9.12.08

Dagarnir líða og mennirnir með

Þá er lokið áheyrnarprufu fyrir ZBF hérna í Berlín, þau voru voða hrifin.  Og vilja fá mig í sérstaka audition 27.janúar fyrir eitthvað project sem er að fara í gang 26.febrúar að ég held.  Það er gott, en það er auðvitað soldið langt í þetta alltsaman og maður veit svosem ekkert hvernig project þetta er.

Fyrir þá sem ekki vita hvað ZBF er þá er það atvinnumiðlun listamanna hérna í Berlín, rekin af þýska ríkinu.  Þetta er á sama stað og almenn atvinnumiðlun.  Þetta er því gott tækifæri að syngja fyrir þau, þar sem það kostar ekkert og maður er ekki að keppa við neinn.  Ég er allavega að fara undirbúa Don José úr Carmen.  Hversu mikið veit ég ekki, en allavega eru þau búin að óska eftir blóma aríunni víðfrægu, ég er því að fara hafast handa við að fullkomna hana.  Er sem betur fer búinn að eyða miklu púðri í að læra hana og nú þarf ég að nýta það, sem er gott.

Tengdó eru komin, færandi hendi að sjálfsögðu, veit ekki hvernig þau komust með allt þetta dót með sér.  Þar á meðal er skata sem ég ætla mér að borða á Þoddlák.   Hér taka nú við aðeins afslappaðri dagar held ég, þar sem ég er ekki að syngja meira í desember.

Littla ungfrúin er að versna og versna af magaverkjum og er ég á leið í apótekið að ath hvort ekki séu til einhver góð hómópatalyf gegn þessu, veit að þau eru til, en spurning hvort það sé til í apótekum hér.  Hún hefur semsagt verið að versna talsvert undanfarna daga og líður greinilega ekki nógu vel.  Það er auðvitað erfitt og um leið mjög frústrerandi að horfa upp á hana kveljast svona og get ekkert gert, því er ég farinn á stúfana.  Því allt skal gert til að létta henni verkina.

Meira var það nú ekki í bili..... verið þið sæl.

8 ummæli:

  1. Elsku Soffia og Egill

    Hjartanlega tilhamingju med litlu gullfallegu prinsessuna. En thad er svo sem ekki vid ödru ad búast í thessari fallegu Krákustadaætt ;o)

    Bestu kvedjur
    Ása og strákarnir í DK

    P.S. Kamilluthe er gott til ad róa magann

    SvaraEyða
  2. "Minifoam" - ef um uppsafnað loft er að ræða. Var með slíkan Bogmann.

    Og annað svo ótrúlegt sem það er:

    Dýfið suðinu í cognac eða whisky.
    Gerði það skv. dr. Ólafi Mixa um hánótt.

    Myndi ALDREI skrökva slíku.
    Vona að anga litla krílinu fari að batna.

    H.Ág.

    P.S. Gleður hjartað að sjá að þér gengur vel á þinni söngvabraut, kæri tenór. Og fær ekki móðir Soffía örugglega nægan svefn?
    H

    SvaraEyða
  3. Átti auðvitað að vera snuðinu - ekki suðinu. Afsakið.
    H.Ág.

    SvaraEyða
  4. Stressleysi er aðalmálið. Minnist langra nótta fyrir ríflega 30 árum:)

    SvaraEyða
  5. Leyfi mér að benda á að skoða matarræði móðurinnar! Veit reyndar að hún er nú ekki mikið í óhollustunni - en meira að segja bananar eiga að vera uppfullir af sætindum sem koma litlum mallakútum í uppnám!
    Kv. Kristín Ósk

    SvaraEyða
  6. ''Gefdu henni solhatt''

    SvaraEyða
  7. Ég ku víst hafa verið svakalega í maganum á fyrstu mánuðum ævi minnar - ég geri ráð fyrir að KS lumi á einhverjum ráðum handa þér. Mér dettur samt helst í hug að hún hafi bara "stöffað" mig, enda ber ég þess merki enn.

    Kv, Begga bolla frænka.

    SvaraEyða
  8. Minifom-ið er málið. Ábyggilega meinlausasta lyf í heimi (ætlað til að virka á ungbarnakveisu - jamm þetta hefur formlegt nafn) og hefur verið í notkun um áraraðir.

    Prófið bara að setja einn dropa í drykk sem freyðir mikið. Einn dropi og froðan hverfur. Mikil snilld!

    SvaraEyða