars alltaf gaman ad kíkja og fylgjast med.

    Bvk.
    Ása og The Ekelunds

    SvaraEyða
  2. Það er ekkert til sem heitir 'æfingaleiði' - þetta er verkefni sem gengið er til með lokuðum huga - hvort það er líklegt til árangurs að hafa það eins og þau Reykholtshjón sem lagt hafa upp í þessa ferð með hálftíma róðri á dag, skal ég ekki fullyrða. (ég á fullt í fangi með að afkasta 5 mín. 3x í viku).
    Ekki og lengi í einu - sjá síðan árangurinn í rólegheitunum birtast næstu vikur og mánuði - það er lagið.

    SvaraEyða
  3. Slóðin á hálftíma róðurinn

    http://sealands.blogspot.com/2008/03/120.html

    SvaraEyða