Það var því með mikilli gleði að ég leit inn á þýska bankann minn í morgun og sá að þangað var sparnaðurinn minn kominn :) Það er samt alltaf gaman að þessu rugli og ég þakka þeim sem höfðu af mér áhyggjur.
Bissí dagur í dag, fyrst þurfum við að fara FERA og fá neyðarnúmerið til að nota ef fæðing fer af stað. Það kostar litlar 100EUR, en það er í raun eini kostnaðurinn sem við þurfum að bera vegna þessarar fæðingar, nema komi til keisara, sem verður ekki. Eftir það fer ég í tíma hjá píanóleikara og þvínæst á næstsíðasta "geburtsvorbereitungskurs". Á morgun er svo tími hjá Janet og á föstudag er ég að fara reyna að taka upp DVD til að senda agentum. Nóg að gerast í þessari viku!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli