4.12.08

Að standa og bjóða aðstoð sína en geta lítið gert.

Þetta er ekki það auðveldasta, að horfa upp á konuna sína þurfa að upplifa, nánast eina, það sem í garð nú gengur.  Þetta er semsagt byrjað og við á leið upp í FERA.   Hversu langan tíma það mun svo taka er afstætt held ég.

Ég  er að upplifa mig, í fyrstaskipti á æfinni, eins og illagerður hlutur sem hefur ekki tilgang í þessu verki, þó ég viti reyndar vel að það er ekki rétt.  Hlutverkið, þó lítið sé, er í raun risastórt. 

Það er skrítið að vera nánast áhorfandi að þessu öllusaman, það er skrítið að einbeita sér svona sterkt, maður ætti að nota það í söngnum....... kannski ég fari nú að gera það loksins :)

Allavega, frúin kvelst og ég blogga.... er það eðlilegt??  hver veit nema sá sem allt veit.   Ég er allavega tilbúinn og nú leggjum við af stað.  Ég er nokkuð öruggur um að þetta gerist nú í nótt, þ.e 5.desember 2008 kreppuveturinn mikla, fæðist sá sem mun erfa ríkidæmi Egils og Soffíu, krónprins/essan kemur til að frelsa oss frá illu..... hvað sem það nú þýðir :)

Hugsanir verðandi föðurs hafa nú tekið yfirhöndina..........

Í næsta bloggi verð ég titlaður faðir Egill.

11 ummæli:

  1. Vonandi gengur þetta fljótt og vel fyrir sig - 5. desember er góður dagur! Bið að heilsa þér og frúnni :)

    SvaraEyða
  2. Gangi ykkur allt eins og best verður á kosið. Sendum ykkur hlýja strauma. Ykkar, Þröstur Freyr

    SvaraEyða
  3. Gangi ykkur vel - 5. desember er góður dagur.

    Hlýjar kveðjur frá mér til ykkar!

    SvaraEyða
  4. óótrúlega miklir góðir straumar til ykkar beggja ! hlakka til að vakna í fyrramálið.... ef ég get þá sofnað úr spenningi :D

    SvaraEyða
  5. Erum búin að vera að fylgjast með blogginu á klukkustundar fresti. Manni líður eins og gluggagægi :)

    Bíðum svo náttúrulega eftir videóinu og myndunum ;)

    Eitt enn.
    Ekki verða hissa þótt þér verði hent öfugum út úr fæðingarstofunni af verðandi móður. Það getur ýmislegt gerst ...

    Gangi ykkur sem allra best. Vertu stuðpúðinn sem berja má og nuddarinn sem allt linar. Hugur okkar verður hjá ykkur næsta sólarhringinn.

    SvaraEyða
  6. Innilega til hamingjum með litla sólargeislann - vonandi heilsast móður og dóttur vel (og þér líka ;)

    SvaraEyða
  7. Ú ég sé hér að það er komin dóttir! Innilega til hamingju! hlakka til að heyra frá ykkur og sjá litla krúttið :)

    SvaraEyða
  8. til hamingju með litlu skvísuna :o)- hlakka til að sjá myndir!

    SvaraEyða
  9. Til hamingju með prinsessuna, loksins loksins :)

    kv. Guðný frænka

    SvaraEyða
  10. Innilega til hamingju með litlu prinsessuna. Hlakka til að sjá myndir :)
    kv. Ósk

    SvaraEyða