28.7.12

Sól sól skín á mig........

.....ský ský burt með þig, lát' ekki sólina gleðja sig, sól sól skín á mig"   Eða svona hljómar það allavega úr munni JFE, sem skammast svo í mér fyrir að leiðrétta það :)

Þetta er allavega búið að vera eitt besta sumar sem ég hef upplifað á Íslandi.  Í minningunni var þetta þó alltaf svona fyrir 25 árum eða svo :)  Ég er allavega svakalega ánægður með að þetta sé þó svona núna.  Smá jákvæðni í annars ófjölbreyttu lífi.

Júlía fór í viku ferð til ömmu Sísi í sveitina fyrir norðan og við Soffía fórum í smá fjallgöngu á Vörðufell, og fengum fínasta veður til göngunnar, vel af vindi og sól.  Við tjölduðum og gistum uppi á fjallinu.  Það ringdi aðeins á okkur um nóttina, og varð ansi kallt, en þetta var samt fínasta upplifun.  Soffía varð þó í kjölfarið veik og hefur þurft að halda sig heima síðustu daga.

Júlí hefur reyndar verið ansi stór mánuður þegar kemur að því að eitthvað gerist.  Álaborgarfólkið kom til landsins og skýrðu litla álinn, Rakel, í Skálholti.  Ég söng þar nokkrar línur með mikilli ánægju og svo var haldin heljarinnar veisla þar sem Laugaráskvartettinn kom saman á ný í fyrsta skipti í 5 ár eða svo.  Við í kvartettinum ákváðum síðan að hittast á fabrikkunni  eftir nokkra daga og borða saman og spjalla.  Það var ótrúlega gaman eins og alltaf og við enduðum í grasagarðinum með bjór og ræddum allt á milli himins og jarðar í hlýrri kvöldsólinni.

Ég fékk símtal í mánuðinum frá Jóhanni bassa sem spurði mig hvort ég gæti sungið Triquet í Eugene Onegin, sem á að setja upp í Reykjanesbæ í lok Ágúst, þar sem tenórinn sem átti að gera það forfallaðist.  Ég sagðist nú alveg geta sungið þetta, þar sem það er ekki beint erfitt, og því er ég að taka þátt í þessu verkefni.  Sem er mjög gaman, þar sem ég hafði ekki ætlað mér neitt sérstakt með sönginn í bili.  Eins gæti verið eitthvað spennandi verkefni í burðarliðnum á næsta ári.  En meira um það síðar þegar og ef :)

Emilía er loksins byrjuð að ganga með stuðningi, það gerðist bara í dag.  Hér er smá videó af því :)


Engin ummæli:

Skrifa ummæli