25.9.08

Heiðríkja og heiðblá fjallalind

Ákvað að henda inn hérna einni færslu svona rétt áður en að maður verður of bissí við að sinna gestum.   Þröstur og frú eru á leiðinni og ég þarf að fara hendast að ná í bílaleigubílinn eftir c.a 5 mín.

Lítið er svosem að frétta héðan nema hvað að við fórum á þetta stórskemmtilega "Geburtsvorbereitungskurz" í gær, úffff,  þá eru 5 eftir!   Þetta er frekar leiðinlegt, og leiðinlegra fyrir þær sakir að þetta er á þýsku og efninu væri hægt að koma fyrir á 40 mín til klukkutíma í staðin fyrir að vera endurtaka allt miljón sinnum eins og við séum eitthvað þroskaheft.   En svona er það víst.  Í gær var farið í það sem gersist hjá konunni í fæðingu, og talað um PDA (periduralanästhesie).  Frábært.

Nú ég er búinn að vera á æfingum fyrir litlu tónleikana 4.október, og gengur það bara vel.  Þó eru tvær æfingar núna um helgina sem ég mæti ekki á sökum gestagangs.  Raddlega er mér að fara fram nokkuð ört þessa dagana, þar sem ég er byrjaður að hugsa þetta allt öðruvísi en áður, gaman að því.

Jæja þarf að fara koma mér, meira á sunnudaginn.

Kveðjur úr sólinn.

1 ummæli:

  1. Það er viðurkennd staðreynd að nám gengur best með endurtekningum. Síðan liggur einnig fyrir þetta með góðu vísuna.
    Þú hlustar kannski á Víðsjá á rás 1, 26. sept. :)

    SvaraEyða