7.5.10

Herberge, dagblöðin, æfingar og næsta ár....

Þar sem ég sit hér við gluggan og horfi út á Untermarkt torgið, verður mér litið á þetta sérstæða orð Herberge, sem við Íslendingar notum í daglegu tali. Ég haf marg oft velt því fyrir mér hvaðan þetta sé komið og afhverju við segjum herbergi um þessi rými í húsum. Orðið er samsett og er komið úr forníslensku að hluta og þýsku að ég held, nema þetta sé allt úr íslensku komið, hvað veit ég svosem um það. En fyrri hlutinn er að sjálfsögðu her(military) og svo bergen sem á þýsku útlegst sem skjól/byrgi. Þetta þykir mér merkilegt :)

Mikið hefur verið um æfingar síðustu daga og má alveg segja að vel hafi gengið, síðust 4 daga hafa verið æfingar með hljómsveit (OP) og svo æfing á sviði með hljómsveit (BO). Blaðamaður frá Berliner Morgenpost hafði samband við mig í vikunni og tók við mig langt viðtal sem á að birtast þann 17.júní nk, maður veit reyndar ekkert hversu umfangsmikið það verður nú þegar það er komið á prent :) Svo í næstu viku er ég að fara í viðtal hjá Sächsische Zeitung (reynið bara að bera þetta fram:)) Þannig að það er nóg að gera, það styttist óðum í frumsýninu, en nú er rétt rúm vika til stefnu.

Ég er búinn að fá áætlunina fyrir næsta ár, og það lítur út fyrir að tímabilið frá ágúst til jóla verði ansi strembið, en á móti kemur að eftir jól róast aðeins, ef hægt er að tala um ró :) Ég á svo 2 vikna vetrarfrí í febrúar og svo 6 vikna frí um sumarið, sem afar fínt. Gott að vita svonalagað fyrirfram.

Ég hef haldið símasambandi við litu fjölskylduna, og verð að segja að það er ótrúlega gaman að heyra í bakgrunninum þegar ég er að tala við Soffíu í síman "babba! babba" sem þýðir auðvitað pabbi :) Svo er nánast hægt að halda uppi samræðum við Júlíu í símann, henni þykir það afar mikið sport að fá að spjalla við pabba, sem er í "Göshhh" að "lalala".

Ætla að hendast heim til Berlínar, að lokinni æfingu á morgun, það verður afa ljúft. Þó mér þyki nú fátt leiðinlegra en að ferðast 3 tíma með ömurlegri lest.

Svona rétt í lokin langar mig svo að deila með ykkur stuttmynd sem var tekið að öllu leiti í Görlitz, það skemmtilega við það er að ég bý nákvæmlega þar sem flest atriðin voru tekin upp og útsýnið úr glugganum mínum er beint yfir torgið og á turninn :)

Þessi stuttmynd heitir "Stolz der Nation" og er í raunininni einskonar mynd í mynd :) Þ.e þessi mynd birtist í myndinni "Inglorious Basterds" sem áráðurmyndin. Þetta er auðvitað hálfgert grín og verulega ofleikið en svona á það að vera :)



Engin ummæli:

Skrifa ummæli