Hér er unnið mjög stíft og ekki laust við að mikil þreyta sé að gera vart við sig. Ég á sem betur fer um 4 tíma frí í dag frá æfingum og ætli maður nýti það ekki til að fara reyna læra það sem ég er að fara syngja í Nauköllner Oper, en ég fékk einmitt allar nótur í gær frá þeim.
Svo eru einhverjar tilfæringar í lagavalinu mínu sem er eilítið pirrandi!! Ég sendi lista yfir 5 aríur sem ég vil gefa kost á, og þar af ættu þeir hérna að velja eina, ásamt mér til að syngja í keppninni sem er hluti af þessu prógrammi. Nema hvað allt í einu vilja þessir ágætu aðilar að ég syngi aðra aríu en það sem ég var búinn að undirbúa, málið er það að ég kann þessa aríu, en hún fer mér ekkert svakalega vel og ég þarf að taka góðan slurk í að rifja upp textann osfrv! Sem er óþolandi, því hitt allt gæti ég sungið með bundið fyrir augu eyru og munn :)
Það sem nýtt er að ég hef verið boðaður í áheyrnar prufu hjá umboðsskrifstofu Neill Thornborrow í Düsseldorf þann 9.sept nk, þetta kemur í kjölfar umsóknar sem ég sendi þeim eftir að Wolfgang hafði talað við þá og beðið um að taka mig í prufu. Þetta er skref áfram.......ekki endilega uppávið en áfram.
Júlía litla er núna fárveik í Svíþjóð með móður sinni, með háan hita og sefur því enn verr en áður, þetta er ótrúlegt ástand og alveg hreint ömurlegt að mamma hennar fái ekkert að hvíla sig, en ég vona að þetta fari nú að ganga yfir. Það er búið að fara með hana til læknis sem fann ekkert að og því þarf bara að bíða og vona að allt sé í lagi.
Þangað til næst.
Verður gaman að sjá myndir af outfittinu og af þér á catwalkinu :)
SvaraEyðaAnnars skoðaði ég síðu frá þessum manni og fann ekkert nema kvenmannsföt..
Góðir strauma allavega sendir héðan og vonandi að litla skottið fari að braggast!