19.5.10

Frumsýning gekk vel

Þá er ég loksins kominn heim í lengri tíma. Það er gott að geta verið heima hjá sér innanum dótið sitt og fólkið sitt. Sú littla veit aldrei hvernig hún á að haga sér þegar ég er að koma heim eftir langan tíma og snýst það oft út í fíflalæti og mikla gleði, sem er vissulega gaman að sjá.

Gunnar koma á frumsýninguna hjá mér og tók upp hljóð á meðan, sýnir svosem ekkert hvernig þetta hljómaði í raun og veru en gefur ágætis mynd. Hann leigði svakalegan bens til að koma hingað, nýrri gerðina af þeim sem við fórum á í sumarfíið í fyrrasumar. Og ég fékk að fljóta með honum til baka til Berlínar. Næsta sýning er svo á laugardaginn kemur.

Ég fór á fund í gær vegna góðgerðartónleika sem ég er að fara syngja á með þýsku sópransöngkonunni Barböru Krieger, en hún hefur einmitt sungið með mörgum af stærstu nöfnum heims, og er það því mikill heiður að fá að gera þetta með henni. Afar viðkunnanleg kona og ég hlakka til að syngja með henni. Góðgerðartónleikarnir eru vegna Gedächtniskirkjunnar hérna í Berlín sem er mörgum túristanum kunn, þar sem aðeins stendur einn turn eftir og restin að hruni komin, þessir tónleikar eru liður í að þakka styrkjendum fyrir og safna meira í leiðinni. Þetta er ágætis upphitun fyrir stórtónleikana í sumar :)

Að vera kominn heim til sín hefur þá kosti að maður getur leyft sér meira í mat og drykk. Hérna hjá okkur var spargel á mánudag og úr spargel afgöngunum gerði ég svo hvítvíns og rjómalagaða spargel súpu frá grunni, og ég get ekki sagt annað en að vel hafi tekist til. Þetta var nú bara eins og á besta veitingastað, nema ég veit að í þetta var ekki notað neitt duft og aðeins úrvalshráefni.

Ég veit reyndar ekki enn hvað verður í matinn í kvöld, en það á eftir að koma í ljós hvort það verði einhver ævintýramennska :)

Nú er hafinn undirbúningur að flutningum sem við höfum fest á dagsetninguna 18.Júlí. Fórum í gær í Bauhaus til að versla málningardót, málningu og svona holufyllingar spartl. Fólkið sem hefur búið á undan okkur hérna taldi sig vera afar gáfað þegar þau löguðu ljótar sprungur í baðkarinu með málningu sem ég þreyf af núna rétt áðan með acetone, baðið lítur í raun mikið betur út núna eftir skítavinnubrögðin hafa verið þrifin burt. Við erum líka búin að prufa loft og veggjamálninguna sem við keyptum og hún hverfur algerlega inn í það sem er fyrir, þannig að það er ótrúlegur léttir. Tónleikarnir mínir eru Föstudaginn 16.Júlí, og planið er að flytja tveimur dögum seinna, en þá verða einmitt þau gömlu í heimsókn og geta þá kannski tekið einn og einn geisladisk.

Við erum semsagt komin með undirritaðan leigusamning í hendurnar, og leigjandinn er svo indæll að hann hefur boðið okkur að fá lyklana mánuði fyrir innflutningsdag, bara ef við viljum flytja þetta í nokkrum ferðum, sem er frábært.

Ég er að reyna að koma mér í að læra allt sem ég þarf að læra fyrir næsta season í Görlitz, auk tónleikanna tveggja í sumar. Það er afar gaman að vanda að sitja og reyna að læra texta.....minnir mig alltaf á þegar ég var að reyna læra ljóð úr Ljóðaspegli hjá Stebba Bö í grunnskóla í gamladaga, það var ekki gaman og ekki auðvelt. Það ætti að vera eitt af sterku þáttunum hjá söngvara að vera snöggur að læra..........spurning hvort það komi með hækkandi aldri??

Sumarið hér lætur heldur betur á sér kræla, hér er skítkallt og maður þarf að klæða sig vel ef maður ætlar út, þykka peysu og létta vetlinga!! Ótrúlegur andskoti! En svona er þetta, í kortunum eru einhver hlýindi og það er vonandi að það haldist.

Þangað til næst, fyrir frelsara vorn Jesus Christ.

2 ummæli:

  1. Mikið er alltaf gaman að lesa pistlana þína og skoða myndirnar.Það er gaman að fylgjast með ykkur þarna úti. Hafið það áfram sem allra best. Kv Ásta föðursystir.

    SvaraEyða
  2. Takk fyrir kæra frænka. Og til baka sendum við allra bestu kveðjur.

    SvaraEyða