Eftir mikla yfirlegu, ferðalög og spekúlasíónir, var lagt af stað til Akureyrar í morgun (erum í Skagafirði) í þeim eina tilgangi að kaupa bíl.. Þar var deginum eytt í að reynslu keyra ýmsa bíla, sem allir höfðu sitthvað fram að færa. En ofan á, um kl 15:00, varð svo forláta Skoda Octavia MDi, árg 2006, bensínknúin og beinskipt. Græn á lit, sem er hennar helsti löstur, en liturinn er ekki bíllinn, svo mikið er víst. Hún flaug í gegnum ástandsskoðun með einungis 3 smá athugasemdir. Fast á hæla Oktavíurnar var svo Corolla Wagon, en þar skildi að um 500.þús, og var litið til þess með valið í huga. Við erum himinlifandi með gott val, og nú er bara að vona að að við verðum jafn heppin og flestir Skoda eigendur :)
Hér er mynd af dýrinu eftir sína fyrstu áfyllingu hjá nýjum eigendum :)
PS: það er kannski rétt að taka það fram að bílnum var ekki lagt svona langt frá dælunni, heldur var honum bakkað inn í þeim eina tilgangi að taka mynd :)

Þú ert nú af framsóknarættum.
SvaraEyða