14.3.12

Annað marsbloggið

Eins og mig grunaði þá er bloggþurrðin mikil núna og frá afar litlu að segja.  En það helsta er kannski að ég er búinn að vera í RVK síðustu daga, svona að dunda mér við að senda atvinnuumsóknir og spila tölvuleiki og heimsækja fólk.  Það er svosem allt eins og það á að vera og ekkert óvenjulegt og nýtt að gerast.  Við erum þó  búinn að setja bílakaup á smá pásu, því það er ekki alveg á tæru hvernig við ætlum að fjármagna þetta alltsaman.  En Octavía er ennþá stefnan og mun það gerast hvenær sem það svosem verður.

Í kvöld skellti ég mér á generalprufuna á La boheme í Hörpu, en þetta var einnig í fyrsta skipti sem ég kem í það ágæta hús, og ég verð að segja að þrátt fyrir 2007 hrollinn sem fór um mig þegar ég kom þarna inn, þá varð Eldborgarsalurinn til þess að gera mig afar stolltan af því að Íslendingar eigi svona flott heimsklassa hús, sem var í raun löngu tímabært, og ég held að þrátt fyrir gagnrýnisraddir, þá hafi verið tekin rétt ákvörðun með að klára byggingu þess.  Frumsýning La boheme er svo á föstudaginn kemur og þar á ég miða ásamt foreldra einingunum, og ég ætla að reyna að njóta þess, þrátt fyrir allt það sem kann að fara í taugarnar á mér.

Annars er hér mest lítið annað að frétta og ég hendi inn upplýsingum þegar þær berast.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli