25.2.09

Kominn aftur til Berlínar

Þá er maður kominn aftur á heimilið sitt umkringdur sínu dóti og með geymslupláss og ekki tilfinninguna að vera inni á einhverjum.

Það er vissulega gott að vera kominn aftur, en auðvitað saknar maður alltaf fólksins síns.  
Hér tekur nú við smá törn í að gera sig að alvöru söngvara.  Síðasti vinnudagurinn minn er á föstudaginn og hef ég boðið í léttar veitingar hérna á Kurfürsten í tilefni af því að nú hefst nýr kafli í mínu lífi, kafli sem verður vonandi stærri og meiri en sá sem lokið hefur verið við auk þess má segja að þetta sé einnig 10 ára afmæli mitt í vinnu á sama vettvangi.  Það verður skrítin tilfinning að hafa engar skildur nema gagnvart sjálfum sér og fjölskyldunni.

Á morgun  hendist ég upp til Neustrelitz þar sem ég er að fara í áheyrnarprufu fyrir lítið hús þar í bæ.  Við höfum einmitt tekið bíl til að fara þangað saman og reyna að sjá eitthvað í leiðinni.  Svo fékk ég bréf frá öðrum aðilum sem ég sendi DVD og þeir hrifust svo af að þeir vilja hitta mig og heyra í mér "live".  Það verður semsagt í næstu viku, þetta er fyrir mjög stóra óperuhátíð sem er haldin á sumrin.   Ég var búinn að skrá mig í þetta í fyrra en gat ekki mætt sökum veikinda, en nú er vonandi komið að því :)  Þetta er að sjálfsögðu allt eins og áður maður veit í raun ekkert hvað kemur útúr þessu, en eini sénsinn að fá eitthvað er að taka þátt!

Ætlunin var líka að sækja um í alþjóðlegri keppni í Osló sem er í ágúst en það þarf að vera búið að skila öllu efni fyrir 1.mars og ég vil ekki taka áhættuna á að tapa 80 evrum ef ég fæ ekki að vera með.  Svona er það nú bara.

Júlía hefur að mestu verið góð, en þó var hún vælandi meira og minna í allan gærdag, og til kl 1:30 eins og venjulega.  Við erum að fara reyna að hefja smá svefnþjálfun núna, þannig að það verður gaman að sjá hvað gerist.  Skv "Uppeldishandbókinni" ættu börn sem eru um 5 kg að sofa 5-7 tíma á nóttu.   Júlía hefur einmitt aldrei sofið meira en 4 tíma í einum rykk!!

Jæja nóg er komið af skrifi, ég læt vita hvernig gekk í prufunum og mun fara skrifa reglulegar í þetta blogg :)

Komnar eru inn FULLT FULLT af myndum fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.


2 ummæli:

  1. Gangi þér nú allt, sem helst verður á kosið, í haginn. Ættarfylgjan er sannfærð um að þú hefur geysilega marga þætti til brunns að bera til að verða hinn dásamlegasti óperusöngvari.OG ættarfylgjan er sko enginn asni þegar í hlut á fólk og það sem í kringum það er. - Hipp, hipp og hopp til frama og gleði.- Svo er nú ekki eins og þú hafir ekki konu þér við hlið, sem er æ til skrauts og prýði Það geta nú ekki aleg allir sagt með sanni.


    Það eru milljónir barna, sem viðhafa svipaðar venjur og fröken Júlía Freydís. Prísaðu bara Drottin fyrir þessa laglegu og greindarlegau döttur; heilbrigða hvað þroska varðar, til anda og líkama. Og hananú!
    Hlýjar kveðjur
    til Kjörfurstanna

    Ættarfylgjan

    SvaraEyða
  2. Va overdose af myndum, skemmti mer konunglega vid ad skoda thær og lifgudu upp a annars leidinlega kennslustund. Serstaklega kruttlegar myndirnar af skula afa og juliu :)

    kv. Gudny frænka

    SvaraEyða